Verðbólga á evrusvæðinu jókst í 4,0 prósent í október og hefur ekki verið meiri í þrjú ár. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur leitt til mikillar hækkunar orkuverðs, samkvæmt opinberum tölum sem birtar voru í dag.
Verðbólgan í ríkjunum 21 sem nota evruna var 3,8 prósent í september. Hún er enn langt yfir tveggja prósenta markmiði Seðlabanka Evrópu.
Talan fyrir október var í samræmi við spá hagfræðinga sem Bloomberg leitaði til.
Greinendur sögðust eftir birtingu talnanna búast við að Seðlabanki Evrópu hækkaði vexti aftur á þessu ári.
„Áhyggjur af mikilli verðbólgu virðast munu knýja Seðlabanka Evrópu til að hækka vexti aftur í desember, en okkur grunar að þar með ljúki vaxtahækkunum,“ sagði Jack Allen-Reynolds hjá Capital Economics.
Seðlabanki Evrópu hélt stýrivöxtum óbreyttum í síðustu viku en útilokaði ekki frekari hækkun í desember.
Verðbólga á evrusvæðinu fór síðast yfir 4,0 prósent í september 2023, þegar hún …













































Athugasemdir (1)