Forstjóri Icelandair vill ekki svara spurningum um framtíð WOW air

Framtíð flug­fé­lags­ins WOW air er óljós þó upp­kaup Icelandair á flug­fé­lag­inu séu kynnt þannig að félagið verði áfram til. Kaupin bar brátt að og virð­ast hafa verið neyð­ar­úr­ræði eftir að björg­un­ar­að­gerðir Skúla Mogensen gengu ekki upp. Icelandair verst svara um yfir­tök­una.

Forstjóri Icelandair vill ekki svara spurningum um framtíð WOW air
Framtíð WOW air óljós Óljóst er hversu lengi WOW air mun verða til sem sjálf­stæð ein­ing innan Icelandair sam­stæð­unnar. Skúli Mogensen er stofn­andi og fyrr­ver­andi eig­andi Wow air. Mynd: WOWAIR.IS

Bogi Nils Bogason, starf­andi for­stjóri Icelandair Group og fjár­mála­stjóri sam­steypunnar til margra ára, vill ekki svara þeirri spurn­ingu hvort Icelandair hygg­ist reka Wow air til fram­tíðar sem sjál­stæða rekstr­ar­ein­ingu. Ein af spurn­ing­unum sem yfir­taka Icelandair á WOW Air skilur eftir sig er hvort dagar WOW air séu taldir og hvort fyr­ir­tækið hætti að vera til með tíð og tíma. 

Af öllu því sem komið hefur fram í fjöl­miðlum um yfir­tök­una er ljóst að um eins konar neyð­ar­úr­ræði var að ræða þar sem Skúli Mogensen, eig­andi og for­stjóri WOW air, var búinn að leita allra ann­arra leiða til að tryggja áfram­hald­andi rekstur flug­fé­lags­ins en án árang­urs. Þrauta­lend­ing Skúla var að setja sig í sam­band við Icelandair fyrir síð­ustu helgi og fá flug­fé­lagið til að taka rekst­ur­inn yfir á allt öðrum for­sendum og verði en hann hafði áður kynnt í fjöl­miðlum þannig að Icelandair geti tryggt áfram­hald­andi rekstur WOW air á næst­unni, hið minnsta. Ef grein­ing Icelandair á WOW leiðir til þeirrar nið­ur­stöðu að ætlað virði WOW hafi hingað til verið stór­lega ofmetið þá getur farið svo að Skúli fái ekki neitt fyrir fyr­ir­tækið.   Icelandair gerir því mikla fyr­ir­vara við við­skiptin, þar sem ekki hefur gef­ist tími til að gaum­gæfa kaupin sökum þess hve mikið lá á að klára þau. 

„Þegar öllu er á botninn hvolft held ég að við höfum gert hið rétta með því að tryggja framtíð WOW air sem dótturfélags Icelandair. “

Vonar að framtíð WOW air sé tryggð

Á Facebook-síðu sinni í gær sagði Skúli eft­ir­far­andi um ákvörðun sína þar sem hann full­yrti jafn­framt að WOW air myndi áfram verða til sem sjálf­stætt rekstr­ar­fé­lag innan Icelandair: „Þegar öllu er á botn­inn hvolft held ég að við höfum gert hið rétta með því að tryggja fram­tíð WOW air sem dótt­ur­fé­lags Icelandair. Aug­ljós­lega var þetta ekki upp­haf­leg áætlun mín eða sú sýn sem ég hafði varð­andi fram­tíð WOW air. En að gefnum þeim aðstæðum sem upp voru komnar þá er þetta besta von okkar til að tryggja fram­tíð WOW air til lengri tíma litið, það ótrú­lega teymi fólks sem starfar innan fyr­ir­tæk­is­ins , far­þega okkar og ekki síst það tæki­færi sem sem felst í upp­bygg­ingu sjálf­bærrar ferða­þjón­ustu á Íslandi.“

„Í til­kynn­ing­unni til Kaup­hallar koma öll helstu efn­is­at­riði fram.“

Á end­anum, þrátt fyrir þessi orð, er fram­tíð WOW air hins vegar ekki lengur í höndum Skúla Mogensen, enda segir hann líka að það sé „von“ hans að yfir­takan tryggi fram­tíð WOW air til lengri tíma litið. Full­yrð­ing Skúla um fram­tíð WOW air er því háð fyr­ir­vörum sem hann sjálfur virð­ist gera sér grein fyrir. 

Boðið að eign­ast Wow airSkúli Mogensen bauð Icelandair WOW air í lok síð­ustu viku eftir að til­raunir hans til að tryggja fram­tíð flug­fé­lags­ins höfðu farið út um þúfur. Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair.

„Mikil tækifæri til hagræðingar“

Bogi Nils Bogason segir að þar sem Icelandair sé skráð félag þá geti hann ekki tjáð sig um yfir­tök­una umfram það sem fram kom í orðum hans í til­kynn­ingu Icelandair til Kaup­hallar Íslands á mánu­dag­inn var. „Í til­kynn­ing­unni til Kaup­hallar koma öll helstu efn­is­at­riði fram.  Verandi skráð fyr­ir­tæki á hluta­bréfa­mark­aði getum við lítið bætt við á þessu stigi,“ segir Bogi.

Á mánu­dag­inn sagði Bogi í umræddri til­kynn­ingu: „WOW air hefur á und­an­förnum árum byggt upp sterkt vöru­merki og náð miklum árangri á mörk­uðum félags­ins, til og frá Íslandi og yfir Atl­ants­hafið. Það eru mikil tæki­færi til hag­ræð­ingar en félögin verða áfram rekin á eigin for­sendum undir eigin vöru­merkjum og flug­rekstr­ar­leyfum. Íslensk ferða­þjón­usta er grunn­stoð í íslensku  hag­kerfi og það er mik­il­vægt að flug­sam­göngur til og frá land­inu séu í traustum skorðum.”

Eitt af því sem Bogi vill ekki svara er hvað hann hafi átt við með orð­unum „mikil tæki­færi til hag­ræð­ingar“ og í hverju sú hag­ræð­ing felst. Á hann við að leggja starf­semi Wow air niður í þeirri mynd sem félagið hefur verið rekið í, með tíð og tíma? Á hann við veru­lega fækkun á flug­leiðum, flug­vélum og í starfs­liði Wow air?

Bogi segir einnig  að WOW air verði „áfram“ rekið á eigið for­sendum og undir eigin vöru­merki. En hversu lengi er „áfram“, hvað þýðir „áfram“ í með­förum Boga þarna? Ljóst er auð­vitað að WOW air leggur ekki upp laupana á morgun eða á allra næst­unni því hluti til­gangs­ins með yfir­tök­unni hlýtur meðal ann­ars að vera að tryggja hags­muni þeirra far­þega, kröfu­hafa, birgja og starfs­manna sem eiga eignir eða afkomu sína undir mjúkri lend­ingu WOW air úr sínum rekstr­ar­erf­ið­leikum. 

Icelandair hefur lítið sem ekk­ert gefið út um ástæður og for­sendur kaupanna hingað til. Út frá orðum Boga í til­kynn­ing­unni er hins vegar alveg ljóst að ekki er um að ræða upp­kaup sem Icelandair lítur á sem stór­kost­legt við­skipta­tæki­færi fyrir félagið enda var það ekki Icelandair sem fal­að­ist eftir WOW air heldur eig­andi WOW air sem hafði sam­band við Icelandair og bauð þeim fyr­ir­tækið sitt til að tryggja hags­muni far­þega, starfs­fólks, kröfu­hafa og hag­kerf­is­ins sem slíks má segja.  Ein af spurn­ingum Stund­ar­innar til Icelandair var meðal ann­ars hvort flug­fé­lagið hafi yfir­tekið WOW air út frá heild­ar­hags­munum, frekar en eig­in­hags­munum - Icelandair er að stærstu leyti í eigu líf­eyr­is­sjóða - en Bogi svar­aði þessu ekki heldur. 

Spurningarnar sem Bogi svarar ekki

Stundin sendi Boga og for­svars­mönnum Icelandair spurn­ingar um við­skiptin skömmu eftir að greint var frá þeim á mánu­dag­inn en í gær var ljóst að þeim yrði ekki svarað. Fjöl­mörgum spurn­ingum er enn ósvarað um við­skiptin. 

„1. Hvað áttu við með að „mikil tæki­færi“ séu til hag­ræð­ingar? Þú virð­ist vera að vísa til beggja félag­anna sem heildar, heildar sem Icelandair á og rekur? Hver eru helstu tæki­færin til hag­ræð­ingar sem þú vísar til?

2. Mun Icelandair ætla að eiga og reka Wow air sem svo­kallað sjálf­stætt lággjald­flug­fé­lag til fram­búðar og um ókomin ár? Mér finnst ívitnuð orð þín ekki benda til þess að Icelandair sjái upp­kaupin á Wow air sem stór­kost­legt við­skipta­tæki­færi.

3. Kaupir Icelandair umrætt flug­fé­lag af því félagið vill kaupa það eða af því Icelandair lítur svo á að þurfi að gera það til að verja sig sjálft og eða stærri hags­muni íslensks alþjóða­flugs og jafn­vel íslenska hag­kerf­is­ins?

4. Þú segir að WOW air hafi á und­an­förnum árum byggt upp sterkt vöru­merki og svo fram­vegis. Wow air hefur nú samt oft og ítrekað verið gagn­rýnt vegna seink­ana, aflýstra fluga og svo fram­vegis og hefur ratað á pín­lega lista og svo fram­vegis. Að þínu mati: Hvort vöru­merkið er sterkara, Icelandair eða Wow air - ég hef ekki séð nafn Icelandair í tengslum við slíka nei­kvæða umræðu alþjóð­lega. Og að þínu mati: Hverju bætir til­koma Wow air í það vöru­úr­val í flugi sem Icelandair hefur upp á að bjóða?

5. Mun Icelandair fá ein­hverja aukna fyr­ir­greiðslu frá ein­hverjum aðila eða aðilum í tengslum við umrædd kaup? Átt er við hag­kvæm rekstr­ar­lán frá eink­að­ilum eða öðrum, íviln­anir á sköttum og eða greiðslum frá íslenskum stjórn­völdum eða yfir­völdum?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár