„Hefði hún verið með hníf hefði hún mögulega stungið mig“

Sema Erla Serdar segir Margréti Frið­riks­dóttur hafa ráð­ist á sig vegna skoð­anna sinna. Sema segir Margréti hafi verið í miklu ójafn­vægi, hótað sér líf­láti og ráð­ist á sig. Það verði kært til lög­reglu.

„Hefði hún verið með hníf hefði hún mögulega stungið mig“
Semu brugðið Sema Erla spyr hvort við séum í alvöru komin á þann stað að eðli­legt þyki að berja fólk sem ekki hafi sömu lífs­skoð­anir og maður sjálfur. Mynd: hordur sveinsson

Sema Erla Serdar hyggst kæra Margréti Frið­riks­dóttur fyrir lík­ams­árás og líf­láts­hót­anir, auk þess sem hún hyggst kanna hvort grund­völlur sé fyrir að kæra Margréti fyrir hat­urs­glæp. Sema á pant­aðan fund hjá lög­reglu næst­kom­andi mánu­dag í þessu skyni. Í sam­tali við Stundina segir Sema að henni hafi verið brugðið við árás Mar­grétar enda hafi hún aug­ljós­lega verið í miklu and­legu ójafn­vægi. „Hefði hún verið með hníf hefði hún mögu­lega stungið mig“ segir Sema.

Sema birti í gær færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún lýsir því hvernig Margrét hefði hótað því í vitna við­ur­vist að verða henni að bana og hvernig Margrét hefði setið fyrir henni fyrir utan bar á Grens­ás­vegi.

„Ég var varla komin út úr bílnum þegar Margrét réðst að mér með sví­virð­ingum sem ekki er hægt að hafa eftir,“ segir Sema og lýsir því hvernig Margrét hafi verið mjög ögrandi í orð­færi og fram­komu. Vinur Mar­grétar hafi reynt að stilla hana og haldið henni frá Semu en Margrét hafi náð að slíta sig lausa og hafi kýlt í öxl­ina á Semu. „Ég sé augna­ráðið ennþá fyrir mér, það var eitur í aug­unum á henni. Hefði hún verið með hníf hefði hún mögu­lega stungið mig, ég sá það bara á henni. Ég veit ekki hvort þetta end­ur­tekur sig eða ekki svo auð­vitað verð ég að fara til lög­regl­unnar og kæra þetta. Hvað ger­ist næst, mætir hún næst í vinn­una hjá mér eða kemur hún heim til mín? Hún ítrekað til­kynnti að hún ætl­aði að drepa mig, bæði við aðra og hún æpti þetta á mig.“

Sema segir full­kom­lega ljóst í sínum huga að Margrét hafi ráð­ist á sig vegna skoð­ana sinna. Sema er einn stofn­andi Solaris, hjálp­ar­sam­taka fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, og hefur árum saman talað fyrir rétt­indum flótta­fólks og gegn mann­rétt­inda­brotum, meðal ann­ars Ísraela gegn Palest­ínu­mönnum. Margrét hefur hins vegar talað á mjög gagn­rýnan hátt um hæl­is­leit­endur og inn­flytj­endur á Íslandi og hefur til að mynda ítrekað lýst yfir andúð sinni á múslimum. Sema segir að hún skilji ekki hvað Margréti gangi til, hún þekki hana ekk­ert og hafi ekki átt sam­skipti við hana frá því að þær voru báðar í sama útvarps­þætt­inum árið 2016. „Ástæðan er sú að hún fyr­ir­lítur mig og það sem ég stend fyrir. Hún er að ráð­ast á mig vegna þess hver ég er, það er ljóst. Hún hefur ítrekað kallað mig gyð­inga­hat­ara og öðrum nöfnum á net­inu. Ég mun benda á þetta þegar ég legg fram kæruna. Erum við í alvöru komin á þennan stað, á að berja fólk sem ekki hefur sömu lífs­skoð­anir? Það er ofboðs­lega hættu­leg þróun.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár