„Ég borða til að lifa, ég lifi ekki til að borða“

Mynd­listar- og tón­list­ar­konan Katrín Helga Andr­és­dóttir gengur undir lista­manns­nafn­inu Special-K, enda skipar morg­un­korn stóran sess í matar­æði hennar. Hún segir hér frá nokkrum réttum úr lífi sínu.

„Ég borða til að lifa, ég lifi ekki til að borða“
Katrín Helga Andr­és­dóttir kemur iðu­lega fram sem alter ego sitt, Special-K, og með hljóm­sveit­inni Kriki, en þessar sveitir eiga sam­eig­in­lega tón­leika 14. ágúst á Húrra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þótt Katrín Helga elski að borða góðan mat er mikil matar-lág­menn­ing í lífi hennar. „Matur er ekki í fyrsta sæt­inu í lífi mínu,“ segir hún. „Ég er svo oft á hlaupum og þönum að ég enda oft á því að borða morg­un­korn í öll mál. Ég borða til að lifa, ég lifi ekki til að borða.“

Með dálæti á morgunkorni

Stundum borðar Katrín Helga morg­un­korn kvölds og morgna, en þá iðu­lega með AB-mjólk. „,Ég borða AB-mjólk með múslí, Special K, Cheerios og alls konar morg­un­korni.

Ég er græn­metisæta og hef verið vegan á tíma­bilum; ég er það af og til, og þá finnst mér langerf­ið­ast að sleppa AB mjólk­inni. Það er ekk­ert mál að sleppa ostum. Ég hef verið að kaupa alls konar plöntu­mjólk sem mér finnst góð, en það er eitt­hvað við þessa jógúrtá­ferð í AB mjólk­inni sem er ómót­stæði­leg fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Líf mitt í fimm réttum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár