Mynd: Heiða Helgadóttir

Ráðuneytið mátti ekki leyna upplýsingum um mál Braga

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafi brotið gegn lög­bund­inni upp­lýs­inga­skyldu sinni þegar það synj­aði Stund­inni um aðgang að minn­is­blaði um kvart­anir barna­vernd­ar­nefnda. Almenn­ingur hafi átt „ríka hags­muni“ af að kynna sér efni þess.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið fór á svig við upp­lýs­inga­lög þegar það hélt upp­lýs­ingum frá almenn­ingi um kvört­un­ar­mál barna­vernd­ar­nefnda vegna vinnu­bragða Braga Guð­brands­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu.

Þetta er nið­ur­staða úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sem hefur skikkað ráðu­neytið til að veita blaða­manni Stund­ar­innar aðgang að minn­is­blaði skrif­stofu félags­þjón­ustu í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu til Ásmundar Einars Daða­sonar félags­mála­ráð­herra frá 18. jan­úar 2018. 

Stundin óskaði eftir skjal­inu í febr­úar, en þá hafði Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra lýst því yfir að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu hefði „ekki brotið af sér með neinum hætti“ og rík­is­stjórnin hafði jafn­framt ákveðið að bjóða Braga fram sem full­trúa Íslands til barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Að mati úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál átti almenn­ingur ríka hags­muni af því að geta kynnt sér upp­lýs­ing­arnar sem fram komu í minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins. Þar er meðal ann­ars fjallað um efn­is­at­riðin í kvört­unum barna­vernd­ar­nefnd­anna, við­brögð Barna­vernd­ar­stofu og hlut­verk og ábyrgð ráðu­neyt­is­ins í mál­inu. 

„Enda þó minn­is­blaðið upp­fylli öll form­leg skil­yrði þess að telj­ast til vinnu­gagns er um svo umfangs­miklar upplýsingar um atvik málsins að ræða, sem ekki koma fram í þeim bréfum er ráðuneytið kveður fela í sér end­an­lega nið­ur­stöðu málsins, að ekki þykir rétt að tak­marka aðgang almenn­ings að því,“ segir í nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefnd­ar­innar. 

„Í ljósi allra atvika málsins að öðru leyti þykir almenn­ingur eiga af því ríka hags­muni að kynna sér þær upplýsingar sem þar koma fram. Bar því vel­ferð­arráðuneyt­inu að veita kær­anda aðgang að því á grund­velli meg­in­reglu 1. mgr. 5. gr. upplýsinga­laga.“ 

Ráðherra endurskoðaði eigin niðurstöðu 

Nýlega end­ur­skoð­aði vel­ferð­ar­ráðu­neytið fyrri nið­ur­stöðu sína um að Bragi Guð­brands­son hefði farið út fyrir verk­svið sitt í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu svo­kall­aða. Samkvæmt nýrri nið­ur­stöðu Ásmundar Einars Daða­sonar, félags og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, sem ráðu­neyt­is­stjóri og skrif­stofu­stjóri und­ir­rita fyrir hans hönd, voru starfs­hættir Braga í sam­ræmi við stjórn­sýslu­lög. 

Ráðherra hefur sætt gagn­rýni fyrir að hafa ekki sagt sig frá mál­inu þegar kvörtun barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar undan vinnu­brögðum Braga Guð­brands­sonar var tekin til með­ferðar að nýju, enda kunni fyrri aðkoma hans og und­ir­manna hans að vekja efa­semdir um hvort end­ur­skoð­unin hafi farið fram á hlut­lægum for­sendum og að rýra til­trú máls­að­ila, sem og almenn­ings, á því að sú hafi verið raunin. 

Í þessu sam­hengi hefur meðal ann­ars verið bent á að í apríl síð­ast­liðnum var Ásmundur Einar stað­inn að því að hafa haldið því leyndu fyrir vel­ferð­ar­nefnd Alþingis að Bragi hefði verið snupraður af ráðu­neyt­inu fyrir að hafa farið út fyrir verk­svið sitt í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu. Þá kom í ljós að Ásmundur hafði ekki upp­lýst rík­is­stjórn­ina um málið þegar Bragi Guð­brands­son var boð­inn fram til barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna þann 23. febr­úar. 

Skömmu áður, þann 16. febr­úar, hafði Ásmundur Einar samið við Braga um að hann yrði áfram á fullum for­stjóra­launum, fyrst hjá Barna­vernd­ar­stofu og svo hjá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, meðan hann sinnti stör­f­unum fyrir barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna og yrði jafn­framt sér­stakur ráð­gjafi og tæki að sér ein­stök verk­efni í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu. Ásmundur studdi fram­boðið ein­dregið, fór lof­sam­legum orðum um Braga og lagði áherslu á það í umræðu um Hafn­ar­fjarð­ar­málið að öll mál ættu sér fleiri en eina hlið. Loks vakti athygli í sumar þegar Ásmundur Einar lækaði færslu á Facebook um öfund­sjúka og eig­in­gjarna barna­vernd­ar­starfs­menn þar sem ýjað var að því að ann­ar­legar hvatir lægju að baki kvört­unum undan störfum Braga. 

Ofan á þetta bæt­ist það sem nú liggur fyrir, að ráðu­neyti Ásmundar Einars Daða­sonar braut gegn lög­bund­inni upp­lýs­inga­skyldu sinni þegar tekin var ákvörðun um að synja Stund­inni um aðgang að minn­is­blaði um kvart­anir barna­vernd­ar­nefnd­anna undan vinnu­brögðum Braga. Rök­studdi ráðu­neytið synj­un­ina meðal ann­ars með því að vísa til rétt­inda og verndar Braga sem opin­bers starfs­manns. Þær rök­semdir stand­ast ekki skoðun að mati úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál. 

„Umfangsmiklar upplýsingar um atvik máls“

Úrskurð­ar­nefndin kvað upp úrskurð sinn þann 28. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur ekki afhent Stund­inni skjalið þegar þetta er ritað. 

Við með­ferð máls­ins hjá úrskurð­ar­nefnd­inni vís­aði vel­ferð­ar­ráðu­neytið ann­ars vegar til þess að umbeðið skjal væri vinnu­gagn, sbr. tölul. 6. gr. upp­lýs­inga­laga, og því und­an­þegið upp­lýs­inga­rétti almenn­ings, og hins vegar til 1. mgr. 7. gr. upp­lýs­inga­laga um að upp­lýs­inga­réttur um mál­efni opin­berra starfs­manna tæki ekki til „gagna í málum sem varða umsóknir um starf, fram­gang í starfi eða starfs­sam­bandið að öðru leyti“. Úrskurð­ar­nefndin taldi ljóst að umbeðin gögn lytu ekki að starfs­sam­bandi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu við stofn­un­ina í skiln­ingi 1. mgr. 7. gr. upp­lýs­inga­laga, enda væri þar ekki að finna upp­lýs­ingar um stjórn­valds­á­kvörðun í máli sem varðar Braga í skiln­ingi 2. mgr. 1. gr. stjórn­sýslu­laga. 

Stundin byggði meðal ann­ars á því í kærunni til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar að sam­kvæmt 3. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga ber stjórn­völdum að afhenda umbeðin vinnu­gögn ef þar kemur fram end­an­leg ákvörðun um afgreiðslu máls eða upp­lýs­ingar um atvik máls sem ekki komi ann­ars staðar fram. Féllst úrskurð­ar­nefndin á að í minn­is­blað­inu kæmu fram grund­vall­ar­upp­lýs­ingar um máls­at­vik sem ekki hefðu komið fram í bréfum sem birt voru opin­ber­lega og sögð hin form­lega nið­ur­staða kvört­un­ar­mál­anna. Fyrir vikið hefði ráðu­neyt­inu borið að afhenda blaða­manni skjalið. 

„Eins og hér háttar til er það mat úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál að minn­is­blaðið hafi því að geyma umfangs­miklar upp­lýs­ingar um atvik máls sem ekki koma ann­ars staðar fram, sbr. 3. tölul. 3. mgr. 8. gr. upp­lýs­inga­laga,“ segir í úrskurð­inum. 

„Í skýringum við ákvæðið í frum­varpi til upplýsinga­laga segir að með þessu orða­lagi sé einkum vísað til upplýsinga um mik­il­vægar stað­reyndir máls sem af ein­hverjum ástæðum sé ekki að finna ann­ars staðar, en kunni að hafa haft áhrif á ákvörðun­artöku. Rökin að baki þess­ari reglu séu einkum þau að slíkar upplýsingar geti verið ómissandi til skýringar á ákvörðun og af þeim orsökum sé ekki rétt að und­an­þiggja þær aðgangi almenn­ings enda þótt þær sé aðeins að finna í vinnu­skjölum. Úrskurð­ar­nefnd um upplýsingamál tekur fram að þessi lýsing á að öllu leyti við um efni minn­is­blaðs skrif­stofu félags­þjónustu í vel­ferð­arráðuneyt­inu til ráðherra, dags. 18. janúar 2018.“ 

Úrskurð­ar­nefndin telur því ljóst að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefði átt að veita Stund­inni aðgang að minn­is­blað­inu á grund­velli meg­in­reglu 1. mgr. 5. gr. upp­lýs­inga­laga að frá­tölum þeim hluta minn­is­blaðs­ins sem ber yfir­skrift­ina „Tillögur að úrbótum til lengri og skemmri tíma“, enda væri þar að finna umfjöllun sem féll að öllu leyti undir vinnu­gagna­hug­takið. 

Beint til ráðuneytisins að endurskoða vinnubrögð sín

Fram kemur að sömu sjón­ar­mið gildi þó ekki að öllu leyti um annað minn­is­blað ráðu­neyt­is­ins til ráð­herra sem er dag­sett 6. febr­úar 2018 og varðar ein­vörð­ungu Hafn­ar­fjarð­ar­málið svo­kall­aða. Þetta minn­is­blað hafi ekki haft að geyma umfangs­miklar upp­lýs­ingar um máls­at­vik sem ekki komu fram í end­an­legri nið­ur­stöðu máls­ins. Fyrir vikið hafi ráðu­neyt­inu verið heim­iltað synja um aðgang að því. 

Úrskurð­ar­nefndin bendir þó á að vel­ferð­ar­ráðu­neytið tók ekki afstöðu til þess hvort Stund­inni yrði veittur auk­inn aðgangur að umbeðnum gögnum, sbr. ákvæði 1. mgr. 11. gr. upplýsinga­laga, eins og skylt er að gera sam­kvæmt 2. mgr. ákvæð­is­ins. „Enda þótt fall­ist sé á það með ráðuneyt­inu að heim­ilt hafi verið að synja beiðni kær­anda um aðgang að minn­is­blað­inu, dags. 6. febrúar 2018, kann því jafn­framt að hafa verið heim­ilt að veita honum aðgang að því á grund­velli sjónar­miða um auk­inn aðgang og mark­miða upplýsing­aréttar almenn­ings, sbr. 1. gr. upplýsinga­laga. Því er beint til ráðuneyt­is­ins að taka afstöðu til þessa atriðis við með­ferð beiðna um aðgang að upplýsingum sam­kvæmt lögunum í framtíðinni.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár