Vill yfirlýsingu frá forsætisráðherra um fundinn á Höfða

Halldór Auðar Svansson, borg­ar­full­trúi Pírata, fer fram á opin­bera afsök­un­ar­beiðni frá Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra fyrir að bjóða Eyþóri Arnalds á fund­inn á Höfða, og vill að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins.

Vill yfirlýsingu frá forsætisráðherra um fundinn á Höfða
Halldór Auðar Svansson sendi borg­ar­full­trúum og þing­mönnum Reykja­víkur harð­ort bréf í dag vegna fund­ar­ins á Höfða. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég hef verið að melta þetta út vik­una og fylgj­ast með hvernig þetta hefur þró­ast og mér finnst eig­in­lega standa upp úr að það eru þarna uppi mjög ósann­gjarnar ásak­anir um að það hafi verið eitt­hvað óeðli­legt við þá ákvörðun að vísa Eyþóri frá. Mér finnst það bara ótækt að það sé látið liggja í loft­inu,“ segir Halldór Auðar Svansson, borg­ar­full­trúi Pírata, um ástæður þess að hann sendi öllum borg­ar­full­trúum Reykja­vík­ur­borgar og þing­mönnum Reykja­vík­ur­kjör­dæmanna ansi harð­ort bréf fyrr í dag. Í bréf­inu fer hann meðal ann­ars fram á að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra sendi frá sér opin­ber­lega afsök­un­ar­beiðni og að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sendir frá sér yfir­lýs­ingu um málið. „Öðrum kosti mun ég ekki mæta á frek­ari fundi með full­trúum rík­is­stjórn­ar­innar og stjórn­ar­flokk­anna í mót­mæla­skyni, þar sem ég sé engan til­gang í að eyða dýr­mætum tíma mínum í fundi þar sem ég tel ekk­ert traust ríkja,“ segir Halldór í bréf­inu. 

Utan­rík­is­ráð­herraHalldór vill að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra biðj­ist opin­ber­lega afsök­unar á því að hafa farið fram úr sér með því að bjóða Eyþóri Arnalds á fund sem var ætl­aður borg­ar­full­trúum Reykja­víkur og þing­mönnum Reykja­vík­ur­kjör­dæmanna.

Eins og kunn­ugt er vís­aði Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri Eyþóri Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, af fundi sem hald­inn var í Höfða á mánu­dag. Í Morg­un­blað­inu, sem er meðal ann­ars í eigu Eyþórs, hefur Dagur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir að vísa Eyþóri af fund­inum. Halldór segir í bréf­inu að fundur sem eigi að vera sam­ráðs­vett­vangur borg­ar­stjórnar og þing­manna um hags­muni borg­ar­búa hafi snú­ist upp í fjöl­miðla­skrípa­leik um per­sónur í kosn­inga­slag.

„Að það sé gert eitt­hvað tor­tryggi­legt og blandað í ein­hvern kosn­inga­slag, það finnst mér full­kom­lega óeðli­legt og óvið­eig­andi.“

Ekkert heyrst frá for­sæt­is­ráð­herraKatrín Jak­obs­dóttir hefur enn ekk­ert tjáð sig um fund­inn á Höfða. Halldór vill að hún sendi frá sér yfir­lýs­ingu um hennar skiln­ing á þessum fundi.

„Þessir fundir eru árlegir og eru alltaf með því formi að þetta eru borg­ar­full­trúar og þing­menn Reykja­vík­ur­kjör­dæmanna og þetta er eitt­hvað sem allir vita að er fund­ar­formið, sér­stak­lega það fólk sem hefur setið þessa fundi oft. Það er aldrei á nokkrum tíma­punkti nefndur sá mögu­leiki að það sé verið að draga eitt­hvað utan­að­kom­andi fólk inn í hóp­inn. Þannig mér finnst það full­kom­lega eðli­leg við­brögð að þegar það dúkkar allt í einu upp, þegar fundur er að hefjar, að það sé bara áréttað hverjum er boðið og við­kom­andi bara vísað frá. Ef ég hefði til dæmis vitað af þeim mögu­leika að taka fleira fólk með mér þá hefði ég kannski sent ein­hvern í minn stað til dæmis, því ég gat ekki setið nema hálfan fund­inn. Þannig þetta er spurn­ing um jafn­ræði og eðli­legt vinnu­lag. Að það sé gert eitt­hvað tor­tryggi­legt og blandað í ein­hvern kosn­inga­slag, það finnst mér full­kom­lega óeðli­legt og óvið­eig­andi,“ segir Halldór. 

Um ástæðu þess að hann krefst yfir­lýs­ingar frá for­sæt­is­ráð­herra segir Halldór að þau þrjú hafi skipu­lagt fund­inn, borg­ar­stjóri, utan­rík­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra. „Og hún hefur ekki sagt neitt ennþá um hennar skiln­ing á þessum fundi,“ segir hann. „Þannig mér finnst bara mjög mik­il­vægt að allir sem koma að þessu og bera ábyrgð á fund­ar­form­inu, og að það fari eðli­lega fram, árétti bara ein­fald­lega hverjar regl­urnar eru og að allt hafi farið þarna eðli­lega fram.“

Hér er bréf Halldórs í heild:

Sæl öll,

Á meðan ég þakka fyrir góðan fund vil ég gera alvar­lega athuga­semd við fram­ferði utan­rík­is­ráð­herra, sem sam­kvæmt neð­an­greindu fund­ar­boði var í sam­ráði við þann sem boð­aði fund­inn, borg­ar­stjóra, um upp­legg fund­ar­ins og fund­ar­tíma. Slík skeyta­send­ing er nokkuð sem ég vildi ekki þurfa að verja tíma mínum og ykkar í en ég tel það nauð­syn­legt í ljósi stöð­unnar.

Eins og fram hefur komið í fjöl­miðlum hefur utan­rík­is­ráð­herra kosið að taka þátt í opin­beru upp­hlaupi í kringum þá stað­reynd að manni sem hann ákvað að taka með sér á fund­inn, að öðrum fund­ar­gestum algjör­lega for­spurðum, hafi verið vísað á dyr, þar sem honum var ein­fald­lega ekki boðið. Þetta hefur sá maður, auk utan­rík­is­ráð­herra, kosið að útmála sem afskap­lega ósann­gjarna ákvörðun af hálfu fund­ar­stjór­ans, borg­ar­stjóra.

Þannig hefur fundur sem ætlað er að vera sam­ráðs­vett­vangur borg­ar­stjórnar og þing­manna um hags­muni borg­ar­búa far­inn að snú­ast upp í fjöl­miðla­skrípa­leik um per­sónur í kosn­inga­slag.

Ég hef engar áhyggjur af því að þetta muni verða Sjálf­stæð­is­flokknum til nokk­urs fram­dráttar í kosn­inga­bar­átt­unni í borg­inni en ég hef hins vegar miklar áhyggjur af hvað þetta þýðir fyrir fund­ar­formið, að þarna sé því vís­vit­andi rænt í þágu ann­ar­legra hags­muna. Tel ég að þetta fram­ferði hafi stór­skaðað trú­verð­ug­leika fund­ar­ins og að í því felist hrein og klár van­virð­ing í garð ann­arra fund­ar­gesta, sem og borg­ar­búa. Traustið hefur verið eyði­lagt og tíma fólks sóað í að elt­ast við eitt­hvað sem það bjóst alls ekki við að þurfa að elt­ast við, ómál­efna­leg auka­at­riði og kjána­læti. Þetta fram­ferði sæmir ein­fald­lega ekki full­orðnu fólki - og alls ekki fólki sem gegnir ábyrgð­ar­stöðum.

Ég mætti sjálfur í seinna fall­inu á fund­inn þar sem ég var að klára annan fund - en ég hefði sjálfur gert athuga­semd við það ef maður hefði fengið að sitja fund­inn ein­ungis vegna þess að einn fund­ar­gesta var svo ósvíf­inn að láta sér detta það í hug að taka gest með sér án þess að spyrja kóng né prest. Það er enn alvar­lega þegar umræddur gestur er einn þeirra sem er í sam­ráði við þann sem boðar fund­inn um form hans. Er treyst fyrir því en kýs að bregð­ast því trausti algjör­lega með því að koma í bakið á öðrum fund­ar­gestum. 

Ef opna á form fund­ar­ins þannig að fólki sé leyft að taka með sér gesti þarf það ein­fald­lega að ger­ast með form­legum hætti þar sem jafn­ræðis er gætt og öllum gef­inn kostur á því með réttum fyr­ir­vara. Það sem á hins vegar alls ekki að gera er að verð­launa fólk fyrir ósvífni og yfir­gang. Það er full­kom­lega eðli­legt að fólki séu þá frekar sett skýr og heil­brigð mörk og það er hlut­verk fund­ar­stjóra. Þarna var farið yfir mörk, það er kjarni máls­ins, og það þarf að við­ur­kenn­ast opin­ber­lega. Eitt er að fara fram úr sér en annað er að útmála sig sem fórn­ar­lamb þegar manni eru sett eðli­leg mörk. Það er fyrst þá sem maður er að stimpla sig inn sem yfir­gangs­segg. Tel ég þar mál að linni. Heiður okkar allra og traust okkar á milli er að veði en skömmin er utan­rík­is­ráð­herra og þeirra sem með­virkir eru með óboð­legu fram­ferði hans.

Fer ég fram á að utan­rík­is­ráð­herra biðj­ist opin­ber­lega afsök­unar á þessu fram­ferði sínu og við­ur­kenni að hann hafi farið fram úr sér.

Einnig fer ég fram á að að for­sæt­is­ráð­herra, sem verk­stjóri rík­is­stjórn­ar­innar og þriðji skipu­leggj­andi fund­ar­ins, tjái sig opin­ber­lega um mála­vöxtu og standi með formi fund­ar­ins í því skyni að end­ur­reisa trú­verð­ug­leika hans.

Öðrum kosti mun ég ekki mæta á frek­ari fundi með full­trúum rík­is­stjórn­ar­innar og stjórn­ar­flokk­anna í mót­mæla­skyni, þar sem ég sé engan til­gang í að eyða dýr­mætum tíma mínum í fundi þar sem ég tel ekk­ert traust ríkja.

Kær kveðja,
Halldór 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár