Kona í hjólastól þurfti að yfirgefa salinn áður en leiksýningu lauk

Skýr­ingin sem starfs­fólk Borg­ar­leik­húss­ins fékk var að akstur stæði henni ekki til boða eftir klukkan tíu á kvöldin. Akst­ur­inn ekki á vegum ferða­þjón­ustu fatl­aðra.

Kona í hjólastól þurfti að yfirgefa salinn áður en leiksýningu lauk
Brugðið Berg Þór Ing­ólfs­syni, leik­ara við Borg­ar­leik­húsið, var brugðið í gær þegar áhorf­andi í hjóla­stól þurfti að yfir­gefa leik­sýn­ingu áður en henni var lokið. Skýr­ingin sem fékkst var að áhorf­and­anum stæði ekki til boða að fá keyrslu eftir tíu á kvöldin. Ferða­þjón­usta fatl­aðra í Kópavogi og Strætó sem sinnir ferða­þjón­ust­unni fyrir hin sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stað­festa þó að ekki hafi verið um keyrslu á þeirra vegum að ræða. Mynd: Pressphotos

Bergur Þór Ing­ólfs­son, leik­ari við Borg­ar­leik­húsið, lýsti því í Facebook-færslu í gær­kvöldi að á sýn­ingu sem hann hafi verið að leika í hafi kona í hjóla­stól yfir­gefið sal­inn fimmtán mín­útum áður en sýn­ing­unni lauk. „Þegar var farið að spyrj­ast fyrir um hvort eitt­hvað alvar­legt hafi komið upp á var skýr­ingin sú að akstur stendur henni ekki til boða eftir klukkan tíu á kvöldin. Henni er sem­sagt smalað upp í bíl áður en tjaldið fellur,“ skrif­aði Bergur Þór. Ferða­þjón­usta fatl­aðra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir þó að ekki hafi verið um akstur á sínum vegum að ræða.

Kristín Eysteins­dóttir Borg­ar­leik­hús­stýra var á sýn­ing­unni og varð sömu­leiðis vör við þegar konan yfir­gaf sal­inn. „Maður tekur eftir því þegar fólk fer úr salnum og við fórum auð­vitað að velta fyrir okkur hvort eitt­hvað hefði komið fyrir. Þá fengum við þessi svör sem Bergur lýsir. Þetta er auð­vitað alveg hrika­legt og nær ekki nokk­urri átt. Ég hyggst hafa sam­band við kon­una í dag og bjóða henni að koma aftur á sýn­ingu hjá okkur, ég vil bara að hún viti að hún er vel­komin í Borg­ar­leik­húsið.“

Bergur Þorri Benja­míns­son, for­maður Sjálfs­bjargar, segir að það þessi lýs­ing sé eins og aftan úr for­tíð­inni. „Ég heyrði af svona til­vikum fyrir mörgum árum síðan en síðan þá hefur regl­unum verið breytt. Þetta kemur því ansi mikið á óvart. Þetta á alla vega ekki að þurfa að ger­ast.“

Árið 2014 var þjón­ustu Ferða­þjón­ustu fatl­aðra breytt og hún færð til mið­nættis á virkum dögum. Um síð­ustu ára­mót, þegar Strætó hóf næturakstur til eitt á nótt­inni, var þjón­usta Ferða­þjón­ust­unnar færð til sam­ræmis við það einnig. Ferða­þjón­usta fatl­aðra í Kópavogi veitir þjón­ustu til mið­nættis á virkum dögum. 

Allt eðlilegt hjá ferðaþjónustunni

Stundin afl­aði upp­lýs­inga bæði hjá Ferða­þjón­ustu fatl­aðra í Kópavogi og hjá Strætó bs. sem sinnir ferða­þjón­ustu fatl­aðra fyrir önnur sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í báðum til­fellum var hægt að stað­festa að ekk­ert hefði farið úrskeiðis hvað varðar ferða­þjón­ust­una. Enginn akstur var þannig hjá Ferða­þjón­ustu fatl­aðra í Kópavogi frá Borg­ar­leik­hús­inu í gær­kvöldi. Guð­mundur Heiðar Helgason, upp­lýs­inga­full­trúi Strætó, segir að þar á bæ hafi verið kannað hvort um akstur á þeirra vegum hafi verið að ræða. Ein ferð hafi verið farin frá Borg­ar­leik­hús­inu, um klukkan korter yfir tíu. „Við erum búin að stað­festa að þetta hafi ekki verið ferð á okkar vegum. Við höfðum sam­band við far­þeg­ann í þeirri ferð sem svar­aði því til að allt hefði gengið vel og verið eðli­legt.“

Stundin hefur ekki náð sam­bandi við kon­una sem um ræðir.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár