Ætla að draga úr útgjaldavextinum þegar hagvöxtur minnkar

Ekki verður rekin sveiflu­jafn­andi útgjalda­stefna á kjör­tíma­bil­inu sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Hins vegar verða skattar lækk­aðir mest þegar hag­vöxtur gefur eftir.

Ætla að draga úr útgjaldavextinum þegar hagvöxtur minnkar
Ekki hægt að við­halda vexti í útgjöldum Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir óhjá­kvæmi­legt að dregið verði úr rík­is­út­gjöldum þegar hag­vöxtur minnkar. Mynd: Pressphotos

Rík­is­stjórnin ætlar að draga úr útgjalda­vexti rík­is­ins þegar hag­vöxtur gefur eftir. Þetta telur Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra „óhjá­kvæmi­legt“ vegna þess að vöxtur tekju­stofna verði ekki jafn mik­ill og áður. Á sama tíma, þ.e. á síð­ari hluta tíma­bils­ins sem fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar tekur til, er þó stefnt að því að lækka tekjur rík­is­sjóðs um tæp­lega 25 millj­arða á árs­grund­velli með skatta­lækk­unum, svo sem lækkun tekju­skatts, trygg­inga­gjalds og banka­skatts. 

„Á und­an­förnum árum hafa útgjöld rík­is­sjóðs auk­ist mikið og einnig er gert ráð fyrir að svo verði á fyrsta ári áætl­un­ar­innar. Óhjá­kvæmi­lega verður ekki hægt að við­halda jafn miklum útgjalda­vexti á næstu árum enda rénar hag­vöxtur og þar með vöxtur tekju­stofna,“ segir í umfjöllun um stefnumið og helstu nið­ur­stöður rík­is­fjár­mála­á­ætl­unar í grein­ar­gerð sem fylgir henni.

Að þessu leyti virð­ist sem ekki verði rekin sveiflu­jafn­andi útgjalda­stefna á kjör­tíma­bil­inu heldur þvert á móti; útgjöld verði aukin mest þegar hag­vöxt­ur­inn er mestur en haldið verði aftur af útgjöld­unum þegar hag­vöxt­ur­inn rénar. Hag­fræð­ingar sem Stundin hefur rætt við furða sig á þessu og benda á að almennt sé skyn­sam­legra að beita útgjalda­stefnu hins opin­bera til sveiflu­jöfn­unar, þvert á hag­sveifl­una, til að tryggja efna­hags­legan stöð­ug­leika. Á tekju­hlið fjár­mála­á­ætl­un­ar­innar er þetta gert í rík­ari mæli, en á síð­ari hluta áætl­un­ar­tíma­bils­ins er reiknað með að skatta­lækk­anir nái hámarki. Tekju­ráð­staf­anir til lækk­unar nema 22,4 millj­örðum árið 2022 og 24,5 millj­örðum árið 2023. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár