Aukin vopnaburður hafi kallað á fleiri útköll sérsveitarinnar

Vopnuðum útköllum sér­sveit­ar­innar fjölg­aði hins­vegar tölu­vert umfram til­kynn­ingar um vopn­aða ein­stak­linga. Sigríður Andersen segir einnig að „sam­setn­ing brota­manna í land­inu“ valdi fjölgun vopn­aðra útkalla.

Aukin vopnaburður hafi kallað á fleiri útköll sérsveitarinnar

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra full­yrðir að aukna tíðni vopn­aðra útkalla sér­sveitar rík­is­lög­reglu­stjóra á árunum 2016-2017 megi skýra af auk­inni tíðni til­kynn­inga vegna vopn­aðra ein­stak­linga. Útköllum sér­sveitar rík­is­lög­reglu­stjóra fjölg­aði um 175 pró­sent á milli áranna 2016-2017. Á sama tíma fjölg­aði til­kynn­ingum um vopn­aða ein­stak­linga um 109 pró­sent. Þannig fjölg­aði vopn­uðum útköllum sér­sveit­ar­innar tölu­vert umfram til­kynn­ingar um vopn­aða ein­stak­linga á þessu sama tíma­bili. Ráðherra nefnir einnig breyt­ingu á eðli brota og „sam­setn­ingu brota­manna í land­inu“ sem ástæður fyrir auknum vopna­burði lög­reglu, í svari við skrif­legri fyr­ir­spurn Smára McCarthy, þing­manns Pírata.

Spyr um vopnuð útköll Smári McCarthy, þing­maður Pírata, lagði fram skrif­lega fyr­ir­spurn um vopnuð útköll sér­sveitar rík­is­lög­reglu­stjóra.

Þing­mað­ur­inn spyr meðal ann­ars hver skýr­ingin sé á tölu­vert auk­inni tíðni slíkra verk­efna og útkalla á árinu 2017 umfram önnur ár. Ráðherra, sem vísar í upp­lýs­ingar frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, segir að „til­kynn­ingum um fjölda vopn­aðra ein­stak­linga fjölgað und­an­farin ár og þar af leið­andi útköllum til að sinna þeim verk­efnum.“

Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra fór í 52 vopnuð útköll árið 2003 en þeim fjölg­aði jafnt og þétt næsta ára­tug­inn eða svo og voru þau orðin 108 árið 2016. Slíkum útköllum fjölg­aði svo snar­lega upp í 298 árið 2017 og þre­föld­uð­ust þannig næstum því á milli ára. Þá fór fjöldi til­kynn­inga um vopn­aða ein­stak­linga frá því að vera 65 árið 2011 yfir í 83 árið 2016. Ári síðar var til­kynnt um 174 slíkt til­felli, að því er fram kemur í tölum sem ráð­herra birtir frá rík­is­lög­reglu­stjóra­emb­ætt­inu.

Þing­mað­ur­inn spyr einnig hvaða breyt­ingar hafi verið gerðar á starfs­reglum, mála­flokkum eða aðgerða­venjum lög­reglu á und­an­förnu ári. Í svari dóms­mála­ráð­herra kemur fram að ekki hafi verið gerðar neinar breyt­ingar á þessum sviðum varð­andi sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra. Þá spyr hann ráð­herra hvort þaðsé í sam­ræmi við stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í lög­gæslu­málum að fjölga vopn­uðum verk­efnum og útköllum lög­reglu. Ráðherra segir svo ekki vera. Það sé hins­vegar hlut­verk lög­reglu að bregð­ast við þeim til­kynn­ingum sem henni ber­ast í sam­ræmi við ákvæði lög­reglu­laga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár