Orðalag í nefndaráliti leiddi til þrengri túlkunar á útlendingalögum

Nefnd­ar­á­lit frá þing­mönnum félags­hyggju­flokka og fram­söguræða Nichole Leigh Mosty hafði óvænt áhrif á túlkun kæru­nefndar á ákvæði útlend­inga­laga.

Orðalag í nefndaráliti leiddi til þrengri túlkunar á útlendingalögum
Útlend­inga­lögum breytt í flýti Allir flokkar á Alþingi nema Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stóðu að breyt­ingum á útlend­inga­lögum í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga eftir háværa umræðu um mál­efni ein­stakra barna­fjöl­skyldna. Mynd: Stundin

Kæru­nefnd útlend­inga­mála not­aði ummæli úr nefnd­ar­á­liti, sem lagt var fram þegar útlend­inga­lögum var breytt í þágu barna­fjöl­skyldna í fyrra, sem rétt­læt­ingu fyrir því að þrengja túlk­un­ina á laga­á­kvæði um alþjóð­lega vernd á grund­velli „sér­stakra ástæðna“. 

Af úrskurði kæru­nefndar útlend­inga­mála frá 7. nóv­em­ber 2017 má ráða að skiln­ingur kæru­nefnd­ar­innar á orðum þing­manna í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd hafi haft bein áhrif á afdrif manns á tví­tugs­aldri sem sótti um hæli á Íslandi en fékk umsókn sína ekki tekna til efn­is­með­ferðar. 

Arndís A. K. Gunn­ars­dóttir, lög­fræð­ingur og dokt­or­snemi við Strass­borg­ar­há­skóla, fjallar um þessa breyttu laga­túlkun stjórn­valda í nýlegri grein sem birt­ist í Úlflljóti, tíma­riti laga­nema við Háskóla Íslands. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata sem situr í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd, segir túlk­un­ina frá­leita og úr takti við inn­tak nefnd­ar­á­lits­ins sem hún og aðrir nefnd­ar­menn skil­uðu í fyrra.

Óvænt áhrif nefndarálits

Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. útlend­inga­laga ber stjórn­völdum að taka umsókn til efn­is­með­ferðar ef „sér­stakar ástæður“ mæla með því. Í grein­ar­gerð sem fylgdi frum­varpi til núgild­andi útlend­inga­laga kemur fram að „með sér­stökum ástæðum [sé] vísað til þess að ein­stak­lingar geta verið í við­kvæmri stöðu, svo sem vegna heilsu­fars eða þung­unar eða átt erfitt upp­dráttar í við­töku­landi vegna mis­mun­unar sem við­kom­andi ein­stak­lingur verður fyrir sökum kyn­hneigðar, kyn­þáttar eða kyns“. 

Lengst af var lítið vísað til þess í úrskurðum stjórn­valda að ein­stak­lingur gæti átt „erfitt upp­dráttar í við­töku­landi“ og ekki litið svo á að slíkt væri for­senda þess að hæl­is­leit­andi gæti talist í við­kvæmri stöðu eða for­senda þess að um „sér­stakar ástæður“ væri að ræða. 

Þegar frum­varp um rétt­ar­bætur fyrir barna­fjöl­skyldur sem leita hælis á Íslandi var til með­ferðar á Alþingi í aðdrag­anda þing­kosn­inga 2017 skil­aði meiri­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis áliti þar sem lagt var til að þing­málið yrði sam­þykkt óbreytt. Að nefnd­ar­á­lit­inu stóðu Nichole Leigh Mosty, fram­sögu­maður nefnd­ar­innar í mál­inu, Andrés Ingi Jónsson úr VG, Eygló Harð­ar­dóttir úr Framsókn, Pawel Bartoszek úr Viðreisn og Pírat­arnir Birgitta Jóns­dóttir og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir. 

Lagafrumvarpið fjallaði ekki um sérstakar ástæður

Þótt laga­frum­varpið hafi þjónað afmörk­uðum til­gangi og ekki fjallað um „sér­stakar ástæður“ vék nefnd­ar­meiri­hlut­inn að þýð­ingu sér­stakra ástæðna í álit­inu, eða því sem þau köll­uðu „sér­stakar aðstæður“. 

Í nefnd­ar­á­lit­inu segir orð­rétt: „Með sér­stökum aðstæðum er vísað til þess að ein­stak­lingar geta verið í við­kvæmri stöðu sem leiði til þess að þeir muni eiga erfitt upp­dráttar í við­töku­landi svo sem vegna heilsu­fars, ald­urs, þung­unar eða mis­mun­unar sem við­kom­andi ein­stak­lingur verður fyrir sökum kyn­hneigðar, kyn­þáttar eða kyns, eða fyrri reynslu ein­stak­linga, t.d. fórn­ar­lömb mansals, ofbeldis og pynd­inga“.

Þetta árétt­aði svo Nichole Leigh Mosty, þáver­andi þing­kona Bjartrar fram­tíðar, í fram­sögu­ræðu sinni um nefnd­ar­á­litið og sagði að það ætti „ekki að vera neinn vafi á því hvað átt er við með sér­stakri stöðu“.

Vísa einnig til þingræðu Nichole

Eftir að þing­menn­irnir létu þessi orð frá sér hefur kæru­nefnd útlend­inga­mála tekið upp nýja og þrengri túlkun á ákvæð­inu um sér­stakar ástæður og vísað sér­stak­lega til nefnd­ar­á­lits­ins og ræðu Nichole þessu til grund­vallar.

Mælti fyrir nefnd­ar­á­lit­inuNichole Leigh Mosty sat á þingi fyrir Bjarta fram­tíð í tæpt ár.

„Frá gild­is­töku laga nr. 81/2017 telur kæru­nefnd rétt að líta til þeirra gagna sem urðu til við með­ferð lag­anna á Alþingi er varða túlkun á 2. mgr. 36. gr. laga um útlend­inga. Hér er um að ræða athuga­semdir við frum­varpið, sem samið var að frum­kvæði þing­manna og lagt fram sem þáttur í sam­komu­lagi um þing­lok, álit meiri­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar og fram­sögu­ræðu nefnd­ar­manns sem kynnti álitið við 2. umræðu frum­varps­ins,“ segir í úrskurði kæru­nefndar útlend­inga­mála frá 7. nóv­em­ber 2017. „Þrátt fyrir að þau lög­skýr­ing­ar­gögn teng­ist ekki beint setn­ingu laga um útlend­inga nr. 80/2016 eru þau samt sem áður sett fram í til­efni breyt­inga á inn­taki 2. mgr. 36. gr. lag­anna og því nægi­lega tengd efni máls­grein­ar­innar til að hafa áhrif á túlkun hennar.“

Fram kemur í úrskurð­inum að kæru­nefndin telji ekki skýrt af lög­skýr­ing­ar­gögnum að ávallt beri að taka umsóknir hæl­is­leit­enda í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu til efn­is­með­ferðar. Þegar við­kvæm staða sé talin leiða til þess að hæl­is­leit­endur muni eiga erfitt upp­dráttar í við­töku­landi beri þó að líta svo á að sér­stakar ástæður séu fyrir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár