Vildi tíu milljónir frá Stundinni og blaðamanni en tapaði fyrir dómi

Stundin og Atli Már Gylfason, fyrr­ver­andi blaða­maður Stund­ar­innar, voru sýknuð af meið­yrðum fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­ness í morgun. Rík­is­út­varpið greiddi hins vegar stefn­and­anum 2,5 millj­ónir króna eftir lög­fræði­hótun.

Vildi tíu milljónir frá Stundinni og blaðamanni en tapaði fyrir dómi

Hér­aðs­dómur Reykja­ness sýkn­aði í dag Stundina og Atla Má Gylfason, fyrr­ver­andi blaða­mann Stund­ar­innar, af meið­yrða­kæru Guð­mundar Spar­takusar Ómars­sonar.

Guð­mundur Spar­takus stefndi Atla Má og Stund­inni vegna umfjöll­unar í Stund­inni um hvarf Friðriks Krist­jáns­sonar í Paragvæ, en Guð­mundur Spar­takus kom fyrir í umfjöll­un­inni þar sem íslensk lög­reglu­yf­ir­völd reyndu mán­uðum saman að ná sam­bandi við hann vegna máls­ins.

Guð­mundur Spar­takus vildi fá greiddar tíu millj­ónir króna frá Stund­inni og Atla Má. Áður hafði hann tapað meið­yrða­máli gegn Sigmundi Erni Rún­ars­syni, rit­stjóra sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­brautar. Hann stefndi einnig þremur frétta­mönnum Rík­is­út­varps­ins. Yfir­stjórn Rík­is­út­varps­ins tók ákvörðun um að greiða Guðmundi Spar­takusi 2,5 millj­ónir króna í sátta­greiðslu, án þess þó að leið­rétta eða draga til baka frétta­flutn­ing sinn. 

Guð­mundur taldi sig vera „ónefnda Íslend­ing­inn“ í umfjöllun Stund­ar­innar um hvarf Friðriks. Að mati dóms­ins þótti ekki sýnt fram á það.

Í dóms­orði kemur fram að fjöl­miðlar hafi mik­il­vægu hlut­verki að gegna. „Hafa fjöl­miðlar mik­il­vægu hlut­verki að gegna við miðlun upp­lýs­inga og skoð­ana um þjóð­fé­lags­leg mál­efni. Á almenn­ingur rétt á að fá upp­lýs­ingar sem slík mál­efni varða og þurfa sér­stak­lega ríkar ástæður að vera fyrir því að skerð­ing á frelsi fjöl­miðla geti talist nauð­syn­leg í lýð­ræð­is­þjóð­fé­lagi eins og nánar kemur fram í dómum Hæsta­réttar Íslands... Slíkar skerð­ingar geta eftir atvikum átt við séu ósönn ummæli birt eða borin út opin­ber­lega gegn betri vit­und. Umfjöllun stefnda um hvarf Friðriks Krist­jáns­sonar fellur undir fram­an­greint enda telst það hlut­verk fjöl­miðla að fjalla um alvar­leg mál sem kunna að vera refsi­verð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár