Efling krefst þess að greiddar verði afturvirkar launahækkanir

Samið um umræddar hækk­anir í sept­em­ber á síð­asta ári. Starfs­fólk á Land­spít­ala þegar fengið greitt.

Efling krefst þess að greiddar verði afturvirkar launahækkanir
Krefjast aft­ur­virkra launa­hækk­ana Sólveig Anna Jóns­dóttir, nýr for­maður Eflingar, krefst þess fyrir hönd félags­manna sinna að þeir fái þegar í stað greiddar aft­ur­virkar launa­hækk­anir sem samið var um í sept­em­ber á síð­asta ári. Mynd: Pressphotos

Stétt­ar­fé­lagið Efling krefst þess að félags­menn sínir, sem starfi á hjúkr­un­ar­heim­ilum, fái þegar í stað greiddar aft­ur­virkar hækk­anir á launum sínum. Samið hafi verið um slíkar hækk­anir í sept­em­ber á síð­asta ári en þær hafi enn ekki komið til fram­kvæmda.

Í til­kynn­ingu frá Eflingu er lýst áhyggjum af þeim töfum sem hafi orðið á fram­kvæmd launa­þró­un­ar­trygg­ingar af hálfu aðild­ar­fé­laga Samtaka fyr­ir­tækja í vel­ferð­ar­þjón­ustu. Samið hafi verið um aft­ur­virkar launa­hækk­anir 21. sept­em­ber á síð­asta ári milli ASÍ, rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar. Undir þann samn­ing falli meðal ann­ars stofn­anir sem starfi á grund­velli þjón­ustu­samn­inga við Sjúkra­trygg­ingar Íslands.

Hins vegar hafi þessar launa­hækk­anir ekki komið til fram­kvæmda hjá hjúkr­un­ar­heim­ilum og öðrum fyr­ir­tækjum innan Samtaka fyr­ir­tækja í vel­ferð­ar­þjón­ustu. Það sé brot á sam­komu­lag­inu sem gert var og séu í ofaná­lag ósann­gjarnar gagn­vart félags­mönnum Eflingar. Bent er á að starfs­fólk á vegum rík­is­ins, þar með taldir starfs­menn Land­spít­al­ans, hafi fengið þessar greiðslur fyrir tveimur mán­uðum.

„Efling kallar eftir því að van­goldnar aft­ur­virkar hækk­anir og önnur laun sem félags­menn eiga ský­lausan rétt á verði greidd þegar í stað og starfs­fólk þeirra fyr­ir­tækja sem um ræðir ekki látið bíða stund­inni lengur,“ segir í frétta­til­kynn­ingu sem nýr for­maður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, und­ir­ritar. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár