120 milljóna hagnaður hjá Bitcoin-fyrirtæki

Fimm starfs­menn unnu í gagna­ver­inu hjá Bitfury Iceland í fyrra, en verð á bitcoin hefur sveifl­ast gríð­ar­lega und­an­farna mán­uði.

120 milljóna hagnaður hjá Bitcoin-fyrirtæki
Stjórn­ar­for­maður Bitfury á Íslandi Valery Vavilov kom til Íslands á haustmánuðum 2013 í þeim til­gangi að reisa gagna­ver fyrir Bitcoin-námu­gröft.

Félagið Bitfury Iceland skil­aði hagn­aði sem nemur um 120 millj­ónum íslenskra króna í fyrra og tæp­lega 240 millj­óna hagn­aði árið 2016. Þá voru fimm starfs­menn í vinnu hjá fyr­ir­tæk­inu sem fram­leiðir raf­eyri, bitcoin, í gagna­veri Advania í Reykja­nesbæ. 

Þetta eru þær opin­beru tölur sem gefnar eru upp í árs­reikn­ingum. Bitfury Iceland er í eigu hol­lenska eign­ar­halds­fé­lags­ins Bitfury Holding B.V., en til­gangur félags­ins er sem­sagt sá að búa til, eða grafa eftir, raf­eyri sem ekki er við­ur­kenndur lög­eyrir eða gjald­mið­ill sam­kvæmt íslenskum lögum. Eins og bent er á í nýlegri umfjöllun á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins hafa ýmis álita­efni verið uppi í tengslum við laga­lega stöðu raf­mynta, svo sem hvernig skatta­yf­ir­völd geti náð til þeirra.

Bitfury hóf námu­gröft í gagna­verum Advania á Ásbrú í Reykja­nesbæ árið 2014. Stundin fjall­aði ítar­lega um starf­semi félags­ins árið 2015, en fram kom að for­svars­menn Bitfury hefðu komið til Íslands á haust­mán­uðum 2013 í leit að sam­starfs­að­ila til þess að reisa gagna­ver sem yrði sér­hannað fyrir starf­semi þeirra. Samn­ingar náð­ust við hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Advania og bygg­ing­arnar voru reistar í flýti á einum og hálfum mán­uði, áður en málið hafði verið afgreitt í bæj­ar­stjórn eða bygg­ing­ar­leyfi veitt.  

Verð á bitcoin hefur sveifl­ast gríð­ar­lega und­an­farna mán­uði. Fjár­mála­eft­ir­litið vakti nýlega athygli á því í sér­stakri við­vörun til almenn­ings að engar reglur giltu á mark­aði með sýnd­arfé. „Markaður með sýnd­arfé sýnir skýr merki um bólu­myndun þar sem verð er mjög sveiflu­kennt og ekki tengt und­ir­liggj­andi eignum,“ segir í til­kynn­ingu FME.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár