Aðeins 27 greiddu atkvæði í prófkjöri Pírata

Þrír í fram­boði á Akureyri. Einar Brynj­ólfs­son, fyrr­ver­andi þing­maður, vildi fyrsta sæti en fékk ekki.

Náði ekki efsta sætinu
Náði ekki efsta sæt­inu Einar Brynj­ólfs­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, sótt­ist eftir efsta sæti á lista flokks­ins í próf­kjöri fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar á Akureyri. Hann hafn­aði hins vegar í öðru sæti. Mynd: Píratar

Aðeins 27 manns tóku þátt í próf­kjöri Pírata fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar á Akureyri. Einar Brynj­ólfs­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, sótt­ist eftir því að leiða lista flokks­ins en lenti í öðru sæti. Þrír gáfu kost á sér.

Níutíu manns höfðu kosn­inga­rétt í próf­kjör­inu og því var það tæpur þriðj­ungur félags­manna sem tók þátt. Halldór Arason varð efstur í próf­kjör­inu, Einar annar og Guðrún Ágústa Þór­dís­ar­dóttir í þriðja sæti.

Bjarki Hilm­ars­son, for­maður Pírata á Akureyri, segir að vissu­lega séu þetta ekki margir þátt­tak­endur. „Vanda­málið okkar er að það eru ekk­ert allt of margir form­lega skráðir í félagið. Félagið er ekki gam­alt, það var stofnað í haust en fram að því var þetta allt undir hatti Pírata á Norð­aust­ur­landi. Félagið hefur  dálítið undir rad­arnum, við hefðum viljað hafa haustið til upp­bygg­ingar en þá skullu auð­vitað Alþing­is­kosn­ingar á. Orkan fór ansi mikið í þær og tím­inn hljóp frá okkur.“

Bjarki segir að þrátt fyrir að aðeins þrír hafi gefið kost á sér og þátt­taka hafi ekki verið meiri en raun bar vitni þá sé engan bil­bug á Pírötum á Akureyri að finna. „Við stefnum alveg ótrauð á fram­boð, við erum bara að leita að fólki sem vill gefa kost á sér og höfum þegar hafið mál­efna­vinnu.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár