Kerfið hefur brugðist þeim á allan hátt

For­eldrar Þóru Bjarkar Ottesen, þau Ásta Ottesen og Páll H. Jónsson, segj­ast löngu búin að átta sig á því að kerfið í heild sinni virki ekki fyrir þá sem eru verndar þurfi. Þeir segja fyrr­ver­andi tengda­son sinn, Gary Clarke, marg­sinnis hafa sýnt af sér hegðun sem gefi þeim og öðrum fjöl­skyldu­með­limum til­efni til að standa stuggur af honum.

Kerfið hefur brugðist þeim á allan hátt
Líður betur núna Hjónin eru ósátt við að dóttir þeirra og barna­barn hafi þurft að flýja land en á sama tíma fegin að þeim líður betur þar sem þau eru núna. Mynd: Hólmfríður H. Sigurðardóttir

Þegar þau Gary og Þóra skildu fyrir rúm­lega átta árum réðst Gary inn á heim­ili for­eldra hennar þar sem hann gekk í skrokk á Páli og hrinti Ástu harka­lega á vegg. Í kjöl­far þess og ann­arra atvika fékk Þóra nálg­un­ar­bann á hann. Það gilti þó aðeins á milli þeirra tveggja, en ekki milli hans og fyrr­ver­andi tengda­for­eldr­anna eða barns­ins.

„Ég man eftir einu skipti þegar ég var að ganga með dreng­inn á leik­skól­ann snemma um morgun að vetri til. Þá kom hann allt í einu stökkvandi út úr myrkr­inu og mér dauð­brá og varð skít­hrædd. Í annað skipti, þegar við vorum að fara með yngri dóttur okkar í ferm­ing­ar­mynda­töku, kom hann stökkvandi út úr bílnum og gerði hana og okkur dauð­skelkuð. Hvernig hann vissi að við vorum á leið í ferm­ing­ar­mynda­töku með dóttur okkar á þessum stað vitum við ekki en svona var þetta. Hann kom hvert sem var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár