Frambjóðandi Kvennahreyfingarinnar vildi kristna grunnskóla

Segir ver­una í Hvíta­sunnu­söfn­uð­inum hafa stjórnað afstöðu sinni. Er trú­laus í dag.

Frambjóðandi Kvennahreyfingarinnar vildi kristna grunnskóla
Var á kafi í Hvíta­sunnu­söfn­uð­inum Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir, fram­bjóð­andi Kvenna­hreyf­ing­ar­innar, lagði til í BA-rit­gerð­inni sinni árið 2012 að komið yrði á fót kristnum grunn­skóla. Á þeim tíma var hún á kafi í Hvíta­sunnu­söfn­uð­inum og segir það hafa litað alla sína afstöðu. Steinunn er trú­laus í dag og hefur kúvent afstöðu sinni. Mynd: Kári Sverrisson

Fram­bjóð­andi Kvenna­hreyf­ing­ar­innar lagði til í BA-rit­gerð sinni árið 2012 að á fót yrði komið kristnum grunn­skóla í Reykja­vík. Fullt til­efni væri til þess vegna breyt­inga sem orðið hefðu á stefnu borg­ar­innar varð­andi krist­in­fræðslu og kirkju­ferðir hjá grunn­skóla­börnum. Réttur for­eldra, sem ekki vildu að börn þeirra hlytu kristið upp­eldi í grunn­skólum, hefði fengið að trompa rétt krist­inna for­eldra. Umræddur fram­bjóð­andi, Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir, seg­ist í sam­tali við Stundina hafa kúvent afstöðu sinni, hún hafi verið á kafi í Hvíta­sunnu­söfn­uð­inum á þessum tíma sem hafi litað alla hennar afstöðu.

Steinunn skipar annað sæti á lista Kvenna­hreyf­ing­ar­innar í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Í rit­gerð­inni setti hún á svið grunn­skóla fyrir yngstu bekki sem byggði á kristnum grund­velli, sem gæfi „fjöl­skyldum kost á að mennta barn sitt í skóla sem byggir á kristnum grund­velli þar sem trúin er metin sem lífs­gæði og grund­völlur lífs­mót­unar. Þar er trúnni á Guð gefið rými til að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár