Arður greiddur úr einkareknu meðferðarheimili barna sem vinnur fyrir sveitarfélögin

Rekstur með­ferð­ar­heim­il­is­ins Vinakots hefur verið gagn­rýndur fyrir að vera of dýr. Fram­kvæmda­stjór­inn seg­ist hafa minnkað rekst­ur­inn til að bæta þjón­ust­una. Sveit­ar­fé­lögin ætla að opna eigin starf­semi.

Arður greiddur úr einkareknu meðferðarheimili barna sem vinnur fyrir sveitarfélögin
Mikilvæg þjón­usta en dýr Í glæru­kynn­ingu frá Hafn­ar­fjarð­arbæ kemur fram að þjón­usta Vinakots sé mik­il­væg en dýr. Aðal­heiður Braga­dóttir, eig­andi og fram­kvæmda­stjóri Vinakots, seg­ist hafa minnkað rekst­ur­inn til að lækka kostnað og bæta gæði. Hún sést hér með Jóhönnu Fleckenstein, fyrr­ver­andi for­stöðu­manni Vinakots, sem hefur tekið við hluta af starf­semi Vinakots í nýju fyr­ir­tæki. Mynd: Kristinn Ingvarsson

12,5 millj­óna króna arður hefur verið greiddur út úr einka­rekna með­ferð­ar­heim­il­inu Vinakoti ehf. á síð­ast­liðnum þremur árum. Vinakot ehf. selur sveit­ar­fé­lögum með­ferð­ar­úr­ræði fyrir börn með alls kyns vanda­mál og er félagið að fullu í eigu fram­kvæmda­stjór­ans, Aðal­heiðar Braga­dóttur Hjelm.

Félagið var með tekjur upp á rúm­lega einn millj­arð króna í fyrra og voru starfs­menn 120 tals­ins sam­kvæmt árs­reikn­ingi. 7,5 millj­óna króna arður var greiddur út úr fyr­ir­tæk­inu árið 2016, vegna tæp­lega 19 millj­óna hagn­aðar árið 2015, og 5 millj­óna króna arður var greiddur út úr því árið 2015 í kjöl­far tæp­lega 20 millj­óna hagn­aðar árs­ins á undan. Tap upp á tæp­lega tvær millj­ónir og nærri átta millj­ónir hefur verið á rekstr­inum síð­ustu tvö árin. 

Vinakot veitir fjöl­breytta þjón­ustu við börn með fjöl­þættan vanda eins og þroska- og geð­rask­anir. Þjón­ustan getur verið allt frá aðstoð við að rjúfa félags­lega ein­angrun barna til vist­unar á heim­ilum Vinakots. Fast­eigna­fé­lag Vinakots, Ármót …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár