Galbraith segir fráleitt fyrir Íslendinga að taka upp evruna

„Ég mæli ekki með því að neitt ríki gangi í Evr­ópu­sam­bandið og hlíti fjár­mála­reglum þess,“ sagði James K. Gal­braith hag­fræði­pró­fessor í Silfrinu í dag.

Galbraith segir fráleitt fyrir Íslendinga að taka upp evruna

„N

ei auð­vitað ekki,“ sagði hag­fræð­ing­ur­inn James K. Gal­braith, aðspurður hvort Íslend­ingar ættu að taka upp evr­una í Silfrinu í dag. „Ég sé enga ástæðu til þess. Íslend­ingar búa við líf­væn­legan efna­hag og not­hæfan gjald­miðil. Hvers vegna að láta það frá sér? Bretar tóku ekki upp evru, og það hafði í för með sér mik­inn ávinn­ing fyrir þá. Nú eru þeir í vand­ræðum vegna til­rauna til að ganga alfarið úr Evr­ópu­sam­band­inu, en það að halda sig utan evru­svæð­is­ins var klár­lega réttur leikur hjá Bretum.“ 

James K. Gal­braith, hag­fræði­pró­fessor við Texas-háskóla í Banda­ríkj­unum og þekktur pistla­höf­undur, var aðal­við­mæl­andi Silf­urs­ins í dag og fjall­aði meðal ann­ars um stjórn­mála­á­standið í Banda­ríkj­unum, alþjóða­væð­ing­una, fjár­mála­hrunið og Evr­ópu­sam­bandið.

Gal­braith var­aði við því að Íslend­ingar gengju í Evr­ópu­sam­bandið og beygðu sig undir fjár­mála­reglur þess. „Jafnvel ef við lítum Skand­in­avíu, þá er aðeins eitt ríki með evru og það hefur búið við minni hag­vöxt en hin ríkin,“ sagði hann og vís­aði þar til Finn­lands. 

Krónan hefur veikst umtals­vert gagn­vart helstu við­skipta­myntum und­an­farna mán­uði. Nýlega létu sam­tökin Já Ísland fram­kvæma skoð­ana­könnun á við­horfum Íslend­inga til krón­unnar, Evr­ópu­sam­bands­ins og upp­töku evru. Nið­ur­staðan var sú að stuðn­ingur við aðild að Evr­ópu­sam­band­inu færi vax­andi. 43 pró­sent sögð­ust fylgj­andi aðild að sam­band­inu en 57 pró­sent á móti. Þá vildu 46 pró­sent aðspurðra taka upp evru en aðeins 36 pró­sent voru mót­fallnir því. 

Sam­fylk­ingin og Viðreisn tala ein­dregið fyrir upp­töku evru þessa dag­ana og hefur Sam­fylk­ingin t.d. fram­leitt mynd­band þar sem hvatt er til þess að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið. Þá sagði Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, í við­tali á Bylgj­unni í dag að íslenskir stjórn­mála­menn væru með „haus­inn í sand­inum“ yfir þeim kostn­aði sem heim­ili og fyr­ir­tæki þyrftu að bera vegna krón­unnar.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár