30 manns strand á Keflavíkurflugvelli eftir klúður í bókun

Um 30 starfs­menn CCEP sem áttu að fljúga til Berlínar í morgun í árs­há­tíð­ar­ferð voru bók­aðir í flug árið 2019. WOW air segir að um mann­leg mis­tök sé að ræða og far­þeg­unum verði komið út á morgun.

30 manns strand á Keflavíkurflugvelli eftir klúður í bókun
Voru bók­aðir á næsta ári Starfs­menn Coke á Íslandi sem áttu að fljúga út til Berlínar í morgun í árs­há­tíð­ar­ferð voru bók­aðir fyrir mis­tök í flug á næsta ári.

Rúmlega 30 starfs­menn CCEP, sem áður hét Víf­il­fell, eru stranda­glópar á Kefla­vík­ur­flug­velli þar sem WOW air mun hafa klúðrað bókun á flugi fyrir þá til Berlínar. Þangað áttu starfs­menn­irnir að fljúga klukkan sex í morgun en árs­há­tíð fyr­ir­tæk­is­ins fer fram þar ytra á morgun. Starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins sem Stundin ræddi við segir að engar upp­lýs­ingar sé að hafa frá flug­fé­lag­inu.

Þegar fólkið mætti út á Kefla­vík­ur­flug­völl um klukkan fjögur í morgun til að inn­rita sig var því tjáð að gleymst hefði að panta flugið fyrir það. Flugið sem um ræðir er með WOW air í gegnum ferða­skrif­stof­una Tripical. Seinna um morg­unin bár­ust þær upp­lýs­ingar að WOW hefði fyrir mis­tök bókað flugið á næsta ári. Hluti starfs­manna CCEP flaug utan í gær og hluti á flug á morgun og mun það flug vera rétt bókað.

Jóhannes Gunn­ars­son, starfs­maður CCEP, segir í sam­tali við Stundina klukkan ríf­lega tíu í morgun að engar upp­lýs­ingar hafi feng­ist frá WOW air um það með hvað hætti eigi að leið­rétta mis­tökin. „Það hefur fullt af fólki verið að reyna að ná í hópa­deild­ina hjá WOW air en það gengur víst ekk­ert að ná nið­ur­stöðu þar. Fólk hefur því verið að týn­ast héðan í burtu hægt og rólega síð­asta klukku­tím­ann, ýmist gef­ist upp eða ætla að freista þess að kom­ast í flug á morgun. Ég heyrði að fólk freist­aði þess að ná í for­stjóra WOW því það væri engar lausnir að hafa. Eina skýr­ingin sem við höfum fengið er að WOW air hafi fyrir mis­tök bókað ferð­ina á næsta ári, 4. októ­ber 2019. Mér finnst það raunar ansi skrýtið því þetta flug var bókað með tölu­verðum fyr­ir­vara, fyrir nokkrum mán­uðum. Ég vissi ekki að það væri hægt að bóka flug með WOW air með eins og hálfs árs fyr­ir­vara, ég veit það ekki alveg.“

Jóhannes seg­ist undr­andi á hæga­gang­inum hjá flug­fé­lag­inu við að leysa málið og sömu­leiðis skorti á upp­lýs­ingum. „Það hefði verið hægt að redda þessu í morgun ef vilji hefði verið fyrir hendi af hálfu WOW, það voru til dæmis 11 sæti laus í flugi Icelandair til Berlínar í morgun. Það voru líka 14 sæti laus í WOW air vél­inni sem við áttum upp­haf­lega að fljúga út með.“

Svanhvít Frið­riks­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi WOW air stað­festir að mis­tök hafi verið gerð við bók­un­ina en segir að þau mis­tök liggi bæði hjá flug­fé­lag­inu og ferða­skrif­stof­unni Tripical. Búið sé að ganga frá því að starfs­fólkið fái flug út til Berlínar í fyrra­málið með WOW. Öll sam­skipti við fólkið séu hins vegar á ábyrgð Tripical, þar eð ferðin hafi verið keypt í gegnum ferða­skrif­stof­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár