Uppskriftir mannfræðingsins

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir mann­fræð­ingur gerð­ist græn­metis­neyt­andi fyrir örfáum árum og gefur hér upp­skriftir að góðum og hollum réttum. „Það var ekki fyrr en rúmum tveimur árum síðar sem ég tók skrefið að fullu og gerð­ist vegan (e. græn­keri) og sneiði ég nú hjá öllum dýra­af­urðum. Þannig forð­ast ég hag­nýt­ingu gagn­vart dýrum.“

Uppskriftir mannfræðingsins

Pasta ríka mannsins

Ég á í nokk­urs konar ástar/hat­urs-sam­bandi við pasta þar sem meira hefur verið um hatur. Ég ólst upp hjá ein­stæðri móður sem var í tveimur störfum og jafn­vel þótt pen­ing­ur­inn hafi aðeins farið í helstu nauð­synjar dugði hann aldrei út mán­uð­inn. Pasta með pastasósu úr nið­ur­suðu­dós var því oft í mat­inn og ég fékk algjört ógeð. Nú er ég hægt og rólega farin að læra að pasta getur verið bragð­gott ef maður hefur efni á því að setja eitt­hvað meira út í það en Hunts-pastasósu. Þessi upp­skrift heitir því „pasta ríka manns­ins,“ þar sem inni­halds­efnin eru fleiri en tvö. Þessi rjóma­kennda upp­skrift með græn­meti þykir mér vera afar góð.

200 g pasta

2 fernur Oatly jurta-mat­reiðsl­urjómi

3 saxaðir hvít­lauks­geirar

Hálfur græn­metisten­ingur

Nokkrir sveppir

5 msk. nær­ing­ar­ger (e. nutritional …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár