Styrkur ullarinnar kom á óvart

Hönn­uð­ur­inn Hanna Dís Whitehead lenti í því að þurfa að bíða lengi eftir birgðum fyrir hönnun sína meðan á alheims­far­aldri stóð fyrir nokkrum árum. Í þeirri bið varð henni litið í kringum sig fyrir utan vinnu­stof­una sína austur í Horna­firði og velti fyrir sér af hverju hún væri ekki að nýta betur efni­við úr nærum­hverfi sínu. Við það kvikn­aði sú hug­mynd sem hún vinnur með þessa dag­ana, sem er að hann hús­gögn úr þæfðri ull.

Styrkur ullarinnar kom á óvart

„Ég bý á Horna­firði og ég vinn mikið með leir og það varð vesen með birgðir í Covid, var löng bið eftir þeim. Ég var að labba út af vinnu­stof­unni minni hérna úti í sveit og hugs­aði með mér af hverju ég væri ekki að vinna með efni­við sem er bara hér, af hverju ég væri að bíða eftir efni­við sem kæmi ann­ars staðar frá. Eftir þessa pæl­ingu ákvað ég að fara að vinna með tvo efni­viði, sem eru ann­ars vegar ull og hins vegar strá. Ég er sem sagt að vinna með ann­ars flokks ull, sem er mjög van­nýtt hér á Íslandi enn þá, en þetta er alveg helm­ing­ur­inn af ull­inni sem kemur af kind­inni,“ segir Hanna Dís.

Hanna Dís fór með þá ull og afgangs­efni úr teppum í Textíl­setrið á Blöndu­ósi til að athuga hvað hún gæti gert, en hún hafði farið á opinn dag þar áður …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Líst vel á þetta með að búa til húsgögn úr þæfðri ull. Þegar ég var krakki, tíndum við krakkarnir „Hagalagða“ og fengum pening fyrir. Þeir og afgangsull: þæfingur og annað verðlítið, ásamt toginu, var sent til ullarverksmiðjunnar á Akureyri og búin til ullarteppi úr þeim. Stundum var þetta selt, en líka sent til að fá teppi. þessi teppi voru slitsterk og hlý, á mitt ennþá. Mætti ekki líka setja þæfða ull inn á milli veggja, t.d. í fjósi, til einangrunar. Ég vann í fjósi, sem var einangrað á þann hátt með vikri, líka loftið.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu