Næturnar voru algert helvíti

Í nokkur ár hafa Bjarni Klemenz og Eshan Sayed Hoseiny, eða Eshan Ísaksson, spilað saman fót­bolta. Þegar Bjarni tók Eshan tali kom í ljós að hann fær bæði sekt­ar­kennd og martraðir vegna þess sem gerð­ist þegar hann varð sendi­sveinn smygl­ara í Tyrk­landi. Sjálfur hafði hann verið svik­inn á flótt­anum, eftir að hafa farið fót­gang­andi frá Íran yfir landa­mærin til Tyrk­lands með litla bróður sínum.

Heima
Heima Þegar þú átt svona flókna sögu getur verið flókið að skil­greina hvar heima er. Heima er í Íran þar sem for­eldrar hans og vinir eru, það er í Afganistan þaðan sem hann kemur og það er líka á Íslandi þar sem Eshan hefur kynnst fólki sem sam­þykkti hann. Bróðir hans varð hins vegar eftir í Noregi, og það var sárt að þurfa að aðskilj­ast honum. Mynd: Úr einkasafni

Nafn?

Eshan Ísaksson (Eshan Sayed Hoseiny)

Hvar fædd­ist þú?

Íran.

Hvað varstu gam­all þegar þú fórst frá Íran og af hverju?

Bræð­urnirBræð­urnir voru bara börn þegar þeir lögðu á flótta. Þessi mynd var tekin í Íran árið 2011, áður en þeir lögðu af stað fót­gang­andi yfir landa­mærin í Tyrk­landi, þar sem þeir lentu í klóm smygl­ara.

15 ára. Af því að ég var bara núll og nix fyrir írönskum stjórn­völdum, ég til­heyri útbrunnu kyn­slóð­inni, við erum börn flótta­manna. En það sem gerð­ist var að vinnu­fé­lagi pabba spark­aði honum úr fyr­ir­tæk­inu sem þeir stofn­uðu. Og við höfðum þá enga papp­íra og gátum ekki leitað réttar okkar fyrir dóm­stólum.

Hvert fórstu?

Ég gat ekki ferð­ast lög­lega, það var ekk­ert annað í stöð­unni en að fara fót­gang­andi yfir landa­mærin til Tyrk­lands. Það tók …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár