Íshestar dæmdir til að greiða reikninga Hjalta

Dómur í máli Hjalta Gunn­ars­sonar gegn Íshestum féll í síð­ustu viku og var Íshestum gert að greiða Hjalta fyrir hesta­ferð­irnar sem hann fór fyrir fyr­ir­tækið sum­arið 2016.

Íshestar dæmdir til að greiða reikninga Hjalta
Hjalti og Ása Unnu mál sitt gegn Íshestum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Íshestar þurfa að greiða Hjalta Gunn­ars­syni tæpar 15 millj­ónir króna vegna ferða sem hann fór fyrir fyr­ir­tækið sum­arið 2016 sam­kvæmt dómi sem Hér­aðs­dómur Reykja­ness kvað upp í síð­ustu viku.

Stundin sagði sögu Hjalta og eig­in­konu hans, Ásu Viktoríu Dalkarls, fyrr í mán­uð­inum en þau reka hesta­tengda ferða­þjón­ustu á Kjóa­stöðum í Bisk­ups­tungum. Þau höfðu átt í far­sælu sam­starfi við Íshesta frá árinu 1992, allt þar til nýir eig­endur tóku við rekstr­inum en þá fór að verða erfitt að fá greiðslur. Í lok sum­ars 2016 var ljóst að fyr­ir­tækið væri á leið­inni í þrot og fengu sam­starfs­að­ilar Íshesta ekki greitt fyrir ferð­irnar sem þeir fóru það sumar. Öll starf­semi Íshesta var þá færð yfir á nýtt félag og voru rök Íshesta þau að Hjalti hefði átt í sam­starfi við gamla félagið, en ekki hið nýja. Hjalti stefndi fyr­ir­tæk­inu vegna ógreiddra reikn­inga, en hann sagði fyr­ir­tækið skulda sér á 16 millj­ónir króna.

Í dómi hérð­asdóms segir meðal ann­ars að sam­kvæmt samn­ingi nýs félags Íshesta um kaup á gamla félag­inu hafi allur rekstur hins gamla félags verið seldur til hins nýja í júní 2016. Tekið er fram í kaup­samn­ingi að með­fylgj­andi söl­unni séu allar ferðir og öll seld þjón­usta sem Íshestar vinni að hér á landi og einni þær ferðir sem hafi verið pant­aðar fyrir afhend­ingu en verði inntar af hendi eftir afhend­ing­ar­dag. Þá segir enn­fremur að allar tekjur og allur kostn­aður vegna fram­seldra verka, sem falli til eftir afhend­ing­ar­dag, til­heyri kaup­anda. Líta verði svo á að með þessum ákvæðum kaup­samn­ings­ins hafi fyr­ir­tækið orðið skuld­bundið Hjalta. 

Önnur gögn máls­ins styðji einnig þessa nið­ur­stöðu, því starfs­menn Íshesta virð­ast hafa litið svo á að túlka bæri kaup­samn­ing­inn með þessum hætti. Þannig greiddi nýja félagið tvo reikn­inga frá Hjalta í sept­em­ber 2016, Íshestar sendi nafna­lista til stefn­anda 27. júní 2016 vegna ferða sem farnar voru 2. og 9. júlí 2016 og tölvu­bréfa­sam­skipti Skarp­héð­ins Bergs Stein­ars­sonar, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Íshesta, og Hjalta bendi einnig til þess að fram­kvæmda­stjór­inn hafi litið svo á að Íshestar væru skuld­bundnir Hjalta vegna umræddra hesta­ferða sum­arið og haustið 2016. Nið­ur­staða máls­ins varð því sú að kröfur Hjalta voru teknar til greina að öllu leyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár