Örvar var rasisti en sneri við blaðinu: „Mér líður miklu betur í dag í hjartanu“

Örvar Harð­ar­son var fullur af for­dómum í garð múslima en sneri algjör­lega við blað­inu. Trúði áróðri og fölskum fréttum. Missti fólk frá sér sem hann taldi vini sína en er stoltur af sjálfum sér.

Örvar var rasisti en sneri við blaðinu: „Mér líður miklu betur í dag í hjartanu“
Var ras­isti en sneri við blað­inu „Mér líður miklu betur í dag í hjart­anu, í sál­inni,“ segir Örvar Harð­ar­son en hann sneri ræki­lega við blað­inu hvað varðar for­dóma­fullar skoð­anir á múslimum og íslam. Mynd: Guðrún Þórs

Örvar Harð­ar­son var fullur af for­dómum í garð trú­ar­bragð­anna íslam og í garð múslima. Hann eyddi löngum stundum á net­inu þar sem hann leit­aði uppi frá­sagnir um glæpi, ofbeld­is­verk og kúgun múslima, hætt­una af íslam­væð­ingu sam­fé­laga og hvernig múslimar legð­ust upp á vel­ferð­ar­kerfi vest­rænna ríkja sem þeir flykkt­ust til. Allt saman voru þetta falskar fréttir, rangar upp­lýs­ingar, upp­fullar af for­dómum og áróðri. Örvar vissi það ekki þá. En hann veit það núna.

Komst úr feni fordóma

Örvar sneri algjör­lega við blað­inu, hann átt­aði sig, með hjálp góðs fólks, á að hann hefði dottið ofan í áróð­urspytt ras­ista. Það kost­aði sitt, Örvar missti frá sér fólk sem hann taldi vini sína, jafn­vel bestu vini, og ætt­ingja einnig. Fólk sem hunsar hann í dag og úti­lokar hann. Örvar er samt stoltur af sér, fyrir að hafa tekið rétta ákvörðun. „Ég er glaður með að hafa tek­ist að kom­ast úr þessu feni for­dóma gagn­vart fólki sem hefur aðrar skoð­anir en ég eða önnur trú­ar­brögð.“

Var andsnúinn múslimum og byggingu moska

Það vakti athygli þegar Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­er­son birti við­tal sem hann tók við Örvar og Margréti Frið­riks­dóttur, sem hefur talað með mjög nei­kvæðum hætti um múslima og inn­flytj­endur á opin­berum vett­vangi, á Youtube í mars­mán­uði 2016. Örvar hafði þá um langt skeið haldið uppi umræðu sem var mjög andsnúin múslimum, meðal ann­ars á Pírata­spjall­inu og víðar á Facebook. Í við­tal­inu tók­ust þau Margrét og Örvar hart á við Bjartmar og lýsti Örvar því meðal ann­ars yfir að hann væri and­vígur því að hér á landi yrðu reistar moskur og hann vildi ekki sjá múslima á Íslandi. Viðtalið var meðal ann­ars birt á Nútím­anum.

Tók þátt í að stofna Íslensku þjóðfylkinguna

Örvar skipti ekki um skoðun strax heldur tók hann þátt í að stofna Íslensku þjóð­fylk­ing­una, stjórn­mála­afl sem meðal ann­ars hafnar fjöl­menn­ingu, er and­vígt því að moskur fái að rísa á Íslandi, vill að Ísland gangi úr Schengen-sam­starf­inu og vill standa vörð um þjóð­menn­ingu Íslend­inga. Sem sagt, daðrar við ras­isma. Jafn­framt hélt Örvar áfram að lýsa andúð sinni á múslimum á net­inu, ekki síst á Pírata­spjall­inu. Sé sú síða skoðuð má sjá ara­grúa af færslum frá Örvari þar sem hann gagn­rýnir múslima og varar við komu þeirra til lands­ins. Raunar er flest það sem hann setti þar inn honum til lít­ils sóma. Í apríl 2016 setti einn not­enda spjall­borðs­ins inn færslu þar sem hann furð­aði sig á því að aðrir not­endur nenntu að standa í rök­ræðum við Örvar, það væri tíma­sóun. 

Píratar hjálpuðu Örvari

En allt í einu dró úr skrifum Örvars af þessum toga. Þegar leið fram á árið 2017 fóru að birt­ast almennar vanga­veltur af hans hálfu um stjórn­mál og rök­ræður um þau inn­legg fóru að mestu fram í bróð­erni. Í maí það sama ár birti hann síðan færslu þar sem hann lýsti því að hann hefði haft rangt fyrir sér. Í síð­ustu viku birti hann síðan færslu á Pírata­spjall­inu þar sem hann sagði að hann ætti Pírötum mikið að þakka, „fyrir að kom­ast út úr því að vera for­dóma­fullur fáviti í mann sem vill mann­rétt­indi fyrir alla, því það er ákveð­inn skiln­ingur sem felst í því. Því segi ég við ykkur öll, takk kær­lega fyrir mig og aldrei gef­ast upp á for­dóma­fullu fólki, því fræðsla er eitt­hvað sem mjög margir Íslend­ingar þurfa á að halda.“

Leitaði að upplýsingum sem studdu rangan málstað

Örvar ræddi við Stundina um þennan við­snún­ing sinn og hvernig það er að fara frá því að vera „for­dóm­fullur fáviti“ eins og hann orðar það sjálfur yfir í mann sem vill virða alla. „Ég var alveg heilt ár fastur í þessum pytti. Ég hafði aldrei velt trú­ar­brögðum fyrir mér áður, ég er sjálfur trú­laus og spáði ekk­ert í þessi mál. Svo bara datt ég inn í þetta. Ég get ekki full­yrt hvernig það gerð­ist en ég held að það hafi byrjað með því að ég sá ein­hvern áróður gegn íslam á net­inu. Það vatt svo upp á sig, ég fór að leita að ein­hverju slæmu sem hægt væri að tengja múslima við og snjó­bolt­inn fór bara að rúlla. Ég var á tíma­bili alveg fastur í mínum skoð­unum en ég var samt alltaf að leita eftir upp­lýs­ingum. Ég leit­aði reyndar mest að upp­lýs­ingum sem styddu minn ranga mál­stað. Þegar mér var bent á að ég hefði rangt fyrir mér þá leit­aði ég uppi upp­lýs­ingar, sem ég átt­aði mig á eftir að ég sneri við blað­inu að voru bara áróður, falskar upp­lýs­ingar. En ég átt­aði mig ekki á því þá.“

Þurfti að fara í algjöra sjálfskoðun

Fór í algjöra sjálf­skoðunÖrvar, sem lengi var upp­fullur af andúð á múslimum, sneri algjör­lega við blað­inu og átt­aði sig á að mál­staður hans var rangur.

Örvar segir að svona hafi þetta gengið um langa hríð. Hann hafi bara for­herst þegar honum var and­mælt. En svo hafi gagn­rýnin tekið að bíta, það að fólk héldi áfram að ræða við hann, leiða honum fyrir sjónir að skoð­anir hans væru for­dóma­fullar og rangar og sýna honum fram á það með dæmum, það bar árangur. Það tók tíma, vissu­lega, en hægt og rólega sneri Örvar við blað­inu. „Ég hef aldrei verið á móti fólki, hvernig það lítur út, hvort fólk sé svart eða hvítt eða neitt í þeim dúr. En allt í einu var ég dott­inn ofan í þennan áróð­urspytt varð­andi trú­ar­brögðin íslam. Það var aðal­lega það, þessi gerð ras­isma. Ég taldi þetta aldrei vera rasíska skoðun þá. Ég var alveg harður á því að íslam væri ekki kyn­þáttur og þar með gæti ég ekki verið kyn­þátta­hat­ari, með rasískar skoð­anir, þótt ég væri and­vígur íslam og múslima­trú og því fólki sem hana aðhyllt­ist. En sam­kvæmt stjórn­ar­skránni okkar þá getum við ekki mis­munað öðru fólki sökum trúar þeirra, eða sökum stjórn­mála­skoð­ana eða öðru slíku. Ég þurfti því að fara í algjöra sjálf­skoðun þegar ég átt­aði mig á þessu.

Ég fékk hjálp frá mjög mörgum í kringum mig, til að mynda frá mörgum Pírötum. Mér var aldrei úthýst af Pírata­spjall­inu, mér var alltaf bara svarað. Ég var afskap­lega mikið á móti mörgum Pírötum vegna þess að mér leið eins og þeir væru að ráð­ast á mig, þegar þeir gagn­rýndu ýmis­legt sem ég lét fara frá mér. Ég fatt­aði bara aldrei að það sem ég var að gera var í raun að fremja eins konar mann­rétt­inda­brot gagn­vart öðrum, með því að setja fram skoð­anir sem inni­héldu ras­isma og í raun hat­urs­orð­ræðu. Það var ekk­ert eitt sem olli þessum við­snún­ingi, það voru mörg dæmi sem að lyftu rauðu flaggi hjá mér. Fréttir af áróð­urs­síðum sem ég sá að voru vafa­samar, stóð­ust ekki skoðun, og svo fólk, Píratar og aðrir, sem bentu mér á vit­leys­una. Ég fatt­aði ekki einu sinni hvað gagn­rýnin hugsun var á þessum tíma. Þegar ég fór svo að beita gagn­rýnni hugsun, fór að velta því fyrir mér hvaðan upp­lýs­ingar kæmu, hvort þær væru trú­verð­ugar, þá átt­aði ég mig á því að ég hafði látið mata mig á fölskum upp­lýs­ingum. Ég sá bara að þarna var eitt­hvað að.“

Útilokaður af vinum og skyldfólki

Örvar segir að það hafi verið átak að skipta um kúrs en það hafi samt verið eitt­hvað sem hann varð að gera, heims­mynd hans hafi ekki stað­ist lengur. „Þegar ég svo fatt­aði að það sem ég var að halda fram stóðst ekki skoðun og var árás á annað fólk, þá varð ég að fara í sjálf­skoðun. Hvað ætlarðu að gera? Ætlarðu að halda áfram eða ætlarðu að snúa við blað­inu? Þetta var erfitt, já, að mörgu leyti var þetta erfitt. Eftir að ég fór að sjá að ég hefði rangt fyrir mér og fór að við­ur­kenna það sner­ust margir í kringum mig gegn mér. Fólk sem ég taldi vini mína, skyld­fólk mitt jafn­vel, það úti­lok­aði mig algjör­lega. Þetta er fólk sem er á sömu skoðun og ég var á áður en ég átt­aði mig á að ég væri bara ras­isti. Sumt af þessu fólk voru bestu vinir mínir en þau vilja ekk­ert með mig hafa núna. Það er ekki svarað í sím­ann, ég get ekki útskýrt mína afstöðu á neinn hátt. Ég myndi vilja hjálpa þessu fólki til að snúa við blað­inu. Ég skil svo sem hvernig þeim líður, ég var á þessum stað sjálfur.“

„Ég skulda fullt af fólki afsökunarbeiðni“

En þrátt fyrir að Örvar hafi tapað vinum sínum eign­að­ist hann aðra í stað­inn eftir að hann skipti um skoðun. „Ég hef eign­ast fullt af nýjum vinum í stað­inn, mjög gott fólk sem ég get talað við. Sumt af því kenndi mér mikið á sínum tíma og varð þess vald­andi að ég sá villu míns vegar. Ég hef verið að reyna að koma því á fram­færi að ég sjái eftir hegðun minni, ég skulda fullt af fólki afsök­un­ar­beiðni. Mig langar að nota tæki­færið hér til að biðja alla afsök­unar ef ég hef meitt þá eða sært með skoð­unum mínum og fram­göngu. Ég hef haft sam­band við marga og beðið afsök­unar. Þeir hafa allir tekið mér vel.

Mér líður miklu betur í dag í hjart­anu, í sál­inni. Ég er stoltur af sjálfum mér og ég er glaður með að hafa tek­ist að kom­ast úr þessu feni for­dóma gagn­vart fólki sem hefur aðrar skoð­anir en ég eða önnur trú­ar­brögð. Ég veit að fólk sem er með þessar skoð­anir, fólk sem jafn­vel ræðst gegn mér, hugs­anir þeirra eru slæmar og þeim líður ekki vel. Ég vona bara að það fólk finni leið út, ég vona að mín saga geti hjálpað ein­hverjum í þeim efnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár