Fjármálaeftirlitið lét stöðva viðskipti með bréf Icelandair

Önnur hluta­bréf hafa lækkað mikið í Kaup­höll­inni síðan stöðv­unin var til­kynnt. Hluta­hafa­fundur vegna kaupa Iclandair á WOW air fyr­ir­hug­aður á föstu­dag­inn.

Fjármálaeftirlitið lét stöðva viðskipti með bréf Icelandair
Við­skipti stöðvuð Við­skipti með bréf Icelandair voru stöðvuð í morgun að beiðni Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

V

 iðskipti með bréf í Icelandair Group í Kauphöll Íslands hafa verið stöðvuð. Það var gert í morgun að beiðni Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Gengi bréfa í félag­inu hafði hækkað eilítið í morgun, eða um 1,88 pró­sent í 25 millj­óna króna við­skiptum. Úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar hefur hins vegar lækkað skarpt síðan til­kynnt var að við­skiptin yrðu stöðvuð.

Til­kynn­ing um stöðvun við­skipta var gefin út klukkan 10:21 í morgun. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Icelandair er von á frek­ari upp­lýs­ingum síðar í dag vegna máls­ins.

Tilkynnt var 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að Icelandair Group hefði gert kaup­samn­ingum kaup á WOW air. Við þá til­kynn­ingu hækk­uðu  bréf í félag­inu um tugi pró­senta áður en við­skipti með þau voru stöðv­uðu. Hluta­hafa­fundur í Icelandair hefur verið boð­aður næst­kom­andi föstu­dag vegna þeirra kaupa. Þau kaup eru nú til skoð­unar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

 Greint var frá því fyrir helgi að Loft­leiðir Icelandic, dótt­ur­fé­lag Icelandair Group, hefði keypt ríf­lega helm­ings­hlut í rík­is­flug­fé­lagi Græn­höfða­eyja, Cabo Verde Airlines. Ekki er vitað hvort stöðv­unin nú hefur eitt­hvað með þau við­skipti, eða mögu­lega eitt­hvað með kaup Icelandair á WOW air, að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár