Vill upplýsingar um viðbrögð við hundaárásum

Þing­maður Pírata spyr heil­brigð­is­ráð­herra um fjölda lækn­is­heim­sókna vegna áverka eftir hund.

Vill upplýsingar um viðbrögð við hundaárásum
Mynd teng­ist frétt ekki beint. Mynd: Shutterstock

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hefur óskað eftir upp­lýs­ingum frá heil­brigð­is­ráð­herra um hve margir hafa leitað til læknis und­an­farin fimm ár vegna áverka eftir hund. 

Í fyr­ir­spurn Björns Levís er spurt hvaða verk­ferlar gilda þegar ein­stak­lingur leitar til læknis með áverka eftir hund, hvaða upp­lýs­inga er aflað um máls­at­vik og hvort áverk­arnir séu flokk­aðir eftir alvar­leika. 

Nýlega var greint frá því að barn hefði verið flutt á sjúkra­hús eftir árás hunds af teg­und­inni Alaska Malamu­te. Alls voru 80 spor saumuð í and­lit barns­ins, en talið er að hjálmur hafi bjargað lífi þess.

Fyr­ir­spurnir Björns Levís hafa vakið tals­verða athygli, en hann átti lyk­il­þátt í að kreista fram upp­lýs­ingar um akst­urs­greiðslur og sporslur þing­manna fyrr á árinu.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og fleiri Sjálf­stæð­is­menn hafa gagn­rýnt Björn á þeim grund­velli að það sé kostn­að­ar­samt og tíma­frekt fyrir  fram­kvæmda­valdið að taka saman þær upp­lýs­ingar sem hann óskar eftir. 

Hér má sjá yfir­lit yfir þær fyr­ir­spurnir sem Björn hefur lagt fram. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár