Sparkað úr hestamannahópi vegna gagnrýni á félagsleg undirboð

Ung kona var rekin úr Facebook-hópi um hesta­mennsku eftir að hún hvatti til þess að starfs­menn fengju laun í sam­ræmi við lög.

Sparkað úr hestamannahópi vegna gagnrýni á félagsleg undirboð
Græða á félags­legum und­ir­boðum Hesta­leigu­fyr­ir­tæki not­færa sér ódýrt vinnu­afl í stórum stíl án þess að fylgja lögum og kjara­samn­ingum. Mynd: Shutterstock

Ung kona var rekin úr umræðu­hópi um hesta­mennsku á Facebook eftir að hún hvatti til þess að fólki væru greidd laun í sam­ræmi við lög og kjara­samn­inga. Henni var tjáð að ábend­ingar um að hrossa­rækt­arbú yrðu að fylgja íslenskum lögum og greiða erlendum starfs­mönnum laun fyrir vinnu sína ættu ekki heima innan hóps­ins. 

„Ég skráði hjá mér þrjá aðila sem þurfa enda­laust að benda á að það sé ólög­legt að vinna á Íslandi án kenni­tölu og launa,“ segir í skila­boðum sem Sjöfn Sæmunds­dóttir, stjórn­andi hóps­ins, sendi kon­unni. „Mér finnst það ekki koma neinum við ef fólk vill öðl­ast reynslu og vinna fyrir fæði og hús­næði. Fæði og hús­næði kostar líka pen­inga. Þetta er ástæðan fyrir því að þú varst úti­lokuð frá hópnum.“ [Skila­boðin voru rituð á ensku, þýð­ing er blaða­manns.]

 

Þegar Stundin hafði sam­band við Sjöfn sagði hún að sú regla gilti innan hóps­ins að ekki væri rætt um launa­mál, enda sé þar um að ræða samn­ings­at­riði milli aðila en ekki eitt­hvað sem komi öllum í hópnum við. Facebook-hóp­ur­inn heitir „Work with ICELANDIC hor­ses in Iceland“ og er vett­vangur sem leiðir saman ann­ars vegar íslensk hrossa­rækt­arbú og hesta­leigur sem vantar starfs­krafta og hins vegar erlent hesta­fólk í leit að tæki­færum hér­lendis. Hátt í tvö þús­und manns til­heyra hópnum. 

„Ég er sjálf mennt­aður reið­kenn­ari, það er ekki til stétta­fé­lag fyrir okkur, svo ég veit alveg hvað launa­bar­átta er. Að sjálf­sögðu á þetta að vera launað starf eins og hvað annað, en svo er eðli­legt að fólk fái tæki­færi til að öðl­ast reynslu til skamms tíma. Ef krakkar á Norð­ur­lönd­unum vilja fá þessa reynslu þar, þá er það ekki hægt, þau fá bara að moka skít. Tæki­færin hér á Íslandi eru ekki í boði úti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár