Sólveig Anna segir Sirrý „fyrirlitlega manneskju“

Sjálf­stæð­is­konan Sirrý Hall­gríms­dóttir sakar Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­mann Eflingar, um að mis­beita valdi sínu til þess að Gunnar Smári Egilsson kom­ist í 12 millj­arða króna sjóði Eflingar.

Sólveig Anna segir Sirrý „fyrirlitlega manneskju“
Sólveig Anna Jóns­dóttir Var óvænt kjörin for­maður Eflingar með miklum yfir­burðum í fyrra, en hefur kvartað undan skoð­ana­skrifum í Frétta­blað­inu. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þessi fyr­ir­lit­lega mann­eskja ásakar mig um óheið­ar­leika og glæpa­eðli,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar, um pistla­höf­und­inn Sirrý Hall­gríms­dóttur, sem færir fram ásak­anir á hendur verka­lýðs­for­yst­unni og kenn­ingu um áhrif Gunnars Smára Egils­sonar í bak­pistli sínum í Frétta­blað­inu í dag. 

Í pistl­inum sakar Sirrý stjórn­endur Eflingar um að hafa „sent gjald­ker­ann í veik­inda­leyfi“ til að Gunnar Smári Egilsson, fyrr­ver­andi útgef­anda Frétta­blaðs­ins og Frétta­tím­ans og einn stofn­enda Sós­í­alista­flokks Íslands, gæti kom­ist í 12 millj­arða króna sjóði Eflingar. 

„Andlegur leið­togi þess­arar hreyf­ingar virð­ist vera Gunnar Smári Egilsson sem áður hafði nokkuð óhindr­aðan aðgang að sjóðum auð­manna. Nú er Gunnar Smári búinn að finna nýjan sjóð, verka­lýðs­fé­lagið Efling situr á 12 millj­örðum sem nýta má til ýmissa verka. Það þurfti bara að senda gjald­ker­ann í veik­inda­leyfi, hún virt­ist ekki skilja fínni blæ­brigði bylt­ing­ar­innar,“ skrifar Sirrý. 

Sólveig Anna svarar af hörku og kvartar undan „ógeði“ og „þvaðri“. „Nú hefur gáfna­ljósið Sirrý Hall­gríms­dóttir ákveðið að taka þátt í ógeð­inu með því að taka undir lygarnar og þvaðrið úr fólki sem þolir ekki að verka og lág­launa­fólk krefj­ist þess að vera metið að verð­leikum í íslensku sam­fé­lagi. Þessi fyr­ir­lit­lega mann­eskja ásakar mig um óheið­ar­leika og glæpa­eðli. Í raun er hún að ásaka mig um þjófnað; að hin raun­veru­lega ástæða fyrir því að ég hafi gefið kost á mér sem for­maður Eflingar hafi verið til að svíkja og pretta og stela. Það er ótrú­legt að þurfa að sitja undir upp­spuna og del­er­íngum í fólki með skerta sið­ferð­is­kennd, en ég segi aftur: Hér fáum við ótrú­legt tæki­færi til að upp­lifa hvernig borg­ara­stéttin tjúll­ast þegar að henni er sótt og þegar fólk ákveður að hætta að bugta sig og beygja fyrir mann­fjand­sam­legum efna­hags­lög­málum hennar,“ segir Sólveig Anna.

Forsaga ásök­unar Sirrýjar eru átök á skrif­stofu Eflingar í tengslum við reikn­ing frá Öldu Lóu Leifs­dóttir, ljós­mynd­ara og eig­in­konu Gunnars Smára Egils­sonar, vegna verk­efn­is­ins Fólkið í Eflingu, sem birt­ist á vef Eflingar. Samkvæmt umfjöllun Morg­un­blaðs­ins neit­aði fjár­mála­stjóri að stað­festa reikn­ing hennar, og fór í kjöl­farið í veik­inda­leyfi. Eftir það færði Gunnar Smári Egilsson fram ásak­anir á hendur fjár­mála­stjór­anum, þess efnis að hún hefði beint við­skiptum til eig­in­manns síns fyrir hönd Eflingar. Í yfir­lýs­ingu frá Sólveigu Önnu kom fram að frétta­flutn­ingur Morg­un­blaðs­ins af mál­inu væri rangur, að stjórn hefði sam­þykkt reikn­inga Öldu Lóu og fjár­mála­stjór­inn hefði ekki hafnað að greiða þá.

Pistill SirrýjarHöfundur bank­þanka Frétta­blaðs­ins ásakar for­ystu Eflingar.

Sirrý Hall­gríms­dóttir hefur í gegnum árin tekið virkan þátt í starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og meðal ann­ars gegnt for­mennsku í Hvöt, félagi sjálf­stæð­iskvenna í Reykja­vík, verið for­maður Upp­lýs­inga- og fræðslu­nefndar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, setið í mið­stjórn og var um skeið vara­for­maður Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna. Þá var hún ráðin aðstoð­ar­maður Illuga Gunn­ars­sonar, þáver­andi mennta­mála­ráð­herra, árið 2013.

Sólveig Anna sagði nýverið að Hörður Ægisson, rit­stjóri Mark­að­ar­ins, fylgi­rits Frétta­blaðs­ins, væri einn af „óvinum vinn­andi stétta“ og að hann væri hand­bendi hús­bónda síns, vegna leið­ara­skrifa Harðar í Frétta­blað­inu, þar sem hann sagði kröfur Starfs­greina­sam­bands­ins vegna kjara­samn­inga vera „sturl­aðar“. Hörður hefur nú skrifað þrjá leið­ara í röð þar sem hann gagn­rýnir kröfur laun­þega um tölu­verðar kjara­bætur.

Hér er færsla Sól­veigar Önnu í heild sinni:

„Enn og aftur er við­bjóðs­legur áróður um mig og Eflingu bor­inn inn á heim­ili fólks með Frétta­blað­inu. Nú hefur gáfna­ljósið Sirrý Hall­gríms­dóttir ákveðið að taka þátt í ógeð­inu með því að taka undir lygarnar og þvaðrið úr fólki sem þolir ekki að verka og lág­launa­fólk krefj­ist þess að vera metið að verð­leikum í íslensku sam­fé­lagi. 

Þessi fyr­ir­lit­lega mann­eskja ásakar mig um óheið­ar­leika og glæpa­eðli. Í raun er hún að ásaka mig um þjófnað; að hin raun­veru­lega ástæða fyrir því að ég hafi gefið kost á mér sem for­maður Eflingar hafi verið til að svíkja og pretta og stela. Það er ótrú­legt að þurfa að sitja undir upp­spuna og del­er­íngum í fólki með skerta sið­ferð­is­kennd, en ég segi aftur: Hér fáum við ótrú­legt tæki­færi til að upp­lifa hvernig borg­ara­stéttin tjúll­ast þegar að henni er sótt og þegar fólk ákveður að hætta að bugta sig og beygja fyrir mann­fjand­sam­legum efna­hags­lög­málum hennar. 

Allt um hið sanna eðli þess sem skrifar opin­ber­ast í sor­anum: 

Viljinn til að ljúga, vilj­inn til að hræða, vilj­inn til að leita allra leiða til að sabótera bar­áttu fólks fyrir efna­hags­legu rétt­læti. Og vilj­inn til að not­ast við þetta ógeðs­lega og ódýra bragð fólks sem einskis svífst: 

Að reyna að etja saman stétt verka og lág­launa­fólks og þeim háskóla­mennt­uðu í sam­fé­lag­inu með því að draga ljós­mæður inn í aumk­un­ar­vert skít­kastið, með því að ganga út frá því að ljós­mæður muni ekki standa með fólki sem ekki hefur háskóla­menntun þegar það krefst þess að hér verði byggt upp gott og öruggt hús­næð­is­kerfi, að hér verði skatt­byrgð­inni létt af lág­tekju­hóp­unum, að hér fái fólk laun sem duga til að lifa mann­sæm­andi til­veru. 

Ég full­yrði: Ljós­mæður, eins og annað eðli­legt fólk með eðli­lega sið­ferð­is­kennd í íslensku sam­fé­lagi, munu standa með okkur í bar­átt­unni. Af því að þær, eins og allt eðli­lega inn­réttað fólk, gera sér grein fyrir því að gott og mann­vænt sam­fé­lag bygg­ist upp á því að fólk hafi það gott, að fólk lifi við öryggi, að fólk sleppi við vinnu-þrælkun (sem er staðan eins og hún er fyrir það fólk sem getur ekki lifað af dag­vinnu­launum sínum og þarf því að vera í auka­vinnu og yfir­vinnu og þriðju vinnu) og að fólk þurfi ekki að sætta sig það að hér sé heil­brigð­is­kerfið nið­ur­skorið og vel­ferð­ar­kerfið svelt svo að auð­stéttin, vinir Sirrýar, geti áfram komið sér undan því að taka þátt í því að reka sam­fé­lag, geti haldið áfram að senda pen­inga í skatta­skjól, geti haldið áfram að skipta krónu­eignum í erlendan gjald­eyri og með því að fella gengi krón­unnar og svo mætti lengi lengi lengi telja.

Í alvöru talað: hvernig dirf­ist þessi kona að reyna að ata mig aur? Hvernig dirf­ist hún að reyna að hræða fólk sem starfar á íslenskum vinnu­mark­aði til hlýðni? Hvernig dirf­ist hún að reyna að láta eins og ég hafi gerst sek um ein­hvern glæp? 

Ég ætla sjálf að svara. Senni­leg­asta útskýr­ingin er sú í þeirri ver­öld sem hún byggir, þeirri ver­öld sem félagar hennar byggja þykir ekk­ert sjálf­sagð­ara en að ásæl­ast sjóði og gera hvað sem er til að kom­ast að þeim. Í þeirri ver­öld þykir ekk­ert sjálf­sagð­ara en að láta fégræðgina stýra öllum sínum gjörðum. Í þeirri ver­öld þykir ekk­ert til­töku­mál að stunda fyr­ir­tækja­grip­deildir, skatt­svik, fjár­plóg­starf­semi og síð­ast en ekki síst þykir í þeirri ver­öld ekk­ert sjálf­sagðar en að kokka upp eitt stór­feng­leg­asta banka­hrun mann­kyns­sög­unnar með ein­beittum brota­vilja og ein­beittu skeyt­ing­ar­leysi fyrir hags­munum almenn­ings.

Sirrý mun eflaust aldrei skilja að fólk geri hluti vegna ein­hvers ann­ars en gróða­mögu­leik­anna og fégræðginnar. Hún mun eflaust aldrei skilja að rétt­læt­is­kennd og löngum í að fá að vera eitt­hvað annað og meira en vinnu­afl á útsölu­verði geti stýrt gjörðum fólks. Hún mun eflaust aldrei skilja að nýfrjáls­hyggjan, hug­mynda­fræðin sem hún aðhyllist, veki and­styggð hjá fólki sem hefur verið neytt til að lifa við hennar grimmu og mann­fjand­sam­legu lög­mál. Hún mun aldrei skilja þá til­finn­ingu sem fylgir því að lifa og starfa í ára­tug á íslenskum vinnu­mark­aði þar sem þú veist að hin smán­ar­legu laun sem þú færð lögð inn á heima­bank­ann þinn munu aldrei nokkurn tím­ann duga til þess að sjá fyrir þér og börnum þínum. Hún mun aldrei skilja þessa til­finn­ingu af því hún er ófær um að setja sig í spor ann­ara, er aðeins fær um að klína sínum sjúku hug­myndum um mann­legt eðli yfir á fólk sem gerð­ist sekt um þann hræði­lega glæp, greini­lega einn af þeim stærstu í íslensku sam­fé­lagi, að sigra með yfir­burðum í lýð­ræð­is­legum kosn­ingum um hverjir ættu að leiða bar­áttu verka­lýðs­fé­lags. 

Sumt fólk er ein­fald­lega þannig inn­réttað að meira að segja leik­reglur lýð­ræð­is­ins eru þeim óskilj­an­legar. Það er leið­in­legt fyrir okkur hin en við getum þá í það minnsta glatt okkur við að vera sjálf með sæmi­lega gagn­legan sið­ferð­is­átta­vita. Það eru greini­lega ekki allir svo heppnir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Verkalýðsmál

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár