Guðmundur Andri telur ómaklega vegið að Alþingi í Landsréttarmálinu

„Ég held að Alþingi hafi veitt dóms­mála­ráð­herra atbeina að ákvörð­unum sínum í góðri trú.“

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, telur Alþingi hafa sætt ómak­legri gagn­rýni vegna emb­ætt­is­færslna dóms­mála­ráð­herra í Lands­rétt­ar­mál­inu.

Í umræðum undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta í dag tók hann upp hansk­ann fyrir fyrr­ver­andi stjórn­ar­meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar og sagð­ist telja Alþingi hafa stað­fest til­lögu dóms­mála­ráð­herra um dóm­ara­efni við Lands­rétt í góðri trú. 

Guð­mundur Andri vitn­aði í pistil sem Ragnar Aðal­steins­son hæsta­rétt­ar­lög­maður birti nýlega á Kjarn­anum. Þar segir Ragnar: „Alþingi brást skyldum sínum með alvar­legum hætti. Það gætti ekki að eft­ir­lits­hlut­verki sínu með fram­kvæmd­ar­vald­inu. Alþingi tempraði ekki vald fram­kvæmd­ar­valds­ins heldur studdi ólög­mætar ákvarð­anir.“

Skrif Ragnars ríma vel við nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í dómum sem kveðnir voru upp 19. des­em­ber, en þar kemur skýrt fram að „ann­marki var á með­ferð Alþingis á til­lögu dóms­mála­ráð­herra þar sem ekki var bætt úr ann­mörkum á máls­með­ferð ráð­herra þegar málið kom til atkvæða­greiðslu á Alþingi.“

Guð­mundur telur Ragnar þó ganga full­langt í álykt­unum sínum. „Vegna þess að ég held að Alþingi hafi veitt dóms­mála­ráð­herra atbeina að ákvörð­unum sínum í góðri trú þrátt fyrir allt. Alþingi hafði ein­fald­lega ekki þær upp­lýs­ingar sem það þurfti að hafa í þessu máli til að taka vit­legar ákvarð­anir um skipan dóm­ara. Alþingi hafði ekki upp­lýs­ingar um þau miklu og ein­dregnu varn­að­ar­orð sem emb­ætt­is­menn höfðu haft í frammi í þessu máli.“

Hér má sjá helstu upp­lýs­ing­arnar sem lágu fyrir Alþingi þegar meiri­hluti þing­manna studdi til­lögu dóms­mála­ráð­herra um skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara síð­asta sumar og felldu til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar um að mál­inu yrði vísað aftur til rík­is­stjórnar til frek­ari und­ir­bún­ings.

Við þing­lega með­ferð máls­ins komu fram ýmis varn­að­ar­orð og gagn­rýni á verk­lag ráð­herra frá reyndum lög­fræð­ingum. Einn þeirra, Jóhannes Karl Sveins­son, sagð­ist hafa fengið áfall við að lesa rök­stuðn­ing ráð­herra. Í upp­sigl­ingu væri rétt­ar­fars­hneyksli sem yrði íslensku sam­fé­lagi dýrt, ekki aðeins vegna mögu­legs bóta­réttar umsækj­enda heldur einnig vegna þess van­trausts og langvar­andi vanda­mála í rétt­ar­kerf­inu sem fram­ganga ráð­herra kynni að hafa í för með sér. 

Flestum sér­fræð­ingum bar saman um að ef ráð­herra ákvæði að víkja frá mati dóm­nefndar bæri henni, lögum sam­kvæmt, að fram­kvæma eigin rann­sókn á hæfni umsækj­enda þannig að eng­inn vafi léki á því að hæf­ustu ein­stak­ling­arnir væru skip­aðir. Við með­ferð máls­ins var vísað sér­stak­lega til dóms Hæsta­réttar í máli nr. 412/2010, frá 14. apríl 2011, þar sem rétt­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að við skipun í emb­ætti hér­aðs­dóm­ara hefði þáver­andi ráð­herra ekki upp­fyllt rann­sókn­ar­skyldu sína, enda þyrfi til þess að liggja fyrir „full­nægj­andi rök­stuðn­ingur fyrir því að þeir umsækj­endur sem ráð­herra leggur til séu a.m.k. jafn­hæfir og þeir sem dóm­nefndin leggur til“. 

Þann 19. des­em­ber 2017 stað­festi Hæsti­réttur Íslands að þau varn­að­ar­orð sem fram komu við með­ferð máls­ins á þing­inu áttu sann­ar­lega rétt á sér: máls­með­ferð ráð­herra við skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara stóðst ekki stjórn­sýslu­lög, enda var rann­sókn hennar á hæfni umsækj­enda ófull­nægj­andi. Vísaði Hæsti­réttur sér­stak­lega til dómafor­dæm­is­ins frá 2011, rétt eins og sér­fræð­ingar í lögum og þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar höfðu ítrekað gert í umfjöllun um málið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Landsréttarmálið

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár