Formaður EES-hóps ráðuneytisins hefur talað fyrir nýjum samningi

„Óska­staða Íslend­inga“ væri nýr EES samn­ingur með Bretum og Sviss­lend­ingum, segir Björn Bjarna­son. Utan­rík­is­ráð­herra hefur skipað hann for­mann starfs­hóps sem mun vinna skýrslu um EES samn­ing­inn.

Formaður EES-hóps ráðuneytisins hefur talað fyrir nýjum samningi

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og alþing­is­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verður for­maður starfs­hóps sem vinna á skýrslu um aðild Íslands að samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið.

Björn var í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Alþýðu­flokks þegar samn­ing­ur­inn tók gildi 1994. Í febr­úar skrif­aði hann á heima­síðu sína um mögu­leik­ann á nýjum samn­ingi, verði af útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. „Óska­nið­ur­staða Íslend­inga í Brexit-við­ræð­unum er aðild Breta að EFTA og nýr EES-samn­ingur með aðild Breta og Sviss­lend­inga,“ skrif­aði Björn. „Fyrir þessu ein­falda og skýra mark­miði ættu íslensk stjórn­völd að beita sér.“

Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu kemur fram að Björn beri almenna ábyrgð á skipu­lagi verk­efn­is­ins og sé tals­maður hóps­ins gagn­vart stjórn­völdum. Auk hans sitja í hópnum þær Kristrún Heim­is­dóttir, lög­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, og Bergþóra Hall­dórs­dóttir, lög­fræð­ingur hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins og erind­reki um sam­starf atvinnu­lífs­ins og utan­rík­is­þjón­ust­unnar.

Með skýrsl­unni vill ráðu­neytið koma til móts við beiðni frá hópi þing­manna um skýrslu utan­rík­is­ráð­herra um kosti og galla aðildar Íslands að EES-samn­ingnum sem sam­þykkt var á Alþingi fyrr á þessu ári. Starfs­hóp­ur­inn hefur 12 mán­uði til að skila skýrsl­unni og skal leita til helstu sér­fræð­inga og fræði­manna í mála­flokknum við vinnslu hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Evrópumál

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár