Þekktur hægriöfgamaður boðar komu sína til Íslands

Tommy Robinson hefur vakið athygli fyrir áróður gegn múslimum og bar­áttu sína fyrir hertri inn­flytj­enda­stefnu.

Þekktur hægriöfgamaður boðar komu sína til Íslands

Tommy Robinson, breskur þjóð­ern­is­sinni og hægriöfga­maður, boðar komu sína til Íslands á Twitter. „Mér var boðið á við­burð á Íslandi næsta sumar. Get ekki beðið, enda hefur mig alltaf langað að heim­sækja landið,“ skrifar hann. 

Tommy hefur gegnt for­ystu­hlut­verki í þjóð­ern­is­sam­tök­unum The English Defence League, var um tíma vara­for­maður Breska frels­is­flokks­ins og nýtur mik­illar virð­ingar meðal ras­ista, múslima­hat­ara og hægrirót­tæk­linga í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Hann hefur setið í fang­elsi fyrir fjár­svik og að villa á sér heim­ildir en jafn­framt verið dæmdur til að sinna sam­fé­lags­þjón­ustu vegna ógn­andi hegð­unar eftir íþrótta­við­burð í heimabæ sínum, Luton. Þar rekur Tommy ljósa­bekkja­stofu. 

Pegida-hreyf­ingin í Þýska­landi hefur barist gegn áhrifum múslima í Evrópu. Tommy Robinson hefur tekið þátt í að hleypa slíkri hreyf­ingu af stokk­unum í Bret­landi.

Viðar Þor­steins­son, heim­spek­ingur sem hefur tekið þátt í stofnun Sós­í­alista­flokks­ins, tjáir sig um komu Tommy Robinson á Facebook og hvetur fólk til að koma í veg fyrir að hann fái að láta ljós sitt skína á Íslandi.

Hann segir að sam­tök um ofbeldi gegn minni­hluta­hópum og brot á mann­rétt­indum þeirra geti ekki sjálf ætl­ast til þess að fá að njóta mann­rétt­inda á borð við funda- og tján­ing­ar­frelsi. „Þegar þau ógna til­veru sak­lauss fólks með opin­berum við­burðum í almanna­rým­inu þá er það skylda allra sem vilja standa vörð um lýð­ræði, mann­rétt­indi og til­vistar­ör­yggi minni­hluta­hópa að stöðva slíkt með öllum ráðum. Tommy Robinson getur því átt von á mót­stöðu ætli hann eða íslensk nýnas­ist­sam­tök að efna til funda hér á landi,“ skrifar hann. 

Aðdá­endum Tommy Robinson líst almennt vel á fyr­ir­hug­aða Íslands­för hans, en sumir hafa áhyggjur. „Þarna var eitrað fyrir Robert Spencer. Farðu var­lega,“ segir vin­kona Tommys og vísar þar til þekkts múslima­and­stæð­ings sem kom til Íslands síð­asta sumar og sagði farir sínar ekki sléttar. Einn af skoð­ana­bræðrum Tommys á Twitter býðst til að útvega honum lið vaskra manna, eins konar líf­varða­sveit, sem geti fylgt honum um Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Umræða um rasisma

Óttast að falskar fréttir grafi undan lýðræðinu í Evrópu
Erlent

Óttast að falskar fréttir grafi undan lýð­ræð­inu í Evrópu

Svoköll­uðum fölskum fréttum hefur fjölgað veru­lega í Þýska­landi á nýju ári. Facebook hefur gert samn­ing við rann­sókn­ar­fjöl­mið­il­inn Correctiv um að sann­reyna þýskar fréttir. Svipaðir samn­ingar hafa verið gerðir í Banda­ríkj­unum. Frönsk og þýsk stjórn­völd ótt­ast að falskar fréttir geti haft veru­leg áhrif á kosn­inga­úr­slit í lönd­unum tveimur. Stjórn­mála­menn nýta sér orð­ræð­una um falskar fréttir í þeim til­gangi að grafa undan gagn­rýn­inni umræðu.
Vill að þeir sem sýna af sér „óæskilega hegðun“ verði tilkynntir til stjórnvalda svo hægt sé að „grípa til fyrirbyggjandi aðgerða“
Fréttir

Vill að þeir sem sýna af sér „óæski­lega hegðun“ verði til­kynntir til stjórn­valda svo hægt sé að „grípa til fyr­ir­byggj­andi aðgerða“

Ólöf Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra og odd­viti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, telur að fram undan séu tímar þar sem grípa þurfi til aðgerða í þágu öryggis og friðar sem fólk kunni að upp­lifa sem tak­mörkun á mann­rétt­indum sínum. Vaxandi útlend­inga­hatur sér­stakt áhyggju­efni.
Boðist til að falla frá málsókn gegn þögn um frambjóðanda Framsóknarflokksins
FréttirUmræða um rasisma

Boðist til að falla frá mál­sókn gegn þögn um fram­bjóð­anda Fram­sókn­ar­flokks­ins

Lög­fræð­ing­ur­inn Sævar Þór Jónsson, sem er í þriðja sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, sendi Stund­inni inn­heimtu­kröfu upp á 7,5 millj­ónir króna vegna birt­ingar mynda af Arnþrúði Karls­dóttur sem Útvarp Saga not­aði til kynn­ingar á dag­skrár­liðum. Fulltrúi Sævars bauðst til þess að fallið yrði frá kröf­unni gegn því að Sævari yrði haldið fyrir utan umfjöllun blaðs­ins um útvarps­stöð­ina.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár