Vefsíða kvenhatara ekki á íslenskum snærum

Þrátt fyrir að umræðu­vef­síðan Incel.is hafi end­ing­una .is, eins og allar íslenskar síður, þá sér skrán­ing­ar­fyr­ir­tækið ekki um heima­síður að neinu leyti. Slíkt er verk­efni hýs­ing­ar­að­ila, en vef­síðan er hýst í Þýska­landi.

Vefsíða kvenhatara ekki á íslenskum snærum
Ekki á Íslandi Skráning spjall­svæð­is­ins á íslenskt lén gefur ef til vill til kynna að hóp­ur­inn sé á Íslandi. Svo er ekki, en hóp­inn er aðal­lega að finna í Banda­ríkj­unum og Evrópu. Mynd: Shutterstock

Skrán­ing­ar­að­ilar léna fyrir heima­síður geta ekki skipt sér af inni­haldi vef­síðna nema dóms­úr­skurður fyr­ir­skipi það. Þetta kemur fram í svari frá ISNIC - Internet á Íslandi til Stund­ar­innar, en land­s­lénið .is og skrán­ingar á því eru í umsjón fyr­ir­tæk­is­ins.

Umræðu­vef­síða og spjall­vett­vangur fyrir hóp­inn incels er nú starf­rækt á land­s­léni Íslands eins og fram kom í umfjöllun Stund­ar­innar í gær. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem stjórn­endur síð­unnar gefa frá sér í til­kynn­ingu er ástæðan fyrir breyt­ing­unni „smá vanda­mál með þjón­ustu­að­ila“, en vef­síðan er hýst af óþekktu fyr­ir­tæki í Þýska­landi.

Incels eru hópur karl­manna sem hat­ast við konur og tala sumir hverjir fyrir ofbeldi gegn þeim.

„Vanda­málið“ kann að vera að hýs­ing­ar­að­il­inn hafi lokað heima­síð­unni vegna inni­halds­ins, en þetta hefur komið í auknum mæli fyrir spjall­svæði incels-liða. Eins og fram kom í gær var spjall­svæð­inu incels.life lokað fyrr í ár og var núver­andi heima­síða incels hýst á öðru léni áður en tekið var upp .me lénið.

Lénaflakk leið til að komast hjá lokunum

Ekki má rugla saman hýs­ingu og léni, en vef­síðan er langt í frá hýst á Íslandi eða af íslenskum aðilum. Áður var vef­síðan starf­ræk á lén­inu .me sem er land­s­lén Svart­fjalla­lands, en er samt notað í einka­eigu um allan heim. 

Innihald vef­síðna er mál hýs­ing­ar­að­il­ans. Ef efni á heima­síðu er óvið­eig­andi fyrir hýs­ing­ar­að­ila getur hann tekið ákvörðun um að loka vef­síð­unni. Skrán­ing­ar­að­ili léns getur ekki tekið ákvarð­anir eða skipt sér af inni­haldi vef­síðna. 

Hins­vegar geta skrán­ing­ar­fyr­ir­tæki léna lokað þeim ef dóms­úr­skurður fyr­ir­skipar lokun léns vegna lög­brots. Að öðru leyti getur skrán­ing­ar­fyr­ir­tæki ekki skipt sér af ein­staka vef­síðum.

Engin viðvera hópsins á Íslandi

Viðvera incels hóps­ins á Íslandi er ekki þekkt, en eflaust eru ein­hverjir sem aðhyll­ast hug­mynda­fræði þeirra hér á landi.

Hópurinn sem á íslensku er hægt að kalla „skír­lífir gegn eigin vilja“  stundar grimmi­lega hat­urs­orð­ræðu í garð kvenna á net­inu. Menn­irnir telja að skír­lífi þeirra sé sök kvenna sem sækja frekar í aðlað­andi karl­menn, í stað þess að sækja í menn sem eru góð­hjart­aðir en ekki eins aðlað­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Jafnréttismál

Ekki fræðilegur möguleiki að manna vaktina með karlmönnum
ViðtalJafnréttismál

Ekki fræði­legur mögu­leiki að manna vakt­ina með karl­mönnum

Jakobína Rut Dan­í­els­dóttir var að reyna að fá einn af fjórum karl­kyns sam­starfs­mönnum sínum til að taka vakt­ina hennar í dag þegar hún ræddi við Heim­ild­ina í síð­ustu viku. Hún sinnir starfi sem hún getur ekki gengið í burtu frá, jafn­vel þó að á í dag sé kvenna­verk­fall. Hún er ein af þeim fjöl­mörgu konum sem halda heil­brigð­is­kerf­inu uppi.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár