Börn bíða í níu mánuði eftir sálfræðiþjónustu á Suðurlandi

Stysti bið­tími eftir sál­fræði­þjón­ustu hjá heil­brigð­is­stofn­unum er á Vest­fjörðum. Engin sér­tæk sál­fræði­þjón­usta fyrir börn í boði á Norð­ur­landi utan Akur­eyrar.

Börn bíða í níu mánuði eftir sálfræðiþjónustu á Suðurlandi
Langur bið­tími Biðtími eftir sál­fræði­þjón­ustu getur verið allt upp í níu mán­uðir hjá heil­brigð­is­stofn­unum lands­ins. Mynd: Pressphoto / Geiri

Biðtími eftir sál­fræði­þjón­ustu fyrir börn hjá Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­lands var níu mán­uðir á síð­asta ári. Biðtími á Heil­briðg­is­stofnun Suð­ur­nesja er á milli fimm og sex mán­uðir, á Akureyri allt að fimm mán­uðir, hjá Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands er bið­tím­inn nú rúmir þrír mán­uðir og á Vest­ur­landi um tveir mán­uðir. Stystan tíma tekur að fá við­tal fyrir börn hjá sál­fræð­ingi hjá Heil­brigð­is­stofnun Vest­fjarða en þar er bið­tími um þrjár vikur. Heilsu­gæslan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er svo sér á báti en þar er við­mið um bið­tíma það að haft sé sam­band við for­ráða­mann barns innan tíu virkra daga frá því að til­vísun berst. Þá er gef­inn við­tals­tími eða sím­tal, ef við á, innan þriggja mán­aða.

Þetta kemur fram í svari Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur, þing­konu Mið­flokks­ins. Anna Kolbrún lagði fram fyr­ir­spurn þar sem spurt var um hversu langir bið­tímar væru eftir sál­fræði­þjón­ustu hjá heil­brigð­is­stofn­unum lands­ins. Í svari ráð­herra kemur fram að engin sál­fræði­þjón­usta er í boði fyrir full­orðna á vegum heil­brigð­is­stofn­an­anna á Aust­ur­landi, á Suð­ur­landi eða á Vest­ur­landi, nema þá í þeim til­fellum þar sem um mæður ung­barna er að ræða.

Vantar sálfræðinga í sjö stöðugildi til að uppfylla lágmarksmarkmið

Hjá Heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands er bið­tími breyti­legur milli starfs­stöðva og er hann víð­ast hvar innan við mán­uður en á Akureyri allt að fimm mán­uðir. Sértæk þjón­usta fyrir börn er ein­göngu í boði á Akureyri. Hjá Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja er sem fyrr segir fimm til sex mán­aða bið fyrir börn eftir sál­fræði­þjón­ustu en þó þriggja til fjög­urra mán­aða fyrir þau sem eru talin í for­gangs­hópi. Bið eftir við­tals­tíma fyrir full­orðna er um níu mán­uðir. Af 15 starfs­stöðvum Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er aðeins boðið upp á sál­fræði­þjón­ustu fyrir full­orðna á einni stöð.

Alls eru starf­andi sál­fræð­ingar í 31,75 stöðu­gildum á heil­brigð­is­stofn­unum um landið. Lang­flestir eru starf­andi hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, 13,5 stöðu­gildi. Miðað er við að einn sál­fræð­ingur sé starf­andi fyrir hverja 9.000 íbúa en til að upp­fylla það við­mið þyrfti að fjölga stöðu­gildum um sjö tals­ins á heil­brigð­is­stofn­unum. Í svari ráð­herra kemur fram að aug­lýsa eigi tvær heilar stöður sál­fræð­inga til við­bótar hjá Heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands á næst­unni og að fjölga eigi stöðum sál­fræð­inga um sex á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á þessu ári, í sam­ræmi við geð­heil­brigð­is­á­ætlun.

 




Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár