Þunglyndi hraðar öldrun heilans

Ein­stak­lingar sem þjást af kvíða eða þung­lyndi eru lík­legri til að grein­ast með elli­glöp seinna á lífs­leið­inni en aðrir.

Þunglyndi hraðar öldrun heilans

Þung­lyndi og kvíði getur haft ýmis nei­kvæð áhrif á lífs­gæði þeirra sem við það glíma og geta í verstu til­fell­unum leitt til ótíma­bærs dauða sjúk­linga. Þótt sum áhrif þess­ara sjúk­dóma séu nokkuð vel þekkt og í sjálfu sér aug­ljós flestum er ýmis­legt sem er enn óvitað um það hvernig lík­am­inn bregst við álag­inu sem þeim fylgir til lengri tíma. 

Meðal þess sem rann­sóknir hafa sýnt fram á er að ein­stak­lingar sem þjást af kvíða eða þung­lyndi eru lík­legri til að grein­ast með elli­glöp seinna á lífs­leið­inni en aðrir. Í rann­sókn sem gerð var við Sussex-háskóla á Bret­landi er kafað dýpra í sam­bandið á milli þess­ara þátta með því að kanna tengsl kvíða og þung­lyndis við öldrun heil­ans.

Hrörnun hraðari hjá þunglyndum einstaklingum

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn fram­kvæmdi yfir­grein­ingu á 34 lang­tíma­rann­sóknum sem allar áttu það sam­eig­in­legt að leita tengsla á milli kvíða, þung­lyndis og hrörn­unar vits­muna­legrar getu. Allt í allt tók rann­sóknin til nið­ur­staðna frá fleiri en 71.000 þátt­tak­endum í 34 rann­sóknum. Með­al­aldur þátt­tak­enda voru 72,15 ár og var þeim fylgt eftir í að með­al­tali 6,61 ár. Þátt­tak­endur höfðu ýmist ein­kenni þung­lyndis eða voru greindir með þung­lyndi. Til sam­an­burðar voru svo þátt­tak­endur sem ekki höfðu ein­kenni þung­lyndis.

Litið var til þess hvernig vits­muna­leg geta breytt­ist eftir því sem þátt­tak­endur elt­ust með til­liti til þess hvort þeir höfðu glímt við þung­lyndi eða kvíða. Til að meta þetta voru þættir á borð við minnis­leysi, hversu hratt ein­stak­lingar gátu með­tekið upp­lýs­ingar og tekið ákvarð­anir skoð­aðir. 

Meðal þess sem grein­ingin leiddi í ljós var að þeir ein­stak­lingar sem glímdu við þung­lyndi sýndu mark­tækt hrað­ari vits­muna­lega hrörnun en þeir sem ekki glímdu við þung­lyndi. Ekki tókst að bera kennsl á mark­tæk tengsl á milli kvíða og hrað­ari hrörn­unar. 

Mikilvægt að þekkja áhættuþætti

Yfir­grein­ingar líkt og þessi rann­sókn tak­markast af gæðum þeirra rann­sókna sem þær greina. Höf­und­arnir taka fram að grein­arnar sem not­ast var við voru heldur fáar. Alls voru grein­arnar 34, þar af voru aðeins fimm sem fjöll­uðu um kvíða en 32 sem fjöll­uðu um þung­lyndi. Meðal ann­arra ann­marka mátti finna mis­ræmi í þeim aðferðum sem not­aðar voru til að greina geð­sjúk­dómana á milli birt­inga. 

Þrátt fyrir ann­marka telja höf­und­arnir nið­ur­stöð­urnar vera mik­il­vægar. Í því sam­hengi benda þeir á að aðdrag­andi elli­glapa er gjarnan langur og getur jafn­vel varað í nokkra ára­tugi áður en grein­ing á sér stað. Með því að þekkja áhættu­þætti fyrir elli­glöpum betur er hægt að auka líkur á því að hægt sé að grípa inn í ferlið fyrr til að bæta líðan ein­stak­linga. Auk þess gæti ávinn­ingur verið fólg­inn í því að fylgj­ast sér­stak­lega með breyt­ingum á vits­muna­legri getu þeirra sem glíma við þung­lyndi, að sögn höf­und­anna. 

Með auk­inni þekk­ingu mætti segja að verið væri að slá tvær flugur í einu höggi þar sem að vissu­lega væri félags­legur ávinn­ingur af því að finna leiðir til að sporna gegn bæði elli­glöpum og þung­lyndi mik­ill. Að lokum benda höf­undar grein­ar­innar á mik­il­vægi þess að hlúa vel að and­legri heilsu almennt og nefna sér­stak­lega fimm leiðir til þess:

1. Borða holla fæðu

2. Vera virkur út ævina eins og hægt er

3.Verja tíma með vinum og fjöl­skyldu

4. Stunda núvit­und eða hug­leiðslu

5. Leita til sér­fræð­inga ef langvar­andi streita eða ein­kenni þung­lyndis gera vart við sig

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þekking

Alheimurinn í nýju og skarpara ljósi
Þekking

Alheim­ur­inn í nýju og skarpara ljósi

Nýjasta stór­virki mann­kyns­ins, James Webb geim­sjón­auk­inn, er ætlað að skoða myndun fyrstu stjarna og vetr­ar­brauta alheims­ins. Hvar og hvenær kvikn­aði fyrsta ljósið í alheim­inum? Hvernig verða stjörnur og sól­kerfi til? Hvernig mynd­uð­ust vetr­ar­braut­irnar? Hvaða eðlis- og efna­fræði­lega eig­in­leika þurfa plánetur og sól­kerfi að hafa til að geyma líf? Fyrstu myndir sjón­aukans eru komnar. „Þær voru enn skýr­ari, skarp­ari og glæsi­legri en ég átti von á,“ segir Sævar Helgi Bragason.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár