Erlendum ferðamönnum í apríl fækkar milli ára

Brott­farir erlendra ferða­manna um Kefla­vík­ur­flug­völl voru 4% færri í apríl en í fyrra. Hægt hefur veru­lega á fjölgun ferða­manna milli ára.

Leifsstöð
Leifs­stöð Hægst hefur veru­lega á fjölgun ferða­manna.

Brott­farir erlendra ferða­manna í apríl voru 4% færri í apríl en í sama mán­uði í fyrra. Sex þús­und færri ferða­menn yfir­gáfu landið, en Bretar og Banda­ríkja­menn voru 40% ferða­mann­anna. Þetta kemur fram á vef Ferða­mála­stofu.

Aukning í apríl hefur að jafn­aði verið 28% milli ára og ljóst er að hægt hefur veru­lega á fjölgun ferða­manna og hefur sú þróun mælst í allan vetur. Fjöldi ferða­manna í apríl hefði mælst enn minni ef ekki hefði verið fyrir veru­lega fjölgun í brott­förum pól­skra ferða­manna. „Hlut­falls­lega er mest fjölgun í brott­förum Pólverja sem voru næstum tvö­falt fleiri í apríl í ár en í fyrra en sem fyrr má leiða líkum að því að það sé í tals­verðu mæli umferð pól­skra rík­is­borg­ara sem hér eru búsettir atvinnu sinnar vegna,“ segir í frétt Ferða­mála­stofu.

Fjölgun ferðamanna dregist verulega saman

Utan­lands­ferðum Íslend­inga í apríl hefur einnig fækkað milli ára, en 52.700 Íslend­ingar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár