Þingmenn fengu Íslendingasögurnar að gjöf „til að geta uppfyllt eftirlitshlutverk sitt“

Björn Leví Gunn­ars­son furðar sig á skýr­ingum afmælis­nefndar á bóka­gjöfum til þing­manna.

Þingmenn fengu Íslendingasögurnar að gjöf „til að geta uppfyllt eftirlitshlutverk sitt“

Þingmenn fengu nýja heild­ar­út­gáfu Íslend­inga­sagn­anna að gjöf frá afmælis­nefnd ald­ar­af­mælis full­veldis Íslands „m.a. til að geta upp­fyllt eft­ir­lits­hlut­verk sitt“.

Einar K. Guð­fins­sonfyrr­ver­andi for­seti Alþingis

Þetta kemur fram í svari Einars K. Guð­fins­sonar, for­manns afmælis­nefnd­ar­innar, til Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, eftir að Björn spurð­ist fyrir um ástæður þess að þing­menn hefðu fengið bæk­urnar að gjöf. Eitt af hlut­verkum afmælis­nefnd­ar­innar var að hafa umsjón með útgáf­unni og samdi hún við Sögu for­lag um útgáf­una. Að því er fram kemur í svar­inu til Björns var verð á Íslend­inga­sög­unum frá útgef­anda 29.900 krónur. Þannig voru bóka­gjaf­irnar til allra 63 þing­mann­anna á Alþingi sam­tals hátt í tveggja millj­óna króna virði. 

Björn gagn­rýnir þetta á Facebook-síðu sinni og hæð­ist að þeirri skýr­ingu að gjöfin sé til að hjálpa þing­mönnum að rækja eft­ir­lits­hlut­verk sitt. 

„Mér dettur í hug mörg ódýr­ari úrræði til þess að ég geti sinnt því hlut­verki. Til dæmis er kveðið á um staf­rænt aðgengi í þings­á­lykt­un­inni: "3. stuðla að heild­ar­út­gáfu Íslend­inga­sagna á afmæl­is­ár­inu svo að fornar bók­menntir Íslend­inga séu jafnan öllum til­tækar, jafnt á bók sem staf­rænu formi; " --- það væri hægt að gera eitt ein­tak aðgengi­legt í bóka­safni þings­ins eða eitt­hvað og láta þing­menn fá staf­rænt ein­tak til þess að rýna í inni­haldið,“ skrifar Björn. „Ekki eins og þing­menn séu endi­lega sér­fræð­ingar á þessu sviði og geti farið í ein­hvers konar próf­arka­lestur á útgef­inni bók sem ein­hvers konar eft­irá eft­ir­lit. Nei, ég þarf ekki 30 þús­und króna bók á borðið hjá mér til þess að sinna mínu eft­ir­lits­hlut­verki. 63 þing­menn þurfa ekki 1.890.000 kr. af almannafé í formi bóka til þess að sinna því hlut­verki heldur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár