Þegjandi samþykki þingmanna fyrir hátíðarræðu Piu Kjærsgaard

Bregða þurfti út af þing­sköpum til þess að heim­ila Piu Kjærs­gaard að halda hátíð­ar­ræðu á þing­fundi Alþingis á Þing­völlum í dag. Enginn þing­manna gerði athuga­semd við afbrigðin frá þing­sköpum en í dag hafa Píratar til­kynnt að þeir muni ekki taka þátt í hátíð­ar­þing­fund­inum.

Þegjandi samþykki þingmanna fyrir hátíðarræðu Piu Kjærsgaard
Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins.

Þingmenn þurftu að sam­þykkja á þing­fundi í gær að Piu Kjærs­gaard, þing­for­seta Dana og fyrr­ver­andi for­manni Danska þjóð­ar­flokks­ins, væri heim­ilt að halda hátíð­ar­ræðu á þing­fundi Alþingis á Þing­völlum. Í ljósi þess að Pia er hvorki þing­maður né ráð­herra á Íslandi þurfti að bregða út af þing­sköpum Alþingis til þess að veita henni heim­ild til ræðu­hald­anna.

Þannig segir í 94. gr. laga um þing­sköp Alþingis að eftir upp­á­stungu for­seta eða for­manns þing­flokks má bregða út af þing­sköpum sam­kvæmt lög­unum ef tveir þriðju hlutar þeirra þing­manna, er um það greiða atkvæði, sam­þykkja.

Stein­grímur J. Sig­fús­son flutti til­lög­una í gær. „Enn fremur mun for­seti danska Þjóð­þings­ins sitja fund­inn og ávarpa hann fyrir hönd dönsku þjóð­ar­innar. Ræðan verður þýdd á íslensku. Verður þetta í fyrsta sinn á seinni árum sem erlendur maður ávarpar Alþingi. Forseti og for­sætis­nefnd telur að til­efnið sé að þessu sinni ærið, á þessum hátíð­ar­fundi þings­ins til að minn­ast svo mik­ils­verðs samn­ings milli þjóð­anna.

„Ég vona að engar athuga­semdir séu gerðar við þessar fyr­ir­ætl­anir for­seta,“ sagði Stein­grímur. Þingmenn gerðu engar athuga­semdir og með því sam­þykktu þeir þegj­andi að Pia héldi hátíð­ar­ræðu á þing­fundi.

Píratar láta ekki sjá sig

Þing­flokkur Pírata ætlar að snið­ganga hátíð­ar­fund Alþingis sem fram fer á Þing­völlum í dag. Fram kemur í til­kynn­ingu að ástæðan sé „ófor­svar­an­leg ákvörðun“ um að bjóða Piu Kjærs­gaard að ávarpa Alþingi á Þing­völlum á ald­ar­af­mæli full­veldis Íslend­inga.

„Sú stað­reynd að stofn­andi eins mann­fjand­sam­leg­asta flokks Norð­ur­land­anna sitji sem for­seti danska þings­ins er í sjálfu sér mikið áhyggju­efni. Að utan­þings­manni sem hefur unnið jafn ötul­lega að því að ala á sundr­ungu, útlend­inga­hatri og Pia Kjærs­gaard hefur gert sé boðið heið­ur­sávarp á hátíð­ar­fundi sem sam­eina ætti okkur Íslend­inga, burt­séð frá trú okkar og upp­runa er hneyksli,“ segir meðal ann­ars í til­kynn­ingu Pírata.

Eins og Stundin fjall­aði um í gær er Pia þekkt fyrir útlend­inga­andúð og bar­áttu sína gegn fjöl­menn­ingu og íslam. Árið 2010 kall­aði hún eftir því að stjórn­völd bönn­uðu inn­flytj­endum sem ekki væru af vest­rænum upp­runa að setj­ast í Danmörku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár