Starfshópur um traust á stjórnmálum leggur til yfirhalningu á hagsmunaskráningu og aukið gagnsæi

Setja ætti reglur um lobbýista, auka gagnsæi í samskiptum þeirra við kjörna fulltrúa og tryggja að hagsmuna­skráning ráðherra nái yfir skuldir þeirra, maka og ólögráða börn, samkvæmt tillögum starfs­hóps um traust á stjórn­málum. Lagt er til að Siðfræði­stofnun fái hlutverk ráðgjafa ríkis­stjórnarinnar.

Skipaði sérstakan starfshóp til að efla traust á stjórnmálum
Skipaði sér­stakan starfs­hóp til að efla traust á stjórn­málum Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, skip­aði starfs­hóp 5. jan­úar til að fjalla um hvaða þættir hafa áhrif á traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu og hvernig hægt sé að vinna mark­visst að því að auka það. Mynd: Alþingi

Sérstakur starfs­hópur sem skipaður var af forsætis­ráðherra til að efla traust á stjórn­málum skilaði skýrslu sinni í dag. Í henni er meðal annars mælst til þess að Siðfræði­stofnun Háskóla Íslands fái aukið fjármagn og sé tíma­bundið falið sérstakt ráðgjafa­hlutverk fyrir stjórn­völd þegar kemur að álita­málum. Mælt er með því að sú breyting verði gerð að Kirkjuráð og Guðfræði- og trúarbragða­deild Háskóla Íslands skipi ekki lengur fulltrúa í stofnunina.

Jón Ólafsson for­maður starfs­hóps­insFor­sæt­is­ráð­herra skip­aði sér­stakan starfs­hóp til að efla traust á stjórn­málum. Jón Ólafsson er for­maður hóps­ins, en hann skipa meðal ananrs Ragna Árna­dóttir, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra.

Starfs­hópur um eflingu trausts á stjórn­málum og stjórn­sýslu var skipaður 5. janúar, en í skýrslu hennar eru lagðar fram 25 tillögur í níu liðum. Flestar tillögurnar þarfnast ekki laga­breytinga, aðeins vilja stjórn­valda til að framkvæma þær.

Jón Ólafsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands og stjórn­ar­maður Gagn­sæ­is, var skipaður formaður hópsins, en aðrir meðlimir hópsins voru Ólöf Embla Eyjólfs­dóttir, MSt í heimspeki, Páll Þórhallsson, skrif­stofustjóri í forsætis­ráðuneyti, Ragna Árna­dóttir, lögfræðingur og fyrr­verandi dómsmála­ráðherra, og Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri.

Skýrslan var kynnt í Safna­húsinu í dag, en lesa má skýrsluna hér. 

Vantraust tilkomið vegna efnahagshrunsins

Tilgangur skýrslunnar er ekki að endur­heimta glatað traust á stjórn­málum með beinum hætti, heldur að leita að leiðum til þess að „bæta samskipti við almenning í ljósi breyttra viðhorfa og aukins næmis hins almenna borgara gagnvart stjórn­málum og stjórn­sýslu.“

Starfs­hópurinn rekur vantraust á stjórn­málum að miklu leyti til efnahags­hrunsins og segir í skýrslunni að tortryggni hafi skapast í garð stjórn­málamanna þegar almenningur taldi stjórn­völd hafa brugðist sér og skilið Ísland eftir berskjaldað frammi fyrir alþjóðlegri fjármála­kreppu.

„Vantraust af þessu tagi getur haft afdrifa­ríkar afleiðingar. Þær geta birst í að stefnu­mótun ríkis­valdsins nýtur ekki trausts og er jafnvel ekki tekin alvarlega. Það getur líka haft þau áhrif að draga úr virðingu við lög og reglur. Ef sú skoðun er algeng að reglur séu iðulega settar til að þjóna sérhagsmunum, og sú upplifun að umdeildar ákvarðanir séu ólögmætar er viðvarandi hluti af afstöðu borg­aranna til ríkis­valdsins, eiga samskipti stjórn­valda og borg­aranna undir högg að sækja.“

Gagnsæi og aðgengi upplýsinga

Mikil áhersla er lögð á að auka gagnsæi og tryggja gott aðgengi almennings og fjölmiðla að upplýsingum til að vinna upp traust, en skýrslan telur það hafa verið ábótavant á Íslandi. Máls­meðferðar­tími er lengri en í nágranna­ríkjum okkar og telur nefndin það vinna gegn trausti.

„Ein hlið vantrausts í íslenskum stjórn­málum birtist í algengum kvörtunum fjölmiðla og einstaklinga vegna erfið­leika við að fá upplýsingar sem óskað er eftir frá ráðuneytum og öðrum opinberum stofnunum, Alþingi þar með töldu. Þetta vantraust getur leitt til þess að jafnvel þótt stofnanir veiti á endanum upplýsingar sem óskað er eftir skapast samt grun­semdir um að ekki sé öll sagan sögð og að mikil­vægum upplýsingum sé haldið eftir. Það skiptir því miklu máli hvernig upplýsingar eru veittar. Ef þær fást greiðlega og án óútskýrðra tafa er líklegra að viðtak­endur treysti þeim og telji sér vel þjónað. Séu þær veittar seint og illa eða með hangandi hendi er hætta á að beiðandinn fyllist tortryggni og efasemdum.“

Stjórn­endur geta rofið víta­hring van­traustsÍ skýrsl­unni er þess getið að æðstu stjórn­endur lands­ins gegna lyk­il­hlut­verki í að koma land­inu úr víta­hring van­trausts. Skýrar yfir­lýs­ingar til almenn­ings og starfs­manna um betri upp­lýs­inga­gjöf geta verið liður í því.

Í skýrslunni segir að það sé óumflýjanlegt að umdeildar ákvarðanir séu teknar á Alþingi sem fjallað verður um á óvæginn hátt af almenningi og fjöl­miðlum.

„Slíkt er hins vegar ekki uppspretta vantrausts ef gætt er að því að fylgja þeim ramma sem annars vegar tryggir að almenningur hafi aðgang að öllum lykil­upplýsingum og hins vegar að starfað sé í anda grundvallar­reglna sem gera almenningi kleift að trúa því að hagsmunir hans séu hafðir í fyrirrúmi – og stjórn­völd ráði við verkefni sín.“

Nefndin segir að einn hornsteinn trausts á stjórn­völdum: „birtist í því að almenningur býst ekki við því að þekkingu sem stjórn­völd hafa umfram borgarana sé haldið frá borgurunum eða hún jafnvel misnotuð með þeim hætti sem gerðist í aðdrag­anda hrunsins.“ Því skapi gjaf­mildari upplýsinga­gjöf traust.

Viðbrögð stjórnmála­fólks við spurningum almennings og fjölmiðla hafa oft grafið undan trausti almennings að mati starfs­hópsins. Í skýrslunni er tekið fram að: „Leiðandi einstaklingar í stjórn­málum og stjórn­sýslu geta ekki leyft sér að hrökkva í vörn þegar að þeim er sótt og þurfa að hafa í huga að viðbrögð þeirra eru fordæmis­gefandi.“

Starfskipti frá hinu opinbera háð biðtíma

Starfs­hópurinn telur að mikilvægt sé að styrkja hagsmuna­skráningu þannig að hún nái til dæmis utan um maka ráðherra og skuldir, og að siða­reglur þingmanna, ráðherra, ríkis­starfsmanna og starfs­fólks stjórn­sýslu séu endur­skoðaðar og uppfærðar. Einnig leggur hópurinn til þess að skýrar reglur verði settar um samskipti hagsmuna­aðila við embættis­menn, ráðherra, og aðstoðar­menn þeirra, meðal annars í gegnum hagsmuna­verði (e. „lobbyist“).

„Jafnframt þarf að koma á fót skyldu­bundinni skráningu yfir hagsmuna­verði og aðra sem leitast við að hafa áhrif á stefnu­mótun og laga­setningu með skipulegum hætti, sem og þá hagsmuna­aðila sem þeir starfi fyrir.“

Þannig gagnrýndi Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, fyrr­verandi sjávar­útvegs­ráðherra, til dæmis að lobbýistar völsuðu um ráðuneyti „eins og læknar á stofu­gangi“, í nýlegu viðtali við Kjarnann. „Það á ekki að vera þannig að hags­munaðilar í tilteknum atvinnu­greinum geti valsað um ráðuneytin eins og þeir séu læknar á stofu­gangi.“

Ein af róttækari tillögum starfs­hópsins felst í því að takmarka flutning einstaklinga sem hafa starfað fyrir hið opinbera yfir í einka­geirann. Lagt er til að settar verði reglur um lágmarks biðtíma (e. „cooling-off period“) áður en einstaklingar geta tekið að sér hagsmuna­vörslu eftir að hafa starfað fyrir hið opinbera eða setið á þingi.

„Áhersla er lögð á að þeir láti hagsmuna­aðilum einungis í té leyfilegar upplýsingar og misnoti ekki trúnaðar­upplýsingar“

„Áhersla er lögð á að þeir láti hagsmuna­aðilum einungis í té leyfilegar upplýsingar og misnoti ekki trúnaðar­upplýsingar, skýri frá eigin hagsmunum þar sem við á og forðist hagsmuna­árekstra. [...] Eðlilegt er að slíkar reglur taki að einhverju marki mið af þeim mála­flokkum sem viðkomandi hafði áður á sínu forræði. Eðli málsins samkvæmt þurfa slíkar reglur að ná til sjálf­stæðra ráðgjafa­starfa jafnt sem launþega­starfa.“

Starfs­hópurinn leggur einnig til að þetta nái yfir einstaklinga sem hafa verið í lykil­stöðum í einka­geiranum og hefja störf fyrir hið opinbera. Í Noregi til dæmis gilda lög frá 2015 sem geta bannað einstaklingi til að hefja störf á nýjum vettvangi í allt að sex mánuði, eða tólf ef það starf tengist vettvangi sem hann starfaði áður við fyrir hið opinbera.

Endurskipulagning Siðfræðistofnunar

Í lok skýrslunnar er lagt til þess að stjórn­völd þurfi að móta með skýrari hætti: „þá stefnu sem þau vilja miðla til almennings um hvernig tryggja megi að heilindi ríki í stjórn­málum og stjórn­sýslu. Slík stefna er nauðsynlegt skilyrði þess að traust geti ríkt á milli stjórn­valda og almennings.“ Tryggja þarf sterkara eftirlit, eftir­fylgni, og ráðgjöf.

„Það má hugsa sér þrjár ólíkar leiðir til þess. Í fyrsta lagi gæti forsætis­ráðuneytið haft þetta hlutverk og ráðið starfs­fólk sem hefur kunnáttu og faglega þekkingu til að veita sérhæfða ráðgjöf um heilindaramma og um siðferðileg álitamál. Ráðuneytið hefur í raun haft þetta hlutverk undan­farin ár, þótt engir starfs­menn hafi sérstak­lega verið ráðnir til að sinna því. Í öðru lagi mætti hugsa sér að skipað væri sérstakt ráð eða nefnd – Landsiðaráð – með utan­aðkomandi aðilum sem gæti fjallað um og rýnt siðferðileg úrlausnar­efni, að beiðni stjórn­valda eða eigin frumkvæði. Í þriðja lagi mætti hugsa sér að utan­aðkomandi stofnun sem nýtur trausts og er óháð stjórn­sýslunni verði falið að vera stjórn­völdum til ráðgjafar um mótun heilindaramma og um einstök álitamál. Kostnaður fylgir að sjálfsögðu í öllum tilfellum. Ef utan­aðkomandi stofnun er falið þetta hlutverk þarf að sjá til þess líka að slíkt starf væri fjár­magnað með fullnægjandi hætti.“

Eins og fyrr kom fram leggur hópurinn til að stjórn­völd geri samning við Siðfræði­stofnun Háskóla Íslands til þriggja til fimm ára eða lengur til að veita stjórn­völdum ráðgjöf í úrlausn siðferðilegra álitamála, og „efla gagnrýna umræðu um siðferði í stjórn­málum og stjórn­sýslu.“

Sérstak­lega er lagt til þess að endur­skipuleggja Siðfræði­stofnun til þess að hún sé í stakk búin til að sinna þessu nýja hlutverki með því að fela Kirkju­ráði og Guðfræði- og trúarbragða­deild ekki lengur að taka þátt í að skipa fulltrúa í stofnunina. Eðlilegra væri að mati starfs­hópsins „að fjögur svið Háskóla Íslands (Hugvísinda­svið, Mennta­vísindasvið, Félags­vísindasvið og Heilbrigðis­vísindasvið) skipuðu hvert sinn fulltrúann, en formaður væri skipaður af námsbraut í heimspeki.“

Skipun Siðfræði­stofnunnar til að sinna þessu hlutverki er talið mikilvægt af starfs­hópnum til að styðja nauðsyn­lega eftir­fylgni með tillögum skýrslunnar.

„Það eru margir kostir við að taka þetta hlutverk út úr stjórn­sýslunni að minnsta kosti tíma­bundið á meðan verið er að byggja upp þá starfs­hætti sem ætlunin er að festa í sessi. Til þess að annast ráðgjöf frá degi til dags, svara fyrir­spurnum um álitamál og aðstoða ráðherra og embættis­menn við úrlausn mála þar sem siðferðilegar spurningar koma upp væri þó eðlilegt að hafa innri ráðgjafahóp um opinber heilindi (í henni gætu t.d. setið fulltrúi Siðfræði­stofnunar og tveir fulltrúar úr stjórn­sýslunni). Slíkur ráðgjafa­hópur, sem nauðsynlegt er að hægt sé að leita til í trúnaði, er mikil­vægur liður í því verkefni að auka sjálfs­skoðun og framsýni stjórn­málamanna og embættis­manna sem þá hefðu gott tækifæri til að ígrunda ákvarðanir og viðbrögð sem orkað geta tvímælis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár