Vilja hætta að segja „háttvirtur“

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata vilja afleggja lög­bundin en fram­andi sæmd­ar­heiti alþing­is­manna, sem end­ur­spegli ólíka fram­komu eftir þjóð­fé­lags­stöðu.

Vilja hætta að segja „háttvirtur“
Alþing­is­menn Forseti þings­ins fram­fylgir þeirri föstu venju að þing­menn séu ávarp­aðir „hátt­virtur“. Mynd: Davíð Þór

Þingmenn úr flokki Pírata og Sam­fylk­ingar reyna að fá því fram­gengt að hætt verði að neyða þing­menn til þess að nota sæmd­ar­heitin „hátt­virtur þing­maður“ og „hæst­virtur ráð­herra“. Samkvæmt núgild­andi reglum sæta þing­menn athuga­semdum for­seta þings­ins ef þeir ávarpa ekki eftir þess­ari föstu venju.

Flutn­ings­menn­irnir, Margrét Tryggva­dóttir, Guðjón S. Brjáns­son, Smári McCarthy og Björn Leví Gunn­ars­son, segja að í Finn­landi, Danmörku, Noregi og Svíþjóð séu ekki gerðar kröfur um þess lags tignará­varp á þjóð­þingum. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sinni segja þau að ávarps­orðin „hátt­virtur þing­maður“ og „hæst­virtur ráð­herra“ séu jafn­vel „notuð til að hæð­ast að stjórn­mála­mönnum og hafa þá snú­ist upp í and­hverfu sína“. 

Loks er það álit þeirra að fólk ávinni sér virð­ingu með breytni en ekki stöðu eða hlut­verkum og því „eigi [ávarps­orðin] ekki við í nútíma­þjóð­fé­lagi, séu úrelt og sam­ræm­ist ekki þeirri lífs­skoðun að allar mann­eskjur verð­s­kuldi virð­ingu og að sam­fé­lag okkar skuli byggt á jafn­rétti. Verð­s­kuldi fólk sér­staka virð­ingu umfram aðra borg­ara ávinni það sér hana með störfum sínum og breytni en ekki stöðu eða hlut­verkum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár