Bankastjóri Landsbankans þiggur boðsferð á heimsmeistaramótið í Rússlandi

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans sem er í eigu rík­is­ins, fer til Rúss­lands í boði Visa Europe. Lands­bank­inn segir boðs­ferð­ina þjóna „við­skipta­legum hags­munum“ bank­ans. Rík­is­stjórn Íslands snið­gengur Heims­meist­ara­keppn­ina.

Bankastjóri Landsbankans þiggur boðsferð á heimsmeistaramótið í Rússlandi
Boðsferð til Rúss­lands Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, þiggur boðs­ferð frá Visa Europe á heims­meist­ara­mótið í fót­bolta.

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri rík­is­bank­ans Lands­bank­ans, þiggur boðs­ferð frá korta­fyr­ir­tæk­inu Visa Europe á leik Íslands og Argent­ínu í Heims­meist­ara­keppn­inni í fót­bolta sem fram fer á morgun. Þetta stað­festir Lands­bank­inn í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. Fram kemur að Lilja Björk sé eini starfs­maður bank­ans sem þiggur slíka boðs­ferð frá Visa Europe. 

Visa Europe er alþjóð­legt greiðslu­korta­fyr­ir­tæki í eigu Visa Inc. en það félag keypti Visa Europe af útgef­endum Visa-greiðslu­korta í Evrópu, meðal ann­ars íslensku fyr­ir­tækj­unum Borgun og Valitor árið 2016.  Lands­bank­inn átti stóra hluti í Borgun og Valitor en seldi báða hlut­ina árið 2014.  Hlut­irnir voru seldir á und­ir­verði, meðal ann­ars vegna þess að Borgun og Valitor fengu hvort um sig nærri 7 millj­arða króna vegna söl­unnar á Visa Europe til Visa Inc. árið 2016. Tekið skal fram Lilja Björk var ekki orðin banka­stjóri Lands­bank­ans þegar þetta var en um er að ræða boðs­ferð frá fyr­ir­tæki sem Lands­bank­inn átti eitt sinn óbeinan hlut í. 

Enginn fer úr ríkisstjórninni

Boðsferð Lilju Bjarkar vekur meðal ann­ars athygli vegna þess að eng­inn af ráð­herr­unum úr rík­is­stjórn Íslands verður í Rúss­landi til að fylgj­ast með leiknum.

Rík­is­stjórn Íslands ákvað að snið­ganga Heims­meist­ara­keppn­ina í knatt­spyrnu í Rúss­landi vegna mögu­legrar aðkomu rík­is­stjórnar Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta að bana­til­ræði gegn Sergei Skripal og dóttur hans í Bret­landi fyrr á árinu. Ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar vakti alþjóð­lega athygli. Sama á við um for­seta Íslands sem fer ekki til Rúss­lands. Þessar ástæður ráða­manna Íslands eru því póli­tískar. 

Fleiri erlendar rík­is­stjórnir tóku sama pól í hæð­ina, meðal ann­ars rík­is­stjórn Sví­þjóðar. 

Banka­stjóri banka í eigu íslenska rík­is­ins, banka sem lýtur íslenska rík­inu og fjár­mála­ráð­herra form­lega séð, fer hins vegar í boðs­ferð á heims­meist­ara­keppn­ina í boði alþjóð­legs stór­fyr­ir­tækis. 

 

Í þágu „viðskiptahagsmuna bankans“ 

Í svari Lands­bank­ans kemur fram að ekk­ert í starfs­reglum bank­ans meini banka­stjór­anum að þiggja slíka boðs­ferð. Spurning Stund­ar­innar hljóð­aði svo: „Heimila starfs­reglur, siða­reglur Lands­bank­ans, sem er rík­is­banki, að banka­stjór­inn og aðrir starfs­menn þiggi gjafir og boðs­ferðir frá eink­að­ilum?“ Svar bank­ans við þess­ari spurn­ingu er: „Já, ef það er í þágu við­skipta­legra hags­muna bank­ans og er að öðru leyti í sam­ræmi við reglur bank­ans.“

„Já, ef það er í þágu við­skipta­legra
hags­muna bank­ans og er að öðru
leyti í sam­ræmi við reglur bank­ans“ 

Í svar­inu er ekki tekið fram hvernig það þjónar „við­skipta­legum hags­munum “ bank­ans að Lilja Björk fari í umrædda boðs­ferð til Rúss­lands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár