Njóta góðs af ódýru vinnu­afli Mikið er um félags­leg und­ir­boð í hesta­leigu­geir­anum. Mynd: Shutterstock

Hestaleigur græða tugi milljóna á félagslegum undirboðum

Notfæra sér ódýrt vinnu­afl í stórum stíl og fylgja hvorki lögum né kjara­samn­ingum.

Fjöldi íslenskra hesta­leiga sparar sér tugi millj­óna á hverju ári með félags­legu und­ir­boði á vinnu­mark­aði og öðl­ast þannig gríð­ar­legt sam­keppn­is­for­skot gagn­vart þeim fyr­ir­tækjum sem fylgja lögum og reglum og greiða starfs­fólki sam­kvæmt kjara­samn­ingum.

Stundin hefur aflað upp­lýs­inga sem varpa ljósi á kaup og kjör erlendra starfs­manna hjá hesta­leigum. Nið­ur­stöð­urnar eru slá­andi og benda til þess að vel á annan tug íslenskra hesta­leigu­fyr­ir­tækja brjóti gegn lögum og kjara­samn­ingum. Eins og bent er á í minn­is­blaði ASÍ um ólaun­aða vinnu frá 2015 er slík vinna nær aldrei talin fram til skatts og má því ætla að sam­eig­in­legir sjóðir verði af umtals­verðum fjár­munum.

Blaðið hafði sam­band við tugi hesta­leigu­fyr­ir­tækja undir dul­nefn­inu Sara Larsen. Sara sagð­ist vera 19 ára hesta­kona frá Danmörku í leit að vinnu á Íslandi. 

Á meðal fyr­ir­tækja sem buðu Söru að koma og vinna hjá sér á kjörum langt undir kjara­samn­ingum og lág­marks­launum eru Sól­hestar í Borg­ar­gerði, Geysir hestar í Blá­skóga­byggð, Hesta­sport í Varma­hlíð og Alhestar í Þor­láks­höfn. 

Aðeins örfáar hesta­leigur gáfu svör sem benda til þess að þau greiði laun í sam­ræmi við kjara­samn­inga. Þetta eru fyr­ir­tækin Íslenski Hest­ur­inn, Vík Horse Adventure, Abbi Island, Traðir og Eld­hestar. 

„Hörkuvinna“ frá átta til fimm og einn frídagur 

Fyr­ir­tækið Sól­hestar er í eigu hjón­anna Sól­mundar Sig­urðs­sonar og Sjafnar Sveins­dóttur og með starf­semi í Reykja­vík og Borg­ar­gerði, rétt hjá Hvera­gerði. Þegar Sara sótti um vinnu hjá Sól­hestum fékk hún sent staðlað upp­lýs­inga­skjal þar sem fjallað er ítar­lega um launa­kjör og starfstil­högun. 

„Vinnu­tím­inn er alltaf milli 7:45 og 17:00 og stundum aðeins lengri þegar pant­an­irnar eru margar. Laun eru 120 þús­und krónur, íbúð, bíll (við greiðum bensín á bíl­inn þegar keypt er inn),“ segir í skjal­inu. Fram kemur að starfs­fólk fái einn frí­dag í viku. Fyr­ir­tækið sé á hött­unum eftir „leið­sögu­manni“ sem geti fyrst um sinn prófað að vinna hjá Sól­hestum í þrjár vikur. „Þá sjáum við hvort við­kom­andi er rétta mann­eskjan í starfið. Þetta er hörku­vinna og það getur verið erfitt að sitja svona lengi á hest­baki. Á sama tíma er þetta gaman og við erum eins og lítil fjöl­skylda.“ 

Tekið er fram að leið­sögu­menn­irnir hjá Sól­hestum búi tveir og tveir í her­bergi. Her­bergin séu tvö og starfs­menn­irnir deili eld­húsi, sal­erni, sturtu og setu­stofu. Samkvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar fá þeir starfs­menn Sólhesta sem dvelja í Reykja­vík her­bergi á efri hæð­inni í hest­hús­inu. 

Launakjörin trúnaðarmál

„Við erum ekki með neitt ólaunað eða neitt svo­leiðis. Ef það hefur verið ólaunað hefur starfs­fólk komið hér á vegum skóla. Annað er það ekki hjá okkur, við setjum allt á kenni­tölur og erum með allt starfs­fólk skráð,“ segir Sól­mundur Sig­urðs­son í sam­tali við Stundina. Í skjal­inu sem Sara Larsen fékk frá Sól­hestum er hins vegar tekið sér­stak­lega fram að hún þurfi ekki kenni­tölu fyrr en þremur mán­uðum eftir að hún byrjar að vinna.

„Við erum núna fimm starfs­menn og þar af eru þrjú íslensk, tvær erlendar og þær eru komnar með kenni­tölur. Þrjár norskar stelpur voru hjá okkur í þrjár vikur, en þær voru ekki á launum heldur komu frá Noregi, norskum skóla. Við fáum oft svo­leiðis erindi frá skólum og það er eina ólaun­aða dæmið hjá okkur,“ segir Sól­mundur. Aðspurður hvort aðrir fái greitt sam­kvæmt kjara­samn­ingi svarar hann ját­andi. „Já já, en svo eru launa­kjör auð­vitað trún­að­ar­mál milli fólks. Þeir eru nýbúnir að vera hérna frá verka­lýðs­fé­lag­inu og skatt­inum og það eru engir stór­glæpir framdir hér get ég sagt þér.“ 

„Það eru engir stór­glæpir
framdir hér get ég sagt þér.“

Síðar í sam­tal­inu, þegar Stundin spurði hvort það gæti stað­ist að fyr­ir­tækið byði starfs­fólki 120 þús­und króna mán­að­ar­laun, sagði Sól­mundur að það væri allur gangur á því. Almennt tíðk­að­ist hjá Sól­hestum að miða við lág­marks­laun og draga frá þeim húsa­leigu og fríð­indi á borð við mat. „Svo fær fólk borgað, og við borgum gjöld af allri upp­hæð­inni, lág­marks­upp­hæð­inni.“ 

Tugmilljóna launasparnaður hjá Sólhestum

Ef ungur starfs­maður hjá hesta­leigu fengi greitt sam­kvæmt kjara­samn­ingi VR, en farið væri að öðru leyti eftir því sem fram kemur í upp­lýs­inga­skjali Sólhesta, svo sem hvað yfir­vinnu varðar, myndu heild­ar­laun með orlofi nema rúm­lega 380 þús­und krónum á mán­uði. Alls yrði kostn­aður vinnu­veit­and­ans rúm­lega 450 þús­und krónur vegna launa­tengdra gjalda. 

Sól­hestar bjóða upp á reið­túra allt árið. Í upp­lýs­inga­skjal­inu sem Sara fékk er til­greint sér­stak­lega að erlendur starfs­maður þurfi ekki íslenska kenni­tölu nema hann ætli að starfa lengur en þrjá mán­uði á Íslandi. Fram kemur að hjá fyr­ir­tæk­inu starfi 12 leið­sögu­menn. Ef aðeins fimm þess­ara starfs­manna eru á launum en hinir sjö á kjörum sam­bæri­legum þeim sem Söru Larsen voru boðin má, með ein­földum sam­an­burði og útreikn­ingi sam­kvæmt áður­nefndum for­sendum, sjá að Sól­hestar spara sér að lág­marki 22 millj­ónir í hreinan launa­kostnað á ári með því að not­færa sér ódýrt vinnu­afl. Séu launa­tengd gjöld tekin með í reikn­ing­inn myndi það kosta fyr­ir­tækið um 32 millj­ónir að hafa þennan fjölda starfs­krafta í vinnu á árs­grund­velli ef greitt væri sam­kvæmt kjara­samn­ingi. Alls næmu þá árlegar skatt­tekjur af sjö starfs­mönnum um 9,5 millj­ónum og líf­eyr­is­greiðslur um 4,5 millj­ónum. 

Fá umbun í „fríðindum og huggulegheitum“

Í árs­reikn­ingi Sólhesta fyrir 2016 kemur fram að sjö laun­þegar hafa starfað hjá fyr­ir­tæk­inu en árs­verkin verið sam­tals fimm. Engu að síður námu laun og launa­tengd gjöld aðeins 17 millj­ónum á því ári sem bendir til þess að starfs­menn hafi fengið greitt langt undir lág­marks­launum. 

Huggu­leg­heitAðeins sumir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins fá eig­in­leg laun fyrir vinnu sína.

Á Facebook-síðu Sólhesta birt­ist í fyrra mynd af níu manna hópi ásamt text­anum „Dinner with my staff in Fákasel“. Í athuga­semdum kom fram að þetta hefði aðeins verið „laun­aða staffið“ en hinir fengju „sína umbun í öðrum fríð­indum og huggu­leg­heitum“. 

Sól­hestar voru stofn­aðir árið 2010. Ef við­skipta­hættir á borð við þá sem lýst er í bréf­inu til Söru hafa tíðkast frá upp­hafi má ætla að fyr­ir­tækið hafi grætt vel yfir 100 millj­ónir á félags­legu und­ir­boði. Ódýrt vinnu­afl hefur að sama skapi gert fyr­ir­tæk­inu kleift að ráða fleiri starfs­menn, bæta við sig glæsi­legu úti­búi í Reykja­vík árið 2016 og bjóða upp á fleiri og ódýr­ari reið­túra heldur en þeir sam­keppn­is­að­ilar sem fylgja lögum og kjara­samn­ingum. 

„Rosalega góður matur“ í laun

Und­ir­boðin eru ekki gróf­ust hjá Sól­hestum. Þegar Sara Larsen hafði sam­band við fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Lýsuhól, í eigu Jóhönnu Ásgeirs­dóttur og Agnars Gests­sonar, var henni boðin launa­laus vinna með fæði og hús­næði. 

Lýsuhóll lagði áherslu á að Sara fengi ein­stak­lega góðan mat. „Hæ Sara, það eru engin laun greidd hjá okkur. Eins og þú veist er mjög dýrt að búa og borða á Íslandi. Þú færð þitt eigið rúm í her­bergi ásamt fleiri stelpum,“ segir í svar­bréfi frá fyr­ir­tæk­inu þar sem jafn­framt kemur fram að allir starfs­menn þurfi að sinna ábyrgð­ar­hlut­verkum. 

„Þú borðar með okkur. Maturinn er rosa­lega góður. Það er veit­inga­staður í grennd­inni þar sem við borðum og þau elda fyrir okkur á hverjum degi. Rosalega gott!“ 

Fær kannski greitt en verður hluti af fjölskyldunni

Hesta­leigan Kiðafell í Kjós bauð Söru her­bergi og frítt fæði gegn því að hjálpa til með hest­ana. Fram kemur í svörum fyr­ir­tæk­is­ins að Sara muni fá eitt­hvað borgað, að það ráð­ist dálítið af því „hve mikil vinnan er og hve mikið við getum notað þig“. Hún verði hluti af fjöl­skyld­unni og fái von­andi meira en nóg til að geta notið dval­ar­innar á Íslandi. 

 „Stundum höfum við verið með átta til
tíu stelpur á sama tíma og þá er
ómögu­legt að borga þeim öllum.“

Sams konar svör bár­ust frá hesta­leig­unni Stóra Kambi. Þar fái Sara mat og hús­næði og reynt verði að gefa henni einn frí­dag í viku. „Það hvort starfs­menn fá greitt ræðst af því hve lengi þeir dvelj­ast hjá okkur. Stundum höfum við verið með átta til tíu stelpur á sama tíma og þá er ómögu­legt að borga þeim öllum. Margar stelpn­anna koma aftur og aftur og eru í raun hluti af fjöl­skyld­unni.“ 

Hesta­leigan Galsi svar­aði Söru einnig á þá leið að flestir stráka og stelpna sem ynnu hjá þeim fengju aðeins greitt í formi hús­næðis og uppi­halds. 

Undirboð ólögleg en algeng hjá hestaleigum

Samkvæmt íslenskum lögum eru sjálf­boða­störf ein­ungis rétt­læt­an­leg þegar um er að ræða vinnu fyrir mann­úðar- eða hjálp­ar­sam­tök, verk­efni sem lúta að nátt­úru­vernd eða störf sem ellegar væru ekki unnin. Um önnur störf gilda ákvæði kjara­samn­inga.

Á vef Alþýðu­sam­bands Íslands er bent á að ólaunuð vinna við „efna­hags­lega starf­semi“ – það er fram­leiðslu og sölu á vöru eða þjón­ustu á mark­aði, oft­ast í hagn­að­ar­skyni og í sam­keppni við fyr­ir­tæki í sömu atvinnu­starf­semi – feli í sér óásætt­an­leg und­ir­boð. Hesta­leigur eru nefndar sér­stak­lega sem dæmi um efna­hags­lega starf­semi þar sem mikið er um ólaun­aða vinnu í trássi við lög og reglur.

Fæði og hús­næði geta vissu­lega verið hluti end­ur­gjalda fyrir vinnu, þá með þeim hætti að atvinnu­rek­andi hafi heim­ild til að draga slíkt af launum starfs­manna. Slíkt er hins vegar háð miklum tak­mörk­unum og skil­yrð­ist auð­vitað af því að kjara­samn­ingum sé fylgt, ráðn­ing­ar­samn­ingur gerður og launa­seð­ill með við­eig­andi frá­drátt­ar­liðum gef­inn út. 

Fátt ef nokkuð bendir til þess að sú sé raunin hjá þeim fyr­ir­tækjum sem bjóða Söru að koma að vinna hjá sér fyrir mat og húsa­skjól. 

Hestasport telja 80 þúsund nóg til að lifa eðlilegu lífi

Fyr­ir­tækið Hesta­sport í eigu Magnúsar Sig­munds­sonar hefur verið starf­rækt í Varma­hlíð í Skaga­firði í meira en 40 ár og er með hátt í 130 hesta á sumrin. Þegar Sara óskaði eftir vinnu hjá fyr­ir­tæk­inu fékk hún, líkt og hjá Sól­hestum, staðlað skjal með vinnu­lýs­ingu og upp­lýs­ingum um kaup og kjör. 

„Sveigj­an­leiki er lyk­il­at­riði fyrir okkur. Ekki vera hrædd við að vinna! Nýjum hug­myndum er tekið fagn­andi og við ætl­umst til þess að þú sýnir ábyrgð í vinn­unni,“ segir í skjal­inu. „Stundum er brjálað að gera, en aldrei leið­in­legt! Þú munt ekki fá reglu­lega frí­daga og aldrei ljúka vinnu á sama tíma. Það koma anna­söm tíma­bil þar sem þú munt vinna marga klukku­tíma.“

Fram kemur að starfs­menn séu tveir og tveir saman í her­bergi. „Lág­marks­laun“ séu 80 þús­und krónur á mán­uði, en á anna­sömum tímum fái starfs­menn stundum meira greitt. „Við teljum að þessi pen­ingur dugi til að lifa eðli­legu lífi,“ segir í tölvu­pósti Hesta­sports til Söru. 

Í upp­lýs­inga­skjal­inu kemur ekki fram hvort ókeypis matur er inni­fal­inn, en tekið er sér­stak­lega fram að hver og einn beri sjálfur ábyrgð á því að grunn­þarfir um mat og öryggi séu upp­fylltar. 

Óskilgreind hlunnindi

Ef miðað er við sams­konar for­sendur og hjá Sól­hestum, og gert ráð fyrir fimm starfs­mönnum sem starfi yfir 6 mán­aða tíma­bil á ári, má áætla að Hesta­sport spari sér árlega um 9 millj­óna launa­kostnað með því að not­færa sér ódýrt vinnu­afl í stað þess að fylgja lögum og kjara­samn­ingum. Ef fyr­ir­tækið greiddi sam­kvæmt kjara­samn­ingum og í sam­ræmi við fyrr­nefndar for­sendur næmu skatt­greiðsl­urnar um 3,4 millj­ónum og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur um 1,6 millj­ónum á ári. 

„Við höfum forð­ast að vera með sjálf­boða­liða. Flestir eru á kenni­tölu en svo eru ein­hverjir í starfs­námi, en hér er eng­inn sjálf­boða­liði,“ segir Magnús Sig­munds­son, eig­andi Hesta­sports, í sam­tali við Stundina. „Fólk fær laun og óskil­greind hlunn­indi og við tökum mið af lág­marks­launum í sam­fé­lag­inu. Ég segi nú ekki að fólk fái mikið meira en það en við reynum að hanga í því. Þegar við fáum umsóknir þá gefum við ekki upp mjög háa upp­hæð fyrsta mán­uð­inn meðan við erum að kynn­ast fólk­inu sem leitar til okkar.“ Magnús segir að starfs­menn sem eru lengur en nokkrar vikur og standa sig vel fái að minnsta kosti greidd lág­marks­laun. 

„Þegar við fáum umsóknir þá gefum við ekki upp mjög háa upp­hæð fyrsta mán­uð­inn meðan við erum að kynn­ast fólk­inu sem leitar til okkar.“

Hann segir sam­keppn­ina hafa harðnað í hesta­leigu­geir­anum und­an­farin ár. „Það eru auð­vitað allir að finna upp hjólið og margir að koma sér fyrir, sem er fínt svo lengi sem menn bjóða ekki niður. Það versta er þegar menn ná sér í mark­aðs­hlut­deild með þjón­ustu­und­ir­boðum.“ Magnús er ugg­andi yfir þeim kvöðum og gjöldum sem lögð eru á ferða­þjón­ust­una. Aðspurður hvað honum finn­ist um hug­myndir um hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu segir hann að slíkt yrði dauða­dómur yfir mörgum fyr­ir­tækjum. 

„Við deilum eldhúsi, baðherbergi og stofu“

Alhestar í Þor­láks­höfn, hesta­leiga í eigu Magnúsar Mar­geirs­sonar sem er með útibú í Reykja­vík, greiða starfs­mönnum enn lægri laun en Hesta­sport eða um 50 þús­und krónur á mán­uði ásamt mat og húsa­skjóli.

„Hvað hús­næði varðar, þá mynd­irðu dvelja í íbúð hjá Magnúsi, öðrum föstum starfs­mönnum og mér. (…) Það er ekki ýkja stórt en með allt sem þarf. Við deilum eld­húsi, bað­her­bergi og stofu en þú færð þitt eigið svefn­her­bergi,“ segir í svari sem Sara fékk þegar hún spurði um aðstæð­urnar hjá Alhestum. 

Hjá hesta­leig­unum Hömlu­holti og Leiru­bakka eru launin enn lægri, eða 30 þús­und krónur á mán­uði og Jóreykir að Sturlu-Reykjum býður starfs­mönnum 35 þús­und krónur í vasa­pen­ing og reiðjakka. Odds­staðir í Borg­ar­firði býður starfs­mönnum 50 þús­und krónur á mán­uði ásamt mat og húsa­skjóli og Skálakot býður 70 þús­und krónur. Giljar í Reyk­holti buðu svo Söru að koma og vinna hjá sér fyrir au pair-kaup, 40 þús­und krónur á mán­uði, en um slíka vist­ráðn­ing­ar­vinnu gilda strangar reglur. 

Álíka margir starfsmenn, þrefalt lægri launakostnaður

Stundin hafði sam­band við Eldhesta og Íslenska Hestinn, fyr­ir­tæki sem virð­ast ekki stunda und­ir­boð á vinnu­mark­aði sam­kvæmt þeim svörum sem Sara Larsen fékk. „Ég er nú bara dálítið í mínum eigin heimi og veit ekki einu sinni hvaða fyr­ir­tæki það eru sem stunda þetta eða hvernig þau gera það. En við greiðum eftir kjara­samn­ingum og það er allt uppi á borðum hjá okkur,“ sagði Hróðmar Bjarna­son, stofn­andi og eig­andi Eldhesta, þegar Stundin hafði sam­band við hann. 

Þegar Sara Larsen sendi Íslenska Hestinum atvinnu­um­sókn barst svar um að fyr­ir­tækið myndi ekki ráða nýja starfs­menn á næst­unni. Þá var henni bent á vefslóð með upp­lýs­ingum um rétt­indi laun­þega á Íslandi. Stundin hafði sam­band við fyr­ir­tækið og spurði um launa­kjör starfs­manna. „Við erum með um 10 til 15 starfs­menn á launum um þessar mundir og yfir­leitt fleiri á sumrin. Það eru sirka 10 sem eru fastir starfs­menn, aðeins mis­jafnt hversu mikið hver vinnur í hverjum mán­uði og ekki allir í 100 pró­sent vinnu,“ segir Sveinn Atli Gunn­ars­son, annar af eig­endum Íslenska Hestsins í sam­tali við Stundina. 

Sveinn segir að allir starfs­menn séu laun­þegar og borgi skatta og skyldur til sam­fé­lags­ins. „Við erum stolt af því að taka þátt í að hjól efna­hags­lífs­ins hald­ist á hreyf­ingu. Mann­rétt­indi starfs­fólks okkar eru okkur mik­il­væg og við viljum geta haft ánægt starfs­fólk sem vill vera í vinnu hjá okkur til lengri tíma.“ 

Laun og launa­tengd gjöld hjá Íslenska Hestinum voru tæpar 55 millj­ónir árið 2016. Starfs­manna­fjöldi Íslenska Hestsins og Sólhesta, sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum sem Stundin fékk frá fyr­ir­tækj­unum, er svip­aður, eða í kringum 12 manns. Því vekur athygli að launa­kostn­að­ur­inn hjá Sól­hestum er um þrisvar sinnum lægri en hjá Íslenska Hestinum, eða aðeins 17 millj­ónir. Mis­mun­ur­inn er 38 millj­ónir, en eins og áður kom fram myndi kosta Sólhesta um 32 millj­ónir að greiða sjö starfs­mönnum laun í sam­ræmi við kjara­samn­ing VR en að öðru leyti eftir þeirri lýs­ingu sem fram kemur í upp­lýs­inga­skjal­inu til Söru Larsen. 

„Það er mikil sam­keppni í ferða­þjón­ust­unni og ekki síst meðal hesta­leiga. Síðan við byrj­uðum hafa fjöl­margar hesta­leigur hafið starf­semi og sam­keppnin auk­ist jafnt og þétt og það er á bratt­ann að sækja. Við von­umst auð­vitað til að allir okkar sam­keppn­is­að­ilar standi rétt að málum og við verðum að geta treyst því að sam­keppnin sé á jafn­rétt­is­grund­velli,“ segir Sveinn.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár