Geir Þorsteinsson leiðir Miðflokkinn í Kópavogi

Fyrr­ver­andi for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands fer í sveit­ar­stjórn­arpóli­tík­ina.

Geir Þorsteinsson leiðir Miðflokkinn í Kópavogi
Fer fram fyrir Mið­flokk­inn Geir Þor­steins­son, fyrr­ver­andi for­maður KSÍ, hefur ákveðið að taka slag­inn í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Kópavogi.

Geir Þor­steins­son, fyrr­ver­andi for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ), mun leiða fram­boð Mið­flokks­ins til bæj­ar­stjórnar í Kópavogi í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor. Geir lét af emb­ætti for­manns KSÍ á síð­asta ári og hyggst nú demba sér í póli­tík­ina.

Geir var fram­kvæmda­stjóri KSÍ á árunum 1997 til 2007 og for­maður sam­bands­ins árin 2007 til 2017. Hann hefur frá því hann vék úr stóli for­manns, fyrir Guðna Bergsyni, unnið að sér­verk­efnum fyrir Knatt­spyrnu­sam­band Evrópu.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Mið­flokknum er haft eftir Geir að stefna Mið­flokks­ins verði að lækka álögur á íbúa Kópavogs og auka þjón­ustu bæj­ar­fé­lags­ins. Þá muni flokk­ur­inn kynna stefnu sína frekar, sem og fram­boðs­lista, á næst­unni.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu