Sigmundur Davíð gagnrýndi „kerfið“ og sagði sótt að fullveldinu

Formaður Mið­flokks­ins beindi spjótum sínum að „kerf­inu“ og erlendum aðilum í setn­ing­ar­ræðu lands­þings. Hann sagði Mið­flokk­inn „þora að stjórna“ og virt­ist þakka Leið­rétt­ing­unni efna­hags­legan við­snún­ing.

Sigmundur Davíð gagnrýndi „kerfið“ og sagði sótt að fullveldinu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, gagn­rýndi „kerfið“, erlend áhrif og vog­un­ar­sjóði í ræðu sinni við setn­ingu lands­þings Mið­flokks­ins, sem fram fer í Hörpu um helg­ina. Lands­þingið ber yfir­skrift­ina „Upphaf nýrra tíma“. „Við ætlum að inn­leiða nýja tíma í íslenskum stjórn­málum og ekki veitir af,“ sagði Sig­mundur Davíð í upp­hafi ræðu sinnar, en hann er einn í fram­boði til for­manns.

Í ræðu sinni beindi Sig­mundur spjótum sínum að „kerf­inu“, sem hann telur að hafi staðið í vegi fyrir umbóta­málum í hans ráð­herra­tíð. Hann sagði stjórn­mála­flokka fórna mál­efnum og kosn­inga­lof­orðum fyrir ráð­herra­stóla og eft­ir­láta kerf­inu að stjórna land­inu. Nefndi hann sér­stak­lega núver­andi rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, sem hann sagði mynd­aða um að verja núver­andi kerfi. Þá sagði ráð­herra afhenda vald sitt til kerf­is­ins. „Það er nefni­lega orðið alltof fátítt í stjórn­málum að menn vilji yfir höfuð stjórna,“ sagði Sig­mundur Davíð. „Menn vilja vera ráð­herrar og hafa ákveðnar stöður í póli­tík, en vilja menn stjórna?“

Hann sagði Mið­flokk­inn standa við það sem hann segir og gefin fyr­ir­heit og að flokk­ur­inn „þori að stjórna“. Stefna Mið­flokks­ins byggi ekki á fyr­ir­fram gef­inni hug­mynda­fræði, aðlagi ekki raun­veru­leik­ann að hug­mynda­fræði sinni eins og aðrir flokkar, heldur öfugt. „Við þessar aðstæður virka stjórn­málin ekki, lýð­ræðið virkar ekki sem skyldi, rétt­ur­inn er tek­inn af þeim sem eiga að fara með valdið, almenn­ingi,“ sagði Sig­mundur Davíð. „Skýrasta dæmið er núver­andi rík­is­stjórn.“

Útlendingar sækja að fullveldinu

Sig­mundur Davíð virt­ist þakka „Leið­rétt­ing­unni“, skulda­nið­ur­fell­ingu í kjöl­far hruns, þann við­snún­ing sem varð í efna­hags­málum á þessum árum. „Þegar var ráð­ist í stórar aðgerðir í efna­hags­málum, sem var til­raun sem byggð­ist á skyn­sem­is­hyggju og rök­hugsun, þá skil­uðu þær árangri,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Gögn sem fjár­mála­ráðu­neytið hefur lagt fram sýndu að skulda­leið­rétt­ingin rann að mestu til tekju­hæstu hópa íslensks sam­fé­lags og fólks sem er á fimm­tugs- og sex­tugs­aldri. Tekju­lægstu 20 pró­sentin fengu ein­ungis 13 pró­sent af því skattfé sem varið var í skulda­nið­ur­fell­ing­arnar. „Leið­rétt­ingin“ var kynnt sum­arið 2014, en hag­vöxtur árið 2013 var 4,3 pró­sent.

Þá vék hann máli sínu að 100 ára afmæli full­veldis Íslands og sagði að því sótt af erlendum öflum. Hann sagði að ætl­ast væri til þess að Ísland gefi eftir hvað varðar reglu­gerðir sem þurfi að inn­leiða og sagði erlenda vog­un­ar­sjóði ráða för á íslenskum fjár­mála­mark­aði. „Full­veldið heldur ekki áfram sjálf­krafa,“ sagði Sig­mundur Davíð. „Við sjáum nú þegar hvernig erlend ríki og alþjóða­stofn­anir hafa sótt að full­veld­inu á ýmsan hátt.“

Loks vís­aði hann í ljóð Jónasar Hall­gríms­sonar, Ísland. „Það er svo bágt að standa í stað, og mönn­unum munar, ann­að­hvort aftur á bak, ellegar nokkuð á leið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár