Beitt trúarlegu ofbeldi í tíu ár

Tvítug að aldri var Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir and­lega nið­ur­brotin, með ógreinda áfallastreituröskun eftir kyn­ferð­is­brot og önnur áföll. Hún hafði deyft sig með áfengi en tek­ist að snúa við blað­inu, aðeins til þess að aðrir erf­ið­leikar tækju við, átröskun og alvar­leg veik­indi í fjöl­skyldu hennar. Steinunn var því and­lega mjög veik fyrir þegar hún fann líkn innan Hvíta­sunnu­kirkj­unnar. En þrátt fyrir að veran innan kirkj­unnar hjálp­aði Stein­unni að rísa aftur upp þýddi hún annað, tíu ár af því sem Steinunn kallar trú­ar­legt ofbeldi.

„Ég fór í messu hjá Hvíta­sunnu­kirkj­unni í Fíla­delfíu, sett­ist þar á kirkju­bekk og drakk allt í mig. Þetta var svo­lítið eins og að fara á rokktón­leika, það var verið að tala beint inn í sál­ina á mér, mér sem var að glíma við svo mikla erf­ið­leika að ég hélt ég myndi brotna. Það kom þarna ein­hver predik­ari sem ávarp­aði söfn­uð­inn og mér fannst hann vera að tala við mig eina. „Ég veit að þér líður ótrú­lega illa, ég veit að lífið er erfitt en við getum hjálpað þér. Það er til lausn. Ef þú kemur til okkar ertu umvafin kær­leik og það er algóður guð sem elskar þig, alveg sama hvað þú hefur gert áður.“ Ég fór að hágráta á fyrstu mín­út­unum. Það tók bara nokkrar vikur þar til ég var komin á kaf inn í Hvíta­sunnu­söfn­uð­inn. Það tók mig hins vegar ára­tug að kom­ast þaðan aftur út.“

Svona …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár