Bókin: Sálmurinn um blómið

Harpa Rut Hilm­ars­dóttir, verk­efna­stjóri barna­menn­ingar hjá RVK

Bókin: Sálmurinn um blómið
Harpa Rut Hilm­ars­dóttir

Góð bók getur breytt slæmri stund í gleði. Ég á þannig bók­arminn­ingu. Ég var 19 ára og nýkomin heim eftir skiptinemaár í S-Ameríku. Ég sá aug­lýst starf hjá veit­inga­manni sem ætl­aði að reka veit­inga­hús í félags­heim­ili úti á landi. Ég hneig­ist til örlaga­trúar og fannst lík­legt að fyrst ég sá þessa aug­lýs­ingu myndi ég finna sjálfa mig þar. Þegar ég kom í sveit­ina kom hins vegar í ljós að þetta var frekar glötuð vinna. Ég var ein í risa­stóru félags­heim­ili með nett sið­lausum manni sem reyndi við mig, þannig að það kom fyrir að ég þurfti að ýta honum út úr her­berg­inu og skella í lás. Þá var gott að ég hafði tekið með mér safn bóka Þórbergs Þórð­ar­sonar. Ég byrj­aði á Sálminum um blómið og það hrein­lega bjarg­aði geð­heilsu minni þetta sumar að fylgj­ast með Þórbergi þegar hann reyndi að skoða og skilja heim­inn út frá sjón­ar­horni barns. Ég …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bókin

Bókin

BÓKIN: Steinunn Harð­ar­dóttir

Skáldævi­saga Michelangelos  „The agony and the ectasy“ eftir Irving Stones heill­aði mig mjög. Michelangelo var fæddur í Set­tignano rétt utan við Flórens. Ég fylgdi honum í hug­anum ganga til borg­ar­innar til að nema högg­mynda­list móti vilja föður síns. Í kjöl­farið skipu­lagði ég göngu­ferð í og umhverfis Flórens þar sem gengið var Í fót­spor Michelangelos.                                                                                               Þessi bók gefur ein­stak­lega lif­andi mynd...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár