Skylt verði að gera ráð fyrir rafhleðslustöðvum við nýbyggingar

Drög að breyt­ingu á bygg­ing­ar­reglu­gerð komin fram til umsagnar. Gert ráð fyrir mögu­leika á raf­hleðslu­stöð við hvert bíla­stæði. Þörf á átaki þegar kemur að eldri bygg­ingum.

Skylt verði að gera ráð fyrir rafhleðslustöðvum við nýbyggingar
Gert ráð fyrir raf­bíla­hleðslu í bygg­ing­ar­reglu­gerð Lögð hafa verið fram drög að breyt­ingu á bygg­ing­ar­reglu­gerð sem, ef sam­þykkt verður, hefur í för með sér að gera verði ráð fyrir tengi­bún­aði vegna hleðslu raf­bíla við hvert bíla­stæði. Mynd: Wikipedia

Ætli Ísland sér að standa við skuld­bind­ingar Par­ís­ar­sátt­mál­ans verður að bregð­ast við af mik­illi festu. Draga þarf úr útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og ein áhrifa­rík­asta leiðin í þeim efnum er orku­skipti í sam­göngum. Til þess að slík orku­skipti séu mögu­leg þarf að skapa aðstæður til þess að almenn­ingur geti skipt út bílum sem brenna jarð­efna­elds­neyti yfir í bíla sem ekki menga. Þar er einkum horft til raf­væð­ingar bíla­flot­ans en sér­fræð­ingar segja að for­senda þess að slíkt sé mögu­legt sé að almenn­ingur geti hlaðið bíla sína heima hjá sér. Sem stendur er ekki skylt að huga að teng­ingum fyrir raf­hleðslu­stöðvar við bygg­ingu hús­næðis en líkur eru til að breyt­ing verði þar á.

Samkvæmt skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands frá því í febr­úar 2017 má gera ráð fyrir því losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hér á landi verði, að óbreyttu, á bil­inu 53 til 99 pró­sent meiri árið 2030 heldur en hún var árið 1990. Skuld­bind­ingar Íslands vegna Par­ís­ar­sátt­mál­ans eru þær að árið 2030 skuli Ísland, í sam­floti með Noregi og Evr­ópu­sam­band­inu, hafa dregið úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 40 pró­sent miðað við los­un­ina árið 1990.

Orkuskipti í samgöngum lykilatriði

Um þessar mundir er unnið að aðgerð­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum og sam­kvæmt frétt á vef stjórn­ar­ráðs­ins frá 30. mars síð­ast­liðnum átti áætl­unin að liggja fyrir nú á vor­mán­uðum. Hún hefur þó ekki enn verið kynnt. Ljóst má þó vera að orku­skipti í sam­göngum eru einn lyk­il­þátt­ur­inn í því hvernig mögu­legt verður að upp­fylla skuld­bind­ingar Íslands.

Drög að breyt­ingu á bygg­ing­ar­reglu­gerð voru lögð fram til umsagnar síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, 9. maí. Í drög­unum er gert ráð fyrir breyt­ingum á reglu­gerð­inni er snúa að orku­skiptum í sam­göngum. Breyt­ing­arnar varða raf­bíla­hleðslur en verði drögin sam­þykkt óbreytt þýðir það að í nýbygg­ingum og við end­ur­bygg­ingu húsa skuli gert ráð fyrir tengi­bún­aði vegna hleðslu raf­bíla við hvert bíla­stæði. Þá segir einnig að hugað skuli að tengi­bún­aði vegna hleðslu raf­bíla við bygg­ingar og end­ur­bygg­ingar atvinnu­hús­næðis.

Þróunin mjög hröð

 

Björn KarlssonFor­stjóri Mann­virkja­stofn­unar segir mik­il­vægt að bygg­ing­ar­reglu­gerð verði breytt. Það eitt og sér hafi hins vegar lítið að segja, stór átak þurfi til svo hin mik­il­væga raf­bíla­væð­ing geti átt sér stað.

Björn Karlsson, for­stjóri Mann­virkja­stofn­unar, segir það hafa legið fyrir um langa hríð að vilji væri fyrir því innan umhverfis- og sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins að skerpa á ákvæðum bygg­ing­ar­reglu­gerðar hvað þetta varðar. Vísar Björn þar til þess að á síð­asta ári, í júlí 2017, voru lögð fram drög að breyt­ingu á bygg­inga­reglu­gerð til umsagnar á heima­síðu ráðu­neyt­is­ins sem sneru að við­líka ákvæðum. Þar var hins vegar um almenn­ara orða­lag að ræða og að sumu leyti veik­ara. Breyt­ingin þá var á þá leið að í nýbygg­ingum og við end­ur­bygg­ingu skyldi gera ráð fyrir tengi­bún­aði vegna hleðslu raf­bíla en ekki til­tekið að slíkt væri skylda við hvert bíla­stæði. Vegna ýmissa ástæðna, stjórn­ar­slita og kosn­inga þar á meðal, dag­aði sú reglu­gerð­ar­breyt­ing uppi og nú hafa því verið lögð fram ný drög, sem fyrr segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár