Helmingur styður ríkisstjórnina – Tæp 44 prósent styðja stjórnarflokkana

Litlar breyt­ingar mæl­ast á fylgi flokka milli kann­ana MMR. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærstur og Sam­fylk­ing þar á eftir. Fylgi Flokks fólks­ins eykst mark­tækt.

Helmingur styður ríkisstjórnina – Tæp 44 prósent styðja stjórnarflokkana
Tapa fylgi Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa tapað 9 pró­sentu­stiga fylgi sam­an­lagt frá síð­ustu kosn­ingum ef marka má nýja könnun MMR og mæl­ast þeir nú með tæp­lega 44 pró­senta stuðn­ing. Þrátt fyrir það seg­ist helm­ingur aðspurðra styðja rík­is­stjórn­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með mestan stuðn­ing stjórn­mála­flokka á lands­vísu og Sam­fylk­ingin er næst stærst sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Litlar breyt­ingar eru á fylgi flokk­anna frá síð­ustu könnun MMR og allar breyt­ingar eru innan vik­marka utan að fylgi Flokks fólks­ins eykst mark­tækt. Helm­ingur aðspurðra styður rík­is­stjórn­ina.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur stuðn­ings 21,6 pró­senta aðspurðra og dregst fylgi hans saman um 2,1 pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun sem birt var fyrir mán­uði síðan. Fylgi flokks­ins nú er  3,6 pró­sentu­stigum lægra en hann fékk upp úr kjör­köss­unum á síð­asta ári.

Fylgi hinna stjórn­ar­flokk­anna breyt­ist lítið frá síð­ustu könnun. Vinstri græn bæta við sig 0,7 pró­sentu­stigum milli kann­ana, mæl­ast nú með 12,7 pró­senta fylgi. Það er 4,2 pró­sentusit­gum lægra en í síð­ustu kosn­ingum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 9,5 pró­senta fylgi, 0,6 pró­sentu­stigum lægra en í síð­ustu könnun. Fylgi flokks­ins hefur sigið um 1,2 pró­sentu­stig frá síð­ustu kosn­ingum. Stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa því sam­an­lagt tapað 9 pró­sentu­stigum frá kosn­ingum ef mark er tak­andi á umræddri könnun. Sam­an­lagt mæl­ast flokk­arnir þrír nú með 43,8 pró­senta stuðn­ing.

Sam­fylk­ingin mælist með mest fylgi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna, 15,1 pró­sent. Það er hálfu pró­sentu­stigi meira en í síð­ustu könnun og þremur pró­setu­stigum meira en flokk­ur­inn hlaut í kosn­ing­unum. Píratar fylgja fast á hæla þeirra, mæl­ast nú með 14,3 pró­senta stuðn­ing sem er 0,2 pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu könnun. Flokk­ur­inn hefur hins vegar bætt veru­lega við sig frá síð­ustu kosn­ingum, þar sem Píratar fengu 9,2 pró­sent atkvæða. Mið­flokk­ur­inn heldur svo sjó, breyt­ingar á fylgi flokks­ins eru litlar. Flokk­ur­inn mælist nú með 10,6 pró­senta stuðn­ing en naut stuðn­ings 9,8 pró­senta aðspurðra í síð­ustu könnun. Flokk­ur­inn hlaut 10,9 pró­sent fylgi í kosn­ing­unum.

Flokkur fólks­ins bætir við sig frá síð­ustu könnun en 8,2 aðspurðra styðja hann nú. Í síð­ustu könnun sögð­ust 5,6 pró­sent aðspurðra styðja flokk­inn og er um mark­tæka breyt­ingu að ræða. Flokk­ur­inn hlaut 6,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum og er fylg­is­aukn­ingin nú innan vik­marka miðað við þau úrslit. Viðreisn missir fylgi og mælist með 5,8 pró­senta stuðn­ing en hafði 7,1 pró­senta stuðn­ing síð­ast. Flokk­ur­inn hlaut 6,7 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum. Aðrir flokkar mæl­ast sam­an­lagt með 2,2 pró­senta fylgi.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er óbreyttur milli kann­ana, 50,1 pró­sent segj­ast styðja hana en voru 49,8 pró­sent síð­ast. Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 12.-18. júní. 925 manns svör­uðu spurn­ingum MMR og gáfu 85,8 pró­sent upp afstöðu sína til stjórn­mála­flokka. Óákveðnir voru 4,1 pró­sent, 4,5 pró­sent sögð­ust myndu skila auðu, 2,3 pró­sent sögð­ust ekki myndu kjósa og 3,3 pró­sent vildu ekki gefa upp afstöðu sína. 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár