Hannes birtir hrunskýrslu: Erlendir aðilar ollu hruninu

Hannes Hólm­steinn birti í dag skýrslu um hrunið á vef hug­veitu evr­ópskra íhalds­manna. Skýrsla um sama mál­efni fyrir fjár­mála­ráðu­neytið hefur ekki verið birt og er þremur árum á eftir áætlun. „Alls ekki sama skýrslan,“ segir Hannes, sem dregur þá ályktun að erlendir aðilar hafi orsakað banka­hrunið.

Hannes birtir hrunskýrslu: Erlendir aðilar ollu hruninu
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son Rit Hannesar fjallar að miklu leyti um það sama og skýrsla hans fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og byggir að hluta á sömu rann­sóknum, að hans sögn.

Samstaða evr­ópskra seðla­banka­stjóra, áhuga­leysi Banda­ríkj­anna og ákvarð­anir breskra stjórn­valda voru nauð­syn­leg skil­yrði fyrir því að banka­hrun varð á Íslandi 2008. Þetta er nið­ur­staða Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar, pró­fess­ors í stjórn­mála­fræði, í riti hans „Lessons for Europe from the 2008 Icelandic bank collapse“, sem Hannes gaf út á vegum evr­ópskrar hug­veitu íhalds­manna í dag.

Skýrslu Hannesar og Félags­vís­inda­stofn­unar um erlenda áhrifa­þætti banka­hruns­ins hefur verið beðið í þrjú ár, en áætluð skil voru sum­arið 2015. Samn­ingur við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið um skýrslu­skrifin hljóðar upp á 10 millj­ónir króna.

„Hún er alls ekki sama skýrslan og fyrir fjár­mála­ráðu­neytið, enda hafði ég frjáls­ari hendur um að láta í ljós eigin skoð­anir í þess­ari skýrslu.“

„Hún er alls ekki sama skýrslan og fyrir fjár­mála­ráðu­neytið, enda hafði ég frjáls­ari hendur um að láta í ljós eigin skoð­anir í þess­ari skýrslu, en hún hvílir auð­vitað að nokkru leyti á sömu rann­sóknum,“ segir Hannes. „Skýrslan er frá því í árs­lok 2017, þótt hún hafi ekki verið sett á netið fyrr en nú.“

Rannsóknarskýrslan ófullnægjandi

Í nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar segir Hannes að ákvarð­anir erlendra aðila hafi verið skil­yrði fyrir banka­hrun­inu. „Helsta nið­ur­staða þess­arar skýrslu er að útskýr­ingin á íslenska banka­hrun­inu 2008 sem kemur fram í skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis 2010 sé ekki beint röng, en ófull­nægj­andi,“ skrifar Hannes í þýð­ingu blaða­manns. „Það er satt, það sem Rann­sókn­ar­nefndin sá, að íslensku bank­arnir uxu of hratt og langt umfram það sem Seðla­bank­inn og rík­is­sjóður gætu stutt gegn áfalli. En þrátt fyrir stærð bank­anna hafi verið nauð­syn­legt skil­yrði fyrir hruni banka­kerf­is­ins, þá dugir það eitt ekki til. Íslenska banka­kerfið var vissu­lega við­kvæmt, en eitt­hvað þurfti að ger­ast til að það hryndi í heild sinni. Það var alþjóð­lega fjár­málakreppan, en enn­fremur voru það ákvarð­anir sem teknar voru erlendis.

Samstaða mynd­að­ist meðal evr­ópskra seðla­banka­stjóra vorið 2008 að ekki ætti að veita íslenskum bönkum sama stuðn­ing og öðrum innan EES. Banda­ríkin, áður helsti banda­maður Íslands, höfðu misst áhuga á land­inu og gerðu ekk­ert til að hjálpa henni [sic] á hættu­stund, sum­arið og haustið 2008. Í októ­ber 2008 lok­aði breska rík­is­stjórn Verka­manna­flokks­ins tveimur breskum bönkum í eigu íslenskra banka, Herita­ble og KSF, á sama tíma og hún bauð öllum öðrum breskum bönkum björg­un­ar­pakka upp á 500 millj­arða punda. Afleið­ingin var að ákvæði í lána­samn­ingum voru virkjuð svo að móð­ur­fé­lag KSF, Kaupþing, féll síð­astur íslenskra banka. Til að bæta gráu ofan á svart, þá not­aði Verka­manna­flokks-stjórnin einnig hryðju­verka­lög að óþörfu gegn Íslandi - NATO-banda­manni sem er ekki einu sinni með eigin her - ekki aðeins gegn Lands­bank­anum, heldur einnig íslenskum stjórn­völdum.“

Davíð missti traust vegna Jóns Ásgeirs

Í rit­inu eru langir kaflar um það traust og þá virð­ingu sem Davíð Oddsson, nú rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, naut á sínum stjórn­mála­ferli. Fjöl­miðla­á­róðri Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar við­skipta­manns hafi verið um að kenna að ekki var hlustað á Davíð árið 2008.

„Óvild sem leið­togar Sam­fylk­ing­ar­innar sýndu Davíð bæði fyrir hrun og á meðan því stóð er varla hægt að útskýra ein­göngu með gömlum átaka­línum í stjórn­málum, sem eru venju­lega settar til hliðar á meðan á neyð­ar­á­standi stendur,“ skrifar Hannes. „Að ein­hverju leyti gæti hún hafa stafað af fjöl­miðla­á­róðr­inum gegn hans mann­orði.“

Stór hluti af rit­inu er til varnar Davíðs og hans verkum í hrun­inu. „Gagnvart útlend­ingum hlýtur það að vera ráð­gáta af hverju varn­ar­orð seðla­banka­stjór­ans Davíðs Odds­sonar féllu fyrir daufum eyrum á Íslandi. Áður, sem stjórn­mála­leið­togi, hafði Davíð notið áður óþekkts stuðn­ings og trausts,“ skrifar Hannes. „Venju­lega væri komið fram við mann­eskju með svo góðan feril af virð­ingu, ekki aðeins af öðrum Sjálf­stæð­is­mönnum, heldur einnig stuðn­ings­mönnum ann­arra flokka.“

Birt á hugveitu sem er nátengd Evrópuflokki Sjálfstæðisflokksins

Rit Hannesar er gefið út af New Direction, hug­veitu evr­ópskra íhalds­manna. Margaret Thatcher, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, var vernd­ari hug­veit­unnar við stofnun hennar. New Direction er nátengd ACRE, flokki íhalds­samra Evr­ópu­sam­bandsand­stæð­inga á Evr­ópu­þing­inu, sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á aðild að ásamt Rétt­lætis- og þró­un­ar­flokki Recep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­for­seta, Sönnum Finnum og breska Íhalds­flokknum meðal ann­arra.

Hannes hefur gefið út tvö önnur rit hjá hug­veit­unni, eitt um and-komm­ún­ískar bók­menntir og annað um hvernig eign­ar­rétt­ur­inn stuðlar að verndun umhverf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálahrunið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár