Hundurinn sem beit dreng í andlitið hafði áður ráðist á póstbera

Póstberi segir að eig­andi Alask­an Malamu­te hunds hafi sagt ósatt. Hann er með ör eftir árás hunds­ins, en tveimur mán­uðum eftir árás­ina beit hund­ur­inn fimm ára dreng í and­litið.

Hundurinn sem beit dreng í andlitið hafði áður ráðist á póstbera
Alaskan Malamute Hund­ur­inn er af sömu teg­und.

Starfs­maður Íslands­pósts, Sig­ur­steinn Magn­ús­son, var bit­inn til blóðs af hundi í byrjun árs og ekk­ert var brugð­ist við, hvorki af hálfu eig­enda hunds­ins né hins opin­bera. Heil­brigð­is­nefnd Hafn­ar­fjarðar- og Kópa­vogs­svæð­is­ins hafði verið gert við­vart af mál­inu en kaus að aðhaf­ast ekki.

Samkvæmt reglu­gerðum um hunda­hald eiga hundar sem hafa bitið að vera með múl, en eig­endur hunds­ins fram­fylgdu því ekki, og þá höfðu þau sagst ætla að reisa girð­ingu fyrir hann en gerðu það ekki heldur. Tveimur mán­uðum seinna réð­ist hund­ur­inn á barn, hinn fimm ára Sólon Brimi, og beit hann í and­litið. Dreng­ur­inn slas­að­ist illa og þykir mikið mildi er að ekki hafi farið verr.

„Ég er með ör á hand­leggnum“

Eigendur hunds­ins voru ekki heima þegar atvikið kom upp og  vekur málið upp spurn­ingar um ann­ars vegar ábyrgð og hæfni hunda­eig­enda og hins vegar ábyrgð stjórn­valda.

Sig­ur­steinn, sem var bit­inn tveimur mán­uðum áður, segir eig­and­ann aldrei hafa beðið sig afsök­unar eða bætt sér tjónið er hund­ur­inn beit hann og tætti úlpuna hans. „Ég er með ör á hand­leggnum og úlpan mín alveg í tætlum. Hann sagð­ist ætla að borga hana en gerði það aldrei. Hann tók reikn­ings­núm­erið mitt og kenni­tölu og allt það. Síðan eru liðnir 4 mán­uðir.“

Segir eiganda hundsins hafa logið

Ungi dreng­ur­innSólon Brimar, sem var fimm ára þegar hund­ur­inn réðst á hann, end­ur­tók í sífellu eftir árás­ina: „Sólon litli er of lít­ill til að deyja.“

Sig­ur­steinn segir eig­anda hunds­ins hafa logið því, eftir að dreng­ur­inn var bit­inn, að hann hefði aldrei bitið póst­burð­ar­mann, en síðar sagt að hund­ur­inn hafi bitið hann vegna þess að hann hafi stigið á sig og það hafi verið hunda­lykt af honum. Það sé hins vegar ekki rétt. „Ég var að klappa honum eins og ég var búinn að gera oft, og hann var bund­inn í þrjár ket­il­bjöllur sem voru bara 2-3 kíló hver. Þessi hundur náði mér alveg upp á hné. Svo ætl­aði ég að fara að labba af stað, þá labb­aði hund­ur­inn fyrir mig og hnéð á mér rekst í hnakk­ann á honum. Þá glefs­aði hann í mig og ég fékk blæð­andi sár“.

Eigandi hunds­ins hafði „engan áhuga“ á að tjá sig við Stundina og útskýra ábyrgð sína, þegar eftir því var leitað. Hann hefur þó, að sögn föður drengs­ins, beðið þau afsök­unar á atvik­inu.

Ekki eina ítrekaða árás hunds

Ofan­greint atvik er ekki í fyrsta sinn þar sem hundur hefur valdið skaða oftan en einu sinni þar sem að ekk­ert var aðhafst í fyrstu. Árið 2011 sluppu Husky-hundar frá heim­ili sínu í Graf­ar­vogi og drap annar þeirra tvo ketti á innan við ári. Höfðu hund­arnir þó sloppið út oftar en tvisvar.

Vilhelm Jónsson var eig­andi katt­ar­ins Lóló, seinni katt­ar­ins sem féll fyrir sama hund­inum, en líkt og í til­felli Sólons Brimis hafði hund­ur­inn sem um ræddi áður valdið skaða ekki löngu áður. Yfirvöld hafi hins vegar brugð­ist hlut­verki sínu og ekk­ert var gert í því máli. Aðspurður út í málið sagði Vilhelm að eft­ir­litið væri „hand­ó­nýtt“, það væri ein­hvern veg­inn öllum alveg sama. Hann hefur ekki trú á því að eft­ir­litið hafi eða muni batna í kjöl­far árás­ar­innar á dreng­inn. „Ég styð alla heils­hugar sem eru að berj­ast. Ég trúi því mátu­lega, en von­andi hef ég rangt fyrir mér“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár