Alda Lóa segir frétt Morgunblaðsins „aðför að valdalausu fólki“

Alda Lóa Leifs­dóttir blaða­maður segir vinnu­brögð Morg­un­blaðs­ins ótrú­lega og fram­göngu fjár­mála­stjóra Eflingar aðför að valda­lausu fólki. Eig­in­maður Öldu, Gunnar Smári Egilsson, ber fjár­drátt upp á fjár­mála­stjór­ann.

Alda Lóa segir frétt Morgunblaðsins „aðför að valdalausu fólki“
Formaður Eflingar Vildi ekki tjá sig um málið í sam­tali við Stundina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Skrif Morg­un­blaðs­ins um meint átök innan stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar eru aðför að valda­lausu fólki, loks þegar það fær smá athygli. Þetta segir Alda Lóa Leifs­dóttir, blaða­maður og ljós­mynd­ari, en störf hennar fyrir Eflingu hafa verið dregin inn í harka­legar deilur und­an­farna daga í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum. „Mér finnst þetta vera aðför gegn minni vinnu,“ segir Alda Lóa.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins síð­ast­lið­inn laug­ar­dag var full­yrt að á skrif­stofu Eflingar stétt­ar­fé­lags log­aði allt í deilum sem, að sögn blaðs­ins, mætti rekja til ofríkis nýs for­manns, Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, og fram­kvæmda­stjór­ans Viðars Þor­steins­sonar. Í frétt­inni var greint frá því að fjár­mála­stjóri Eflingar til ára­tuga, Krist­jana Val­geirs­dóttir, væri komin í veik­inda­leyfi og full­yrt að ástæðan væri átök hennar við for­mann félags­ins, Sólveigu Önnu, og fram­kvæmda­stjór­ann Viðar. Samkvæmt frétt­inni átti Krist­jana að hafa neitað að greiða Öldu Lóu háan reikn­ing, um eina milljón króna, fyrir skrif og ljós­mynda­töku í þágu Eflingar nema með sam­þykki stjórnar félags­ins. Áður á Alda Lóa, sam­kvæmt sömu frétt, þegar að hafa fengið greiddar fjórar millj­ónir fyrir verkið.

Segist hafa sent inn tilboð sem var samþykkt

Alda Lóa seg­ist í sam­tali við Stundina ekki hafa fengið greitt að fullu fyrir verk­efnið sitt „Fólkið í Eflingu“ sem hófst núna í júní og hefur vakið mikla athygli. „Mér finnst þetta vera aðför gegn minni vinnu,“ segir Alda Lóa í sam­tali við Stundina.

Alda Lóa segir að hún hafi sent inn til­boð fyrir verk­efnið á Eflingu sem var sam­þykkt. Laun Öldu voru verk­taka­laun á blaða­manna­taxta. Í til­boð­inu var líka tækja­kostn­aður þar sem Alda er ljós­mynd­ari. Fyrir við­tölin þurfti hún einnig að ferð­ast til Hvera­gerðis og Þor­láks­hafnar. 

Gunnar Smári sakar fjármálastjórann um fjárdrátt

Gunnar Smári Egilsson, eig­in­maður Öldu, birti úttekt á Facebook-síðu sinni þar sem hann rakti þær greiðslur sem hann segir Öldu hafa fengið frá Eflingu og jafn­framt að Alda hafi enn aðeins fengið greitt fyrir 63 af 100 sam­þykktum við­tölum. Gunnar Smári nafn­greindi fjár­mála­stjór­ann Krist­jönu á Facebook og sagði hana hafa kosið að sverta nafn eig­in­konu sinnar til að koma höggi á yfir­menn sína, þau Sólveigu og Viðar. Þá greindi  Gunnar Smári einnig frá því að Alda Lóa segði það fjarri sann­leik­anum að hún hefði fengið fjórar millj­ónir borg­aðar frá Eflingu. Bar hann í athuga­semd á Facebook það upp á fjár­mála­stjór­ann Krist­jönu að hún hefði stungið á sig góðum hluta af þeirri upp­hæð. Sagði Gunnar Smári jafn­framt að honum væri skapi næst að ganga í Eflingu til að krefj­ast þess að gerð yrði rann­sókn á störfum hennar innan félags­ins síð­ustu ára­tugi. Krist­jana hefur ráðið sér lög­mann og neitað að svara um málið. Stundin hefur ekki náð sam­bandi við Krist­jönu. Rétt er að geta þess að Gunnar Smári er stofn­andi Sós­í­alista­flokks Íslands og er for­maður fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins. Sós­í­alista­flokk­ur­inn var hvað stærstur bak­hjarla B-lista Sól­veigar Önnu fyrir síð­ustu kosn­ingar í stjórn Eflingar.

Formaðurinn neitar að tjá sig

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefur neitað að svara til um ástæðu veik­inda­leyf­is­ins. Hún vildi ekki tjá sig um ásak­anir Gunnars Smára í sam­tali við Stundina og vís­aði í yfir­lýs­ing­una sem hún og Viðar Þor­steins­son gáfu út vegna skrifa Morg­un­blaðs­ins. 

Í yfir­lýs­ing­unni hafna þau frétta­flutn­ingi Morg­un­blaðs­ins með þeim orðum að aðeins sé um „óstað­festar sögu­sagnir og dylgjur“  að ræða. 

„Hvorki for­maður né fram­kvæmda­stjóri Eflingar kann­ast við þá full­yrð­ingu blaða­manns Morg­un­blaðs­ins að fjár­mála­stjóri hafi neitað að greiða reikn­inga frá Öldu Lóu Leifs­dóttur blaða­manni sökum þess að þeir hafi ekki verið sam­þykktir af stjórn. Alda Lóa hefur með ótví­ræðu sam­þykki stjórnar Eflingar unnið hið glæsi­lega kynn­ing­ar­verk­efni „Fólkið í Eflingu“, og fyrir þá vinnu sína hefur hún að sjálf­sögðu fengið greitt. Hafa þær greiðslur verið í full­komnu sam­ræmi við ákvörðun stjórnar um úthlutun fjár­muna til verk­efn­is­ins,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Fjár­mála­stjóri og bók­ari hafa ann­ast með­höndlun inn­sendra reikn­inga vegna verk­efn­is­ins athuga­semda­laust. Full­yrð­ing Morg­un­blaðs­ins um að þær greiðslur hafi verið ásteit­ing­ar­steinn milli nýrra stjórn­enda og fjár­mála­stjóra félags­ins er röng og stenst enga skoðun.“

Alda Lóa segir að frétt Morg­un­blaðs­ins sé ósönn hvað hana varði. „Þetta eru bara ótrú­leg vinnu­brögð,“ segir Alda Lóa. „Þetta hryggir mig, mér finnst þetta vera aðför að valda­lausu fólki. Þegar það fær loks­ins ein­hverja smá athygli að það fái þessi sóða­legu við­brögð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár